Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 47
J. H. Jónss. EGILL SVABTI Framh. Fari það nú í logandi, hugsaði Loftus. Nú heldur liann að ég sé rolla. Þá hló skipstjórinn Nikulás hrottalegum hlátri, að svo miklu leyti sem næstum raddlaus maður getur hlegið. „Ég er svona hás!“ sagði hann, „skilurðu það, svona hás. Sæktu fyrir mig mixtúru, pillur, eða eitthvað, um leið og þú ferð í kaffi“. Loftskeytamanninum létti við þessar upplýs- ingar og var nú vaknaður til fulls. „Þetta er mikið betra resultat en áðan, en það, sem þig vantar, er hvorki mixtúra né pillur, heldur hrár laukur“, og með þau orð hvarf hann út úr brúnni. „Laukur“, endurtók skipstjórinn háðslega, „það er sem ég segi“. Því næst þreif hann til kaffikönnunnar drakk af stútnum innihaldið, sem var.þreyttum taugum hans ómissandi örv- unnarlyf, rak síðan upp fýlulega roku, svipti opnum brúardyrunum og seig út. Aftur í gangi við káetustigann stóð Hákon bræðslumaður, skæðasti orðhákur Egils Svarta, og hafði hremmt sveitamann nýkominn til sjós. Þessi gamli sægarpur með skallann og stálgráan hárkransinn í vöngunum, var týpiskur upp á sjóræningja 17. aldarinnar, þar sem hann hall- aði sér upp við járnþilið, íturvaxinn og hvat- skeytlegur með breitt belti um sig miðjan, fram- stæða höku og þunnar litlausar varir, — og tal- aði í gegnum nefið. Snakk og mótsagnir eru hans skemmtun og munaður í tilbreytingarleysi hálfsmánaðar hringsóls um Halann, og ef svo vel bar í veiði sem nú að einfeldningur villtist um borð, svo ekki sé talað um sveitamann að auki, þá var eins og þessum gamla manni væri gefið pund gulls eða meira. Samherji hans í þess- um efnum er 1. vélstjórinn, Qddur, spikfeitur sykursýkissjúklingur, en gæddur ódrepandi glað- værð. Bræðslumaðurinn fór að engu óðslega, heldur bjó sig undir langa viðræðu, og samræðan sem á eftir fer, er gott sýnishorn af því hvernig Hákon gamli leikur sér að einfeldningunum, eins og köttur að mús, skjallar þá fyrst en gengur að lokum algerlega fram af þeim á sálfræðilega réttu augnabliki. „Jæja“, sagði Hákon vingjarnlega og sló á tóbaksboxið. „Svo þú ert úr sveit. Því hefði ég ekki trúað að óspurðu. Það er nefnilega einhver Meðan á bardaganum stóð, var Victory nálægt franska skipinu Redoutable og frá því skipi kom kúl- an, er olli dauða Nelsons. „Þá hefur þeim loksins tekizt að gera út af við mig, Hardy“, sagði hann við kaptein- inn. „Það vona ég ekki“, svaraði Hardy. „Jú“, sagði Nelson, „ég hef fengið kúlu í hrygginn". Áður en orustan hófst hafði Nelson gefið út fyrir- skipun: „Verið undir það búnir að varpa akkerum þeg- ar eftir ljósaskiptin". Og þegar orustan var um garð gengin og hann vissi dauðann nálgast, lagði hann ríkt á við Hardy, að þessu yrði framfylgt. Um þrem klukkustundum eftir að skotið hæfði Nel- son, gaf hann upp öndina, en síðustu orð hans voru þessi: „Ég hef gert skyldu mína, svo er guði fyrir að þakka“. Því miður hlýddi Collingwood ekki skipun hans um að varpa akkerum þegar eftir ljósaskiptin, og er kula tók um nóttina týndist mikið af herfangi því, sem tekið hafði verið. Orustan við Trafalgar var þrátt fyrir það mikill sigur fyrir England. Floti Frakka var tvístraður og sambræðsla Frakka og Spánverja hafði verið að engu gerð. Þótt herstjórnarlist Nelsons í orustunni við Trafalg- ar væri snjöll og árangurinn glæsilegur, getur enginn Englendingur minnzt bardagans án djúprar sorgar. Hversu dýrlegur dauðdagi sem það er að falla á stund árangursríkrar fórnar, þá munu Englendingar fremur óska sjóhetjum sínum þess að mega eiga þægilega elli- daga með fjölskyldum sínum og njóta aðdáunar og virðingar þjóðar sinnar. (Lauslega þýtt úr „British Sailor Heroes“ eftir Sir T. Knox Laughton). Ví K 1 N G U R 329
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.