Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Page 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Page 2
Guöni Þóröar8on, blaöamaOur: Síidarborgin um hausf Hér er því lýst hvernig umhorfs er á Siglufirði um haust, þegar síld- in hefur brugðizt. — Kyrrð og mann- laust á bryggjum og plönum, stúlk- urnar horfnar úr bröggunum, en verksmiðjuliallirnar leyndardómsfull- ar í einverunni. Síldarvertíðinni er iöngu lokið. Snæviþaktir fjallatindarnir speglast í haffletinum og auka á tign og feg- urð hinnar hrikalegu náttúrufegurð- ar, sem skapar umhverfi Siglu- fjarðar. Siglufirði. Til að sjá ofan úr loftinu er borg- in hrein og hvít, þar sem hún teygir anga sína út á kyrran sólskins- glampandi hafflötinn. Jafnvel reyk- háfarnir eru hreinir og búnir að gefast upp við að blása svörtum og þungum mekkjum í loft upp. Þeir gnæfa við himin einmanalegir í til- gangsleysi sínu. Fjöllin ynæfa hvít yfir slldarbænum. Siglufjöröur og síldin. En Siglufjörður er samt sem áður borg silfurfisksins og þó að sagt sé að engin síld hafi veiðzt, ber ekki að taka það bókstaflega, því það sem engin síld kallast á Siglufirði getur talizt mikil síld þar sem síldin er sjaldséður gestur. Borg silfur- fiskins ber, þegar betur er að gáð, líka á kyrrum haustdegi, nokkur merki síldarinnar og liðinnar síldar- vertíðar, þó að veiðin hafi að mestu brugðizt. Síldartunnustaflarnir eru minnis- merki liðins sumars. Þeir gefa að vísu alranga mynd af afkomu sum- arsins. Mjölskemman er tóm og lítið lýsi. Áherzlan var lögð á söltunina, sem er verðmætasta hagnýting síld- arinnar. Kyrrlát borg og hljóö. Gullborgin er kyrrlát og hljóð eins og mannlaust og yfirgefið vígi eftir tapaðan leik. Hersveitirnar eru komnar fram hjá. — Það veiddist engin síld í sumar. Haust á 2B4 VÍ K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.