Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Side 64

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Side 64
Bill Naughtoni Dikki lærir að tala Þegar ég var 12 ára, var minn bezti vinur drengur, sem kallaður var Dikki Flitt, og voru aðeins tvö hús á milli heimila okkar, við sömu götu. Dikki var bæði mállaus og heyrnarlaus — daufdumbur. — Þessi vöntun virtist ekki gera neinn mun hjá okkur strákunum. Hann varð að passa í okkar kram, rétt eins og hver annar strákur, án þess að vera neitt tiltakan- lega öðruvísi en við hinir. Ég verð að segja að hann var sérstaklega leikinn í að lesa af vörum, og þegar við söfnuð- umst saman við ljóskerstaurinn á horninu og sögðum brandara, var það oftast hann, sem skellti fyrst upp úr i sögulok. Að hann var dauf- dumbur vorum við ekkert að fást um, fyrst hann á annað borð var tekinn gildur. Þegar hann vildi gera sig skiljanlegan, var hann svo leikinn, að engin vafi var á hvað hann meinti. Ekki litum við niður á hann vegna málleysisins, síður en svo. Við álitum hann gáf- aðan þar eð hann gat talað með höndunum, því að með tungunni gátu auðvitað allir talað, sem heyrn höfðu. Á laugardögum vorum við Dikki vanir að vinna okkur inn sinn skildinginn hvor, með því að aka kolum á tvíhjólavagni frá kolakaupmann- inum í hverfinu til nágrannanna. Eftir vinnuna fórum við Dikki svo í kjötbúðingsbúðina henn- ar „Mömmu Walsh“ í Doddsgötu. Hún hafði ávalt á boðstólnum nýbakaðan kjötbúðing, fyllt- an safamiklum mat, ekta enskan með lauk- bragði. Við keyptum hálfskildings stykki hvor og átum á meðan við gengum niður götuna. „Þegar ég er orðinn milljóner“, var Dikki vanur að segja mér með merkjum, og lét vas- ana bunga út, „skal ég ekki borða annað en kjöt- búðing frá „Mömmu Walsh“. Það eina, sem gerði Dikka frábrugðinn öðrum venjulegum drengjum var, hvað hann var ör- geðja, uppstökkur og önuglyndur. Þegar hann lék fótbolta varð hann afar æstur og átti þá til að reka upp öskur, er hann var með boltann fyr- ir framan mark andstæðinganna. Hann gat auð- vitað ekki heyrt flautu dómarans og lék því stundum of lengi, en varð svo mjög hryggur eftir á, þegar hann var skammaður fyrir það. Þá var það og einstaka þiáðjudagskveld, þegar mamma hans kom ekki heim á venjulegum tíma — þau bjuggu tvö í íbúðinni — og hann beið með teið tilbúið, að hann varð svo leiður að engu tali tók. Þetta var það eina, sem gerði hann frábrugð- inn okkur hinum, og styggði það suma stráka frá honum. En okkur þótti svo vænt hvorum um annan, að þessi skapbrestur hans varð okkur ekki að sundurþykkju. Frú Flitt var erfiðisvinnu manneskja, sem þrælaði alla vikuna í þvottahúsi hverfisins, en einstaka útborgunardag lét hún eftir sér að fá sér eitt bjórglas með vinnufélögum sínum, áður en hún fór heim. Nú skeði það, að talsérfræðingur kom dag nokkurn í skólastofuna okkar, og eftir að hafa rannsakað Dikka, gerði hann mömmu hans boð um að ef hún leyfði, myndi hann geta komið drengnum fyrir í stofnun í Miðlöndum, þar sem hann myndi áreiðanlega geta lært að tala. Frú Flitt varð mjög hrærð yfir þessum möguleika, en það var Dikki ekki. Hann sagðist vilja vera kyrr, þar sem hann væri, og langaði ekkert til að læra að tala öðruvísi en hann kynni þegar. Ég var honum sammála, af því að ég vildi ekki missa hann í burtu og óttaðist einnig að allt myndi breytast milli okkar er hann hefði lært að tala. Nágrannarnir sögðu það synd af móður, að láta barnið sitt frá sér til ókunnugra. Sér- fræðingurinn sagði frú Flitt að það væri skylda hennar að láta hann fara og fór hún að hans ráði. Það var Ömurleg kveðja, þriðjudagsmorgun einn í rigningu og sudda. Ég skrópaði í skólan- um til að geta fylgt Dikka á járnbrautarstöðina, ásamt móður hans. Því ekki gat hún farið ferð- ina með honum, bæði vegna kostnaðarins og 346 V í K I N G L) R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.