Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1950, Page 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1950, Page 12
Vélskóliim í Kaupmannahöfn Vísir að þessum skóla byrjaði sem námskeið í vélfræði í stýrimannaskólanum í Kaupmanna- höfn árið 1874. Auk þessara námskeiða var einnig hægt að fá kennsiu í vélfræði í einka- skólum, en þeir voru fjórir og fengu allir styrk frá ríkinu til sinnar starfsemi. Það kom fljótt í ljós að þetta fyrirkomulag á vélkennslunni var ekki heppilegt, hver skóli hafði sína kennsluaðferð og próf. Árið 1901 tók járniðnaðarmannafélagið að sér að starfrækja vélstjóraskóla og um svipað leyti byrjaði einnig vélstjórafélagið að starf- rækja skóla. Allhörð samkeppni var milli þessara skóla og skapaði hún ýmsa örðugleika og vandræði. Til að koma vélstjóramenntunni í fastar skorð- ur voru þessir skólar sameinaðir, það var 1. janúar 1906, og hlaut skólinn nafnið „Vélstjóra- mannastéttar, sem fyrr og síðar háðu stríð við fiskiveiðaatvinnu sína, sem oft var stunduð upp á líf og dauða við brimsundin á Eyrarbakka. Sigurður Þorsteinsson. skólinn í Kaupmannahöfn". Skólinn skyldi vera sjálfstæð stofnun. Stjórn skólans skipuðu full- trúar frá siglingamálaráðuneytinu, borgaiy stjórn Kaupmannahafnar, skipaeigendafélag- inu, járnbrautarmannafélaginu, vélstjórafélag- inu og kennurum skólans. Markmið skólans var að mennta vélstjóra, vélgæzlumenn og kynd- ara. Skólinn var til húsa á Nörrebrogade 5. Eftir að skólanum óx fiskur um hrygg, var þetta húsnæði algerlega ófullnægjandi, sérstak- lega hvað snerti véla- og tilraunasali. Árið 1941 var byrjað á skólabyggingu við Jagtvej, lóðina gaf borgarstjórn Kaupmanna- hafnar. 8. janúar 1943 var þessi bygging tekin í notkun og nafni skólans breytt og heitir nú „Vélskólinn í Kaupmannahöfn“ og er skólan- um nú einnig ætlað að sjá um menntun raf- virkja. Þetta nýja skólahús er sérstaklega vand- að og heppilegt til sinnar notkunar, enda byggt á 40 ára reynslu um rekstur vélskóla. Aðalbyggingin er fjögra hæða hús með kjall- ara, auk þess eru tvær útbyggingar, tveggja hæða, en í þessum útbyggingum eru raf- magnstilraunasalur, hátíðasalur og teiknistofa. 12 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.