Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1950, Blaðsíða 32
S extugur:
Baldvm Halldórsson, skipstjóri
16. nóvember s.l. varð einn af okkar kunnustu
togaraskipstjórum, Baldvin Halldórsson, Aust-
urgötu 16, Hafnarfirði, sextugur. — Hann er
fæddur að Næfurholti á Rangárvöllum árið
1881, sonur hjónanna Halldórs Magnússonar
og Guðrúnar Baldvinsdóttur.
Baldvin byrjaði að stunda sjó árið 1907 og
þá á áraskipum, eins og svo margir þeirra sjó-
manna, sem eitthvað hafa komizt áfram á þeirri
braut. Hann var brautskráður frá Stýrimanna-
skólanum 1920 og varð fyrsti stýrimaður á tog-
ara 1924. Baldvin fékk fljótt orð á sig sem
dugandi sjómaður, enda valdizt hann brátt í
skiprúm hjá einhverjum nafntogaðasta skip-
stjóra hér við land á þeim árum, Þórarni 01-
geirssyni og varð stýrimaður á skipi hans.
Þessi skipstjóri, sem talinn var með þeim
fremstu hvað aflabrögð og alla sjómennsku
snertir, gat auðvitað valið úr togarasjómönn-
um á skip sitt. Þáð mun því engin tilviljun að
Baldvin varð hans hægri hönd um langt skeið.
Árið 1984 fékk Baldvin sjálfur skip til um-
ráða og hefur verið skipstjóri á togurum óslitið
síðan, með þeim árangri sem allir þekkja. Hann
er nú meðeigandi í þremur togurum í Hafnar-
firði, og sótti einn þeirra, þ. e. nýsköpunartog-
arann Bjarna riddara 1947 og var með það
skip þar til á síðastliðnu ári, að hann varð
framkvæmdarstjóri fyrir b.v. óla Garða. Bald-
vin er þó ekki alveg búinn að kveðja sjóinn, því
á afmælislaginn var hann með togarann Hauka-
nes á veiðum. Það gafst því engum vina hans
tækifæri til að hitta hann á þessum merku tíma-
mótum og mun Baldvin hafa verið því feginn,
því fáa menn þekki ég, sem eru frábitnari öll-
um hávaða en hann.
Ég var svo heppinn að kynnast þessum mæta
manni er hann sótti Bjarna riddai'a, og var í
þjónustu hans meðan hann stjórnaði því skipi,
cða á annað ár. Baldvin er nefnilega einn af
þeim mönnum, sem maður græðir á að kynnast.
Hann er einstakt prúðmenni við undirmenn
sína, skapfastur og ákveðinn. Eins og áður er
sagt, er Baldvin enginn hávaðamaður eða flysj-
ungur. Hann er einn af þeim, sem hafa unnið
32
störf sín í kyrrþey og er manna ófúsastur til
að láta bera á sér á nokkurn hátt.
Guð hefur verið örlátur við Baldvin. Auk
þess sem hann er þrekmaður likamlega, er hann
prýðilega gáfaður maður, vel lesinn og fróður
um marga fleiri hluti heldur en aflabrögð og
sjómennsku.
Ekki get ég hugsað mér að Baldvin eigi
nokkurn mann að óvini. Hitt er svo annað mál,
að hann er vandur að vali kunningja, en þeim
sem hann hefur einu sinni tekið, þar verður
engu haggað fyrir annarra tilstilli.
Baldvin er kvæntur Helgu Jónsdóttur, ætt-
aðri úr Reykjavík. Eiga þau fjögur uppkomin
börn, Ástu gifta Oddi Thorarensen lyfjafræð-
ingi, Halldór 2. stýrimann á b.v. Bjarna ridd-
ara, Jón loftskeytamann og Hafstein stud. jur.
Ég veit að Baldvin kann mér engar þakkir
fyrir þetta skrif. En það hefur það og engum
er kunnara en mér hversu þessi svipmynd, sem
ég hef reynt að draga hér upp, er ófullkomin
og ófullnægjandi. Ég óska svo Baldvini alls hins
bezta í framtíðinni og vona að hans megi lengi
við njóta.
M. Jensson.
VÍKINGUR