Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Page 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Page 23
hinum stöðunum, enda í fullu samræmi við það, sem hefur átt sér stað annars staðar, þar sem reglulegar fiskveiðar hafa verið reknar að stað- aldri. Fiskimiðin fyrir vestan Irland, sem höfðu verið stunduð af Bretum um langan aldur, voru t. d. orðin mjög aflarýr, meðan afli var dágóð- ur á fiskimiðum við Færeyjar, og brezkir fiski- menn höfðu mikils til þurrkað upp fiskimiðin við Færeyjar á árunum fyrir fyrri ófriðinn, þegar lítið var farið að bera á aflabresti við Island. En þó leið ekki á löngu að Frakkar færu að hverfa frá íslandi vegna aflatregðu, og álitu sig ekki geta haft samfiski með þeim, er not- uðu hin nýju veiðitæki — togarana. Þeir leit- uðu því betri miða og héldu til Nýfundnalands. Spánverjar byrjuðu einnig botnvörpuveiðar við ísland, en hættu brátt og leituðu á aðra staði. Portúgalsmenn, sem nú hafa öflugan flota við Nýfundnaland og Grænland, gjörðu aðeins litlar tilraunir við Island, sem ekki þóttu arðvænleg- ar. Færeyingar, sem lengi sóttu til Islands og fiskuðu á bátum við Austurland, og síðar á þil- skipum á miðunum annars staðar við landið, fiska nú mest við Grænland, svo og á togurum við ísland.' norður af Noregi og víðar. Þessar breytingar, sem hafa orðið á sókn erlendra fiskimanna á fiskimiðin við Island á síðari áratugum, bera vótt um það, að þótt vegalengdin sé styttri til íslands, þá kjósa þeir heldur að leita þangað, sem aflavonin er meiri. Fiskimiðin við landið eru því nú orðið ekki eins eftirsótt og áður. Þau eru orðin annars flokks fiskimið, í stað þess að vera þau beztu, sem þau óneitanlega voru um óralangan tíma. Erlendir fiskimenn, sem þegar eru farnir og nú eru að hverfa á braut, til betra haglendis, eru valdir að þessum breytingum. Nýir menn koma og halda áfram sömu iðju og svo koll af kolli. Þess- ir menn skilja við landið fátækara en þegar þeir komu, en eru engu síður keppinautar ís- lenzkra framleiðenda á heimamarkaðinum en þeir voru, meðan þeir fiskuðu við landið. III. Hver bjargar fiskimiðunum frá eyðileggingu og fiskistofninum frá tortímingu, ef íslending- ar gera það ekki? Rekstur þjóðarbúsins líkist búskap bónda á stórri jörð. Enginn dugandi bóndi mundi geta unað við, að nágrannarnir beittu land hans í gróandanum á vorin og heyjuðu á túni hans og engjum um heyskapartímann. — Varpeigandi þættist líka illa leikinn, ef óviðkomandi menn hrektu og dræpu fuglinn hvar sem hann fyndist og eyðilegðu varplandið í byrj un eggtíðar á vor- in. Ég hygg, að flestir óhlutdrægir menn mundu álíta þetta hina mestu ósvífni. Framkoma er- lendra fiskimanna á miðunum við strendur landsins er þó ekki ólík þessu. Fiskurinn er hrakinn og veiddur árið um kring og hrygning- arstöðvarnar eygilagðar. ,,Norðursjónum er tæplega hægt' að bjarga frá eyðileggingu og fiskimiðin við Island verða rýrari ár frá ári“, sagði norski fiskifræðingur- inn Gunnar Rollefsen í samtali við mig síðast- liðið sumar, og dr. Harald Blegvad, forstjóri hinna alþjóðlegu hafrannsókna, viðurkenndi, að ummæli þessu hefðu við rök að styðjast. Rýrnun fiskistofnsins við strendur landsins er staðreynd, sem ekki er hægt að rengja. Þorsk- fiskitegundum fækkar um 3% árlega. Þessi fækkun samsvarar 30% á 10 árum, eða eftir því sem næst verður komist, að fiskur verður mikils til þrotinn eftir rúman mannsaldur, svo tæplega muni svara kostnaði að reka útgerð á svipaðan hátt og nú. Orsökin er ránveiði eða offiski. Varnarráðstafanir eru því lcnýjandi nauðsyn. Eins og áður er bent á, er rányrkjan mikils til innifalin í því, að hrygningin truflast og mis- ferst og ungviðið eyðilegst. Á vetrarvertíð, þeg- ar hrygning þorskfiskitegunda fer fram, hindra togarar með veiðum sínum ekki aðeins eðlilega rás hrygningarinnar, heldur og náttúrlega frjófgun hrognanna. Einmitt þann tíma ársins, sem ætti að vera bannað að fiska með botn- vörpum á þessum stöðum, eru erlendir togarar í hundraða tali sí og æ, nótt og dag, að verki. I gamla daga töluðu sjómenn um fisk í „göngu“ og þegar „fiskur væri lagstur“. En nú fær fisk-. ur sjaldnast að „ganga á grunn“ og því síður að „leggjast“. Á hinu afar stóra svæði á suður- ströndinni, frá Hornarfirði til Vestmannaeyja, mun mega fullyrða, að 9/10 af þeim fiski, sem veiðist á göngu sinni að landinu og meðan hrygn'- ingin fer fram, sé veiddur af erlendum togurum. Þetta er aðeins örlítið dæmi um eyðingarstarf- semi þeirra. Á nokkrum stöðum eru menn, eins og kunnugt er, farnir að gjöra ráðstafanir til varnar eyði- leggingu fiskistofnsins. En flestar þessar ráð- stafanir munu tæplega geta talist fullnægjandi, þótt þær óefað séu til bóta. Akvæði éru sett um minnstu möskvastærð dragnóta, og einnig eru menn farnir að undirbúa friðun ýmissa fiski- miða og takmarka veiði, t. d. að leyfa aðeins V I K I N □ U R 3D5

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.