Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1950, Blaðsíða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1950, Blaðsíða 6
 . gm t j jj i| íf • i i c Ib St- j /' frystiklefánum. sagði mér að byggð hefði verið brú yfir ein- hverja sprænu ofarlega í Skriðdal í sumar, og þessi smíði hefði kostað 250 þúsund krónur, en það versta við þetta væri það, að aðeins þrír bæir hefðu not af þessari brú, eða með öðrum orðum, að flutningur yfir brúna væri í mesta lagi yfir árið ca. 8—10 tonn. Ætli það hefði ekki borgað sig betur að færa bændurna um set, t. d. á eitthvert eyðibýli neðar í dalnum og spara þessa aura, eða byggja brú þar sem meiri þörf var fyrir hana. En svona er nú hreppa- pólitíkin, og bráðum tómur kassinn. Svona sagðist þessum kunningja mínum frá. Margar góðar tillögur komu frá síðasta þingi F.F.S.I., en mig furðar á því, að ekki skyldi hafa verið minnzt á hina miklu þörf fyrir talstöðvar á ýmsum höfnum kringum landið. Ég hef átt tal við marga formenn á fiskibátum og eru þeir mjög óánægðir með þetta framtaksleysi í talstöðvarmálinu, en það er nú svo, að talstöðvar eru víða til, en það má bara ekki nota þær, en hvers vegna? Það er t. d. talstöð á Djúpavogi, en hún kemur að litlu gagni, þegar ekki má snerta hana nema í viss- um tilfellum. Einnig er mér kunnugt um að talstöð er til á Raufarhöín, en hún er bara lokuð inni í pakkhúsi og ekki notuð nema á sumrin, og svona má lengi telja. Það sem við eigum að heimta er, að hafa talstöð á hverri höfn, það skapar mikið öryggi fyrir alla sjófarendur hér við land, fyrir utan þau þægindi, sem það skap- ar. Annars er ég hissa að Slysavarnafélagið skuli ekki hafa áhuga fyrir þessu máli. Að endingu vil ég minnast á eitt nauðsyn- legt mál, sem ég álít að þyrfti að hrinda í fram- kvæmd hið allra bráðasta og það er talb'rú á Hornafirði, þar á hún heima, en ekki á Seyðis- firði, eins og ég hef heyx-t að einhver hafi stung- ið upp á. Skilyrði eru þar afleit, aftur á móti prýðileg á Hornafirði. Þetta myndi vera til mikilla þæginda fyrir öll skip, sem sigla til útlanda, og eins strand- feroaskipin. Þá væri hægt að ná beinu sam- bandi við Reykjavík og Austfirði, jafnvel þó skipin væru langt á hafi úti. Gudm. Gialason. 6 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.