Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1950, Blaðsíða 29
sé krankt, og þá stórhættulegt, og ætti þar af
leiðandi ekki að hafa haffærisskírteini, en þessu
er áreiðanlega ekki þannig varið með nýju
„fossana", svo að þeir menn, sem láta þessa
skoðun í ljós, geta ekki haft mjög mikið til síns
máls.
Það er þá fyrst að benda á, að því hærri sem
yfirbygging skipsins er, þó að vissu marki, því
stöðugra er skipið. Vil ég í þessu sambandi
benda á m.s. „Bragi“ R E 250, því að þægilegra
vinnupláss mun vart finnast á sjó hér við land,
á sambærilegum fiskibát, en þilfarið á honum,
vegna þess hve stöðugur hann er. Þá sést einnig
af teikningunni, að aðalvél „fossanna“ er löng
og lág og virkar því þungi hennar neðar á skip-
in en ef um hærri vél væri að ræða, og vegur
þvi þyngra en ella á móti hærri yfirbyggingu.
Um orku vélanna er það eitt að segja, að hing-
að til hefur ekki þótt ástæða til að kvarta und-
an of mikilli orku í íslenzkum skipum, heldur
hið gqgnstæða.
Hvað burðarmagn skipanna snertir, þá er
það eðlilega minna en ef um venjuleg flutn-
ingaskip er að ræða, þar eð meira en helmingur
lestanna er einangraður til flutnings á frosn-
um matvælum, eða 7900 cu. ft. (grain) en lest-
ar nr. 1 og 4 eru 78000 cu. ft. (grain) og óein-
angraðar.
Aðalmál skipanna samkvæmt teikningu eru
þessi:
Lengd 290 ft.
Breidd 46 ft.
Djúprista 21 ft. og 3%, þuml. fullhlaðið, en
þá ber skipið 2675 tonn af vörum.
Aðalvélin er níu strokka, einvirk tvígengisvél,
2950 hemilhestöfl með 160 s. á mín. Strokkvíckl
er 500 mm. og slaglengd 900 mm.
Þrjár 120 kw. Ijósasamstæður framleiða raf-
magn fyrir skipið og tvær tveggja strokka
Sabroc kælipressur eru í vélarúminu fyrir kæli-
lestarnar.
Það á vafalaust margt eftir að koma í ljós,
með tíma og notkun, um gæði og galla þessara
skipa, sem annara, en það er þó víst, að í dag
er tekið eftir þeim, hvar sem þau sigla og koma,
og erlendis þykja þau bera vott um smekkvísi
og góða stjórn í hvívetna og vera landi og þjóð
og Eimskipafélagi Islands til sóma.
*
Ymislegt
Rússar hafa samið við Dani (B. W.) um
smíði á 13.500 smál. olíuskipi og fimm mótor-
skipum með kælitækjum.
•
The Socany-Vacuum Oil Co. selur olíur í
Oslermoor, nálægt Kiel-skurðinum á $ 16,83
fyrir Bunker C. kæliolíu og $ 25,19 fyrir diesel-
olíur.
•
John Lewis & Sons, Ltd., Aberdeen, eru að
byggja diesel-togara. Eigendurnir eru St.
Andrews Steam Fishing Co. Ltd., West Hartle-
pool Steam Navigation Co. Ltd. og J. Marr &
Son, Ltd.
Skipið er 190 feta langt og 32 feta breitt,
sjórými er um 1400 tonn fullhlaðið. Þriggja
strokka Doxford Diesel mótor knýr skipið, 1140
hemilhestöfl, snúningshraði 140 s. á mín. og
er þetta minnsti hreyfill, sem Doxford hefur
smíðað um margra ára skeið. Strokkvídd er 440
mm. og samanlögð slaglengd er 1440 mm. í
skipinu er Robertson togvinda með Hyland-
olíudrifi.
•
Technik und Wissenschaft heitir nýtt mán-
aðarrit, sem gefið er út i Kiel—Flensburg. Ritið
kostar 2,50 þýzk mörk, fyrir utan póstgjald,
frá Nicolaistrasse 7, Flensburg, Germany, Brit-
ish Zone.
Olíuverð á nokkrum þeirra staða, er íslenzk
skip sigla til:
Ketilolía Dieselolía
Antwerpen . . . . 91/6 133/-
Genoa 92/- 139/-
Hamborg 95/2 136/1
Hull 91/6 133/-
Liverpool 91/6 133/-
London 91/6 133/-
New York . . . . ... $1,90 $3,32
Gj aldmiðillinn, sem miðað er við, er sterlings-
pund pr. tonn, nema í New York, þar er miðað
við dollar pr. tunnu.
Frá Langcinesi.
V I K I N G U R
29