Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 19
hann yrði bráðlega jafngóður. Honum hefði aldrei orðið á, ef hann hefði ekki verið veikur. . . . Fyrirgefið honum í þetta sinn, yðar göfgi“, bað hann með skjálfandi rödd. „Gordeyev! Ég er ekki vanur að endurtaka skipanir mínar . . . Hættið þessu þvaðri tafar- laust . . . Innan fimm mínútna komið þér til mín og tilkynnið mér, að skipun minni hafi verið hlýtt . . . Og látið þér skúra þilfarið!“ bætti hann við. Þar með sneri hann sér á hæli og fór. „Ó, þú miskunnarlausi harðjaxl!" tautaði bátsmaðurinn á eftir honum bálreiður. Hann fór upp á efra þilfarið og hitti þar Kochnev, sem var að bíða eftir Stubbi til þess að fara með hann niður, og sagði með þungri rödd: „Hræðilegt slys hefur viljað til, bróðir. .... Longintes hefur staðið Stubb að því að óhreinka þilfarið, og . . .“. í stað þess að ljúka setningunni, hristi hann aðeins höfuðið dapur í bragði. Kochnev var ljóst, hvað þetta þýddi. Andar- tak stóð hann grafkyrr með örvæntingarsvip. „Veslings skepnan — það er hörmulegt til þess að vita!“ stundi bátsmaðurinn. „En hvað er til ráða, þegar slíkur þorpari á í hlut?“ „Zakharich! . . . Zakharich!“ sagði Kochnev að lokum með bænarrómi, nærri því með grát- stafinn í kverkunum. „Stubbur er veikur . . . Við hverju er að búast, þegar hundurinn er veikur? .... Hann hlýtur að hafa fengið slæmt kast, fyrst hann gerði þetta. . . . Hann er skynsamur hundur, hann Stubbur . . . Hann veit, hvað er í húfi . . . Hann hefur aldrei gert þetta af sér fyrr . . . Hann hefur alltaf farið í skotið sitt, nema í þetta sinn . . . Zakharich! • . . Góði Zakharich . . . ég bið þig . . . farðu til þorparans og segðu honum, að hundurinn sé veikur“. „Heldurðu, að ég sé ekki búinn að segja hon- um það? Ég gerði allt, sem í mínu valdi stóð, til að bjarga Stubbi. En hann lét það sem vind um eyrun þjóta. „Innan fimm mínútna skal hund- inum kastað fyrir borð!“ sagði hann“. „Zakharich! . . . Ég bið þig . . . Farðu aftur °g biddu honum lífs . . . Segðu honum, að hund- urinn sé veikur!“ „Ég skal reyna það . . . En ég efast um, að Það beri nokkurn árangur . . . Bölvaður ó- þokkinn!“ sagði bátsmaðurinn og fór aftur á fund barónsins. Á meðan kom Stubbur til Kochnevs, ámátleg- Ví KIN □ U R ur og dapureygður eftir veikindin, og sleikti hönd hans með sneypulegum iðrunarsvip. Og óvenjulegri mildi brá fyrir á byrstu andliti hans. Nokkrum mínútum síðar kom bátsmaðurinn aftur, og það leyndi sér ekki á þungbúnum svip hans, að för hans hafði reynzt árangurslaus. „Hann hótaði að láta lækka mig í tigninni!“ muldraði hann reiðilega. „Bræður!“ hrópaði Kocknev allt í einu, og sneri sér að hinum hásetunum. „Hafið þið heyrt, hvað þorparinn ætlar að gera? Hvaða rétt hef- ur hann til að drekkja skipshundinum? Hvaða reglur heimila það?“ Svipþungt andlit hans titraði af ákafa, og augu hans skutu gneistum. Reiðióp kváðu við meðal hásetanna. Nokkrir hrópuðu: „Það eru engin takmörk fyrir því, hvað hann leyfir sér, bölvað úrþvættið!" „Hann dirfist þó ekki að gera þetta, kvalar- inn sá arna!“ „Hverjum dettur í hug að drekkja varnar- lausri skepnunni?“ „Frelsum hann, bræður! Förum til kapteins- ins. Hann er heiðvirður maður, og hann skal dæma í málinu. Hann lætur það ekki viðgangast, að hann Stubbur okkar verði drepinn!“ hrópaði Koshnev og hélt báðum handleggjunum utan um Stubb, eins og hann væri hræddur við að sleppa honum. „Til kapteinsins!" tóku hinir undir. „Akim Zakharich! Skipaðu liði!“ Þetta var að verða ískyggilegt. Gordeyve klór- aði sér í hnakkanum með vandræðasvip. En rétt í þessu kom Koshutich, ungi mið- skipsmaðurinn, sem var hvers manns hugljúfi meðal sjóliðanna. Þegar þeir sáu yfirmann, þögnuðu hásetarnir — bátsmanninum til mikils hugarléttis. „Svo er mál með vexti“, sagði hann við mið- skipsmanninn, „að lautenantinn hefur skipað svo fyrir, að Stubbi verði kastað fyrir borð, og þetta hefur vakið miklar æsingar meðal háset- anna. Hvaða ástæða er til að drepa vesalings skepnuna? Þetta er hreinlátur og siðprúður hundur, eins og yðar göfgi veit, og hann hefur nú siglt með okkur í tvö ár . . . Honum var bara dálítið illt í maganum — annað hefur hann ekki af sér gert“. Síðan útskýrði bátsmaðurinn nánari tildrög málsins, og sagði að lokum: „Gerið okkur greiða, yðar göfgi, og biðjið fyrir honum Stubbi . . . Biðjið hann, að gefa honum líf . . .“. 301
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.