Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 62

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 62
§./10. Láta mun nærri að nú sé búið að salta í um 7000 tunnur síld- ar í Sandgerði. Allmargir bátar róa þaðan á reknetaveiðar og hefur þeim yfirleitt öllum gengið vel. Hefur af þessum sökum verið mjög mikið um vinnu í Sandgerði að undanförnu. Aðfaranótt fimmtudags fengu bátar frá Sandgerði yfirleitt ágætan afla. Voru hæstu bátar með um 110 tunn- ur eftir nóttina. í fyrrinótt var afli bátanna mjög tregur, enda var veður ekki sem hagstæðast á miðunum. Síðustu viku septembermánaðar og fyrstu viku þessa mánaðar hafa alls 20 íslenzkir togarar landað fiski á markaði Þýzkalands. Þeir lönduðu alls 5348 smál. af fiski. Nú hafa ís- lenzkir togarar farið 183 söluferðir til Þýzkalands. Þeir inunu alls hafa landað þar nær 13.000 smál. af fiski í síðasta mánuði. Hinn 3. október s.l. tilkynnti ís- lenzka ríkisstjórnin brezku rikis- stjórninni, að fiskveiðisamningun- um frá 24. júní 1901 væri sagt upp samkvæmt ákvæðum 3. gr. samnings- ins, svo að unnt yrði að leita nýrra samninga um þetta efni, er væru í samræmi við skoðanir Islendinga um rétt íslenzkra stjórnarvalda til friðunar fiskimiðanna. Ef ekki næst samkomulag um nýjan samning fell- ur samningurinn frá 1901 úr gildi, þegar tvö ár er liðin frá uppsagn- ardegi. Samningur þessi fjallar um þriggja sjómílna landhelgi gagnvart brezkum skipum. Eins og áður er sagt, má telja hann óliagstæðan okk- ur íslendingum, enda er nú að því stefnt að iosna undan skuldbinding- um hans. Stjórn F.F.S.l. hefur árum saman barizt fyrir því, að samningi þessum yrði sagt upp og íslenzk landhelgi færð út. e 12./10. Söltun Faxaflóasildar nem- ur nú 20 þús. tunnum, en samkvæmt upplýsingum frá Fiskifélagi Islands, hefur söltunin ekki verið jafn mikil s.l. átta ár í verstöðvum við Faxa- flóa, eða frá árinu 1941. Þá nam sölt- unin hér í verstöðvunum við Faxa- flóa 31. þús. tunnum. Mesta söltun Faxaflóasíldar er 52 þús. tunnur og var það árið 1935. Það ár brást síld- veiðin við Norðurland. Vísitala framfærslukostnaðar er fyrir september 330 stig. Hefur hún hækkað um tvö stig frá því að vísi- tala ágústmánaðar var reiknuð. Húsaleiguvísitalan hefur einnig hækkað en vísitala sú er gilda skal frá 1. sept. til áramóta hefur ný- lega verið úkveðin 156 stig. Hér er um fjögurra stiga hækkun að ræða frá því sem hún var mánuðina júní til ágúst. • 16./10. Færeyska skonnortan Hav- fruen strandaði og sökk við Haga- nesvík s.I. nótt. Mannbjörg varð, því siglfirzkum sjálfboðaliðum tókst að bjarga áhöfn skonnortunnar, 18 mönnum, innan við klukkustund eftir að þeir komu á strandstaðinn. Þykja Siglfirðingar hafa unnið hér mikið björgunarafrek. Nú í haust hefur sildar orðið vart við Vestmannaeyjar öðru hvoru og stundum hefur verið góð veiði hjá þeim fáu bátum, er síldveiðar liafa stundað i reknet. Svo virðist, sem síldveiði sé nú að hefjast aftur kringum Eyjar, en þeir fjórir bátar, sem eru með reknet, hafa fengið frá 70—100 tunnur eftir nóttina. öll síld, sem bátar frá Vestmannaeyjum hafa fengið nú í liaust, hefur verið fryst til beitu. • 27. /10. Fiskafli er nú svo tregur hjá þeim 12—15 bátum, sem fiska fyrir Iteykjavíkurbæ, að þeir full- nægja ekki neyzluþörf bæjarbúa. • 28. /10. 13. þing F. F. S. í. sett. Það slys vildi til á Djúpavík að lítill drengur drukknaði þar við bryggju. Hann hét Guðbjartur og var aðeins þriggja ára. 12. þing B. S. R. B. var sett í Reykjavík í dag. Síðastliðinn miðvikudag lenti stór Douglas-flugvél á hinn nýja flug- völl við Sauðárkrók. Var það flug- vél frá Flugfélagi íslands. Verða hafnar reglubundnar flugferðir þangað tvisvar í viku. 1 færeysku blaði frá 25. október segir að verð á saltfiski virðist fara hækkandi. Orsökin er talin sú, að aflamagn hafi orðið minna en búist hafði verið við. Gengisfelling sterl- ingspundsins hefur það líka í för með sér, að fiskur frá Nýfundna- landi er ekki eins samkeppnisfær á evrópskum markaði og hann var áður. Blaðið telur verðhækkun þessa á saltfiski einkar heppilega fyrir Dani, vegna fiskveiða þeirra við Grænland. Þá er skýrt frá því, að verið sé að afskipa 600 smálestum af saltfiski frá Færeyjum til Italíu, og 1000 tonn í viðbót verða send næstu daga, einnig til Italíu. Þjóðleikhússtjóri hefur fastráðið 14 leikara við Þjóðleikhúsið nýja. Þeir eru: Arndís Björnsdóttir, Har- aldur Björnsson, Herdís Þorvalds- dóttir, Hildur Kalman, Inga Þórð- ardóttir, Indriði Waage, Jón Aðils, Lárus Pálsson, Gestur Pálsson, Regína Þórðardóttir, Róbert Arn- finnsson, Valur Gíslason, Þóra Borg Einarsson, Ævar Kvaran. Þá hefur og Yngvi Thorkelsson verið ráðinn leiksviðsstjóri, en hann hefur starf- að í Bandaríkjunum í tuttugu ár, sem leikari, ljósameistari, leiksviðs- stjóri og leikstjóri. Lárus Ingólfs- son hefur verið ráðinn aðalleik- tjaldamálari og búningateiknari. Frú Iíristín Jóhannesdóttir er ráðin veitingastjóri og Sigurður Gröndal eftirlitsmaður í veitingasölum, Hallgrímur Backmann ljósameistari og Jón Þórarinsson ráðunautur um tónlist. 344 V í K I N □ U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.