Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1950, Side 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1950, Side 14
Rafmagnstilraunasalur, salur og- eldhús, kennai'aherbergi, skrifstofur skólastjóra og íbúð umsjónarmanns vélstjóra- deildar skólans. Inntökuskilyrði í vélskólann eru, að umsækjandi hafi eftir 14 ára aldur verið iðnnemi í vélaverkstæði í þrjú ár, þó mælir skólinn með því, að umsækjandi ljúki fjögra ára námi og sveinsprófi í vélsmíði, og gera flestir það. Hið almenna próf tekur eitt ár, skólinn starfar allt árið. Meðan iðnnámið stend- ur yfir, þarf neminn að stunda iðnskólanám, en ef hann ætlar sér að verða vélstjóri getur hann byrjað á kvöldskóla fyrir vélstjóra, eftir að hafa lokið tveggja bekkja námi í iðnskóla, og á þessum kvöldskóla getur hann tekið fyrri- hluta hins almenna vélstjóraprófs og svo hálft ár að því loknu á dagskóla og stytt þannig sitt vélstjóranám um hálft ár, og notfæra margir vélstjóranemar sér þetta. Hið aukna vélstjóra- próf (det udvidede maskinisteksamen) tekui* eitt ár. Samhliða náminu sér skólinn fyrir því að skoðaðar eru verksmiðjur og orkuver í borg- inni og skip, bæði innlend og útlend, sem liggja í höfninni. Til að öðlast vélstjóraskírteini, þarf neminn að hafa lokið smíðaprófi fyrir vélstjóra (hándværkspröven). Teknologisk lnstitut held- ur þessi próf að undangengnu námskeiði í þess- um efnum. Vinnuskilyrði á þessum námskeið- um eru þau, sömu sem í skipsvélarúmi. Þetta námskeið á að kenna mönnum að gera við og smíða vélahluti, án þess að hafa heilt vélaverk- stæði við hendina, námskeiðið stendur yfir í tíu daga. Rafmagnsdeild skólans. Rafvirkjapróf fyrir vélstjóra. Inntökuskilyrði eru að hafa lokið hinu almenna og aukna vélstjóraprófi eða hafa lokið hinu almenna prófi og unnið hjá löggilt- um rafvirkjameistara í eitt ár, námið tekur níu, mánuði, og að þessu námi loknu getur vél- stjóri orðið rafvirki, ef hann vill leggja þá atvinnugrein fyrir sig, eða vélstjóri í rafstöð. Rafvirkjanám. Til að geta orðið löggiltur rafvirki þarf að hafa próf frá þessari deild. Inntökuskilyrði eru að umsækjandi sé 20 ára, hafi verið nemi í 4 ár og lokið sveinsprófi í 14 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.