Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Side 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Side 38
Þjóðverjar eru sparsamir menn og vanir að leggja að sér. En sé um stóra fjölskyldu að ræða, þá er það ekki hægt. Aðalvandamálið er hús- næðisleysið og húsaleiga afar dýr. Margir verka- menn lifa í óhæfu húsnæði við alltof dýra leigu“. ,,Já, það er víða pottur brotinn!" „Hvaðan eruð þér?“ „íslendingur“. „Islendingar eru miklir fiskimenn“. „Sumir“. Ég þakka manninum fyrir upplýsingarnar. Býð honum sígarettu, sem hann þakkar með þökkum og labbar burt. — Wilhelm baut auf“. Hallartröppurnar. Ég stanza við stóran húsgrunn, eða rúst, því þarna stendur ekki steinn yfir steini af húsinu. En fyrir miðjum grunninum eru tröppur og það eru reglulegar hallartröppur. Breiðar, þægileg- ar og skrautlegar. Til beggja handa eru háir stöplar með ljónshöfðum. Tröppurnar eru alveg óskemmdar og lagðar mislitum flísum. Manni kemur þetta einkennilega fyrir sjónir. Þarna hefur staðið stórt hús. Sennilega hótel eða opinber bygging. Ég fer að velta því fyrir mér hvort húsið muni verða byggt við tröpp- urnar og dettur í hug maðurinn, sem ætlaði að smíða bát og byrjaði á neglunni! Efst við tröpp- urnar eru háir hraukar af múrsteinum. Á meðan ég er að horfa á þetta einkennilega fyrirbrigði gengur maður upp tröppurnar og hverfur milli hraukanna. Ég elti manninn af forvitni. Þegar komið er upp, sézt að mokaður hefur verið gangstígur inn á grunninn, síðan gerðar smátröppur niður í hann, og byggður' smáskúr úr heilum múrsteinum, og kofinn er á stærð við venjulegan íslenzkan bílskúr — og þarna býr fólk. Já — heil fjölskylda. Hreinsað hefur verið í kringum kofann og steinstétt lögð, því nóg er af byggingarefninu. Fyrir tveimur litlum gluggum eru mjallhvít gluggatjöld, sem fara vel við grænmálaðar gluggagrindurnar. Þrifnaðurinn og nostursem- in er svo augljós, að manni finnst hallartröpp- urnar eiga vel við bygginguna, þó smá sé. — Kofinn er eins og gróðursæll blettur í eyðimörk. „Suhiffshotel“. Þegar talað er um skipshótel eða fljótandi hótel, detta manni fyrst í hug fín farþegaskip, með fullokminni hótelmenningu og skrautlegum veitingasölum, á leið milli heimsálfanna með 30 mílna hraða. Á leiðinni upp í Bremerhaven eru skurðir, sem aðgreina hina þrjá hluta staðarins. Það er Wesermiinde, Gestemiinde og Bremer- haven. Yfir skurði þessa eru stórar brýr. Við eina þessara brúa, liggur meðal annara skipa, flestra ónýtra, gamalt skip, ekki mjög stórt, en hefur auðsjáanlega einhverntíma verið fínt far- þegaskip. Út í skip þetta liggur breiður „land- gangur“, traustlega fyrirkomið. Og við upp- gönguna er stórt spjald, með áletruninni „Schiffshotel“. Auk þessa spjalds eru mörg fleiri, er gefa til kynna hvað fáanlegt sé í þessu hóteli. En þar á meðal er gisting. Ég labba um borð í gnoðina, en ekki finnst mér skipalegt um borð. Siglutré eru engin, engar vindur eða annað, sem nauðsynlegt er um borð í siglinga- skinum. Nei, þetta er bara skipsskrokkur, sem eðlilegast væri að höggva upp eða flytja í skipa- kirkjugarðinn. En Þjóðverjar eru hugvitssamir menn og nú í húsnæðisvandræðunum hefur heim tekizt að útbúa harna ágætan greiðasölustað og fullboðlegt gistihús. Ég geng inn í stóran sal. með dreglalögðu gólfi og fægðum þilium. Setzt við eitt borðið og panta bjór. Yndisleg þerna færir mér drykkinn og spvr hvort mig langi til að hitta skipstjórann. Ég varð hálf hvumsa og spyr hvort skipstjóri sé á þessu skipi! „Auðvitað", segir hún. „Ekkert skip má vera án skipstjóra". „Jú, takk, ég vil gjarnan hitta hann“. Litlu síðar gengur til mín drengur á að gizka 10 ára. Hann er í fullum skipstjóraskrúða. Ég tel ekki borðana, en þeir eru fleiri en lög mæla fyrir. Hann heilsar mér, á þann háttvísa hátt, sem einkennir þýzk börn, við tökum að tala sam- an og hann segir mér að þegar hann verði stór þá ætli hann að sigla þessu skipi um öll heims- ins höf. Það sé alveg ákveðið, enda sé mamma sín búin að samþykkja það! Ég spyr hann hvort hann vanti ekki loftskeytamann. Jú,_ ég skal ráða þig, ef þú kaupir meiri bjór“. Ég kaupi meiri bjór og ráðningasamningur er gerður til 99 ára. Pípan. Enn labba ég og er löngu hættur að kæra mig um hvert ég fer. Allsstaðar er eitthvað að sjá og enn hef ég nógan tíma. Ég horfi í hvern einasta búðarglugga og skoða svo að segja hvert einasta hús. Alls staðar er líf og fjör. „Wilhelm baut auf“. Menn hræra sementið, hlaða múrsteinum og moka drasli upp á bíla. — Krakkarnir leika sér í rústum og görðum. Því krakkar eru alls staðar eins. Þau eru flest snot- urlega klædd. Það er að segja, fötin fara vel, þó þau séu kannske ekki ríkmannleg. Ég stanza við einn búðargluggann. Þar getur að líta mikið 320 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.