Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Blaðsíða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Blaðsíða 6
Mb. Bangsi, Í.S. 80, ferst Tveir menn drukkna Mb. Bangsi, í S 80, fór á sjó þann 15. janúar s.l. kl. 3 um morguninn. Línan var lögð um 16 sjómílur N til A frá Rit. Veður var gott fram- an af degi, norðaustan átt og lítilsháttar snjóél. Þegar leið á daginn tók veður að versna. Allt gekk þó vel þar til kl. 17, en þá brotnaði skrúfu- blað og eftir það lét báturinn ekki að stjórn. Var þá búið að draga 80 lóðir. Vindur var þá orðinn allhvass af norðaustri með mikilli snjó- komu. Þegar eftir bilunina var kallað á Maríu Júlíu, og með aðstoð togarans Austfirðings tókst að ná sambandi við Maríu og koma til hennar hjálparbeiðni. Þegar þetta skeði var staða skips- ins 15 sjómílur N til A frá Rit og voru segl dregin upp og reynt að kömast nær landi. Þá er María Júlía fékk hjálparbeiðnina var hún stödd á ísafjarðardjúpi og lagði þegar af stað til aðstoðar við mb. Bangsa. Veður fór hríðversnandi og um kl. 24,40, þegar María Júlía kom að mb. Bangsa, voru komin um 11 vindstig, brotsjór, stórhríð og náttmyrkur. Þá var staða mb. Bangsa 7 sjómílur í N af Rit. Skömmu áður en María Júlía kom á staðinn, fékk mb. Bangsi á sig brotsjó, sem skolaði öllu lauslegu fyrir borð, braut rúður og hurðir í stýrishúsi, einnig öll skjólborð annars vegar og hálffyllti bátinn af sjó. Þá kastaðist báturinn á hliðina, öll ljós slokknuðu, tvo menn tók út og sást ekkert til þeirra eftir það. Mennirnir, sem fórust, voru þessir: Magnús A. Jónsson, 2. vélstjóri, 35 ára. Læt- ur eftir sig tvö munaðarlaus börn og unnustu. Ólafur P. Steinsson, háseti, 25 ára, ókvæntur. Lætur eftir sig aldraða foreldra. , Meðan María Júlía var á leiðinni á slysstað- inn, hafði hún stöðugt talsamband við Bangsa og tók miðanir meðan talstöð hans var í lagi. Vegna veðurs og brotsjóa var ekki hægt að halda áfram með fullri ferð eftir að komið var út fyrir Rit. Ljósin á Bangsa sáust ekki fyrr en skömmu áður en komið var að honum, og sáu skipverjar á Maríu Júlíu þegar brotsjórinn reið yfir bátinn, og hurfu þá ljósin, eins og fyrr segir. Var Bangsa þá leitað með ljóskast- ara Maríu Júlíu; fannst hann aftur svo að segja samstundis. Sást þá hvernig umhorfs var um borð, og skipverjar á Bangsa tilkynntu að mikill sjór væri kominn í bátinn. Nú var ekki um annað að ræða en að reyna að ná mönnunum úr bátnum. — Skipstjórinn á Maríu Júlíu, Haraldur Björnsson, tók það ráð að leggja að bátnum til hlés og dæla olíu í sjóinn meðan á því stóð. Voru bjarghringir, línubyssa og annar björgunarútbúnaður hafður til taks meðan á þessu stóð, og áhöfn björgunarskipsins stóð á þilfarinu reiðubúinn til að aðstoða mennina af Bangsa. Tók björgunin örstutta stund. Rétt á eftir hvarf Bangsi út í bylinn og náttmyrkrið. Leitað var á slysstaðnum fram eftir kvöld- inu, en ekki sást annað en brak úr bátnum. Á leiðinni til lands var svo slæmt í sjóinn, að allt þar til komið var inn fyrir Rit var dælt út olíu til öryggis skipinu. Legið var undir Grænuhlíð þar til í birtingu næsta morgun, síðan haldið til ísafjarðar, og komið þangað kl. 10,30 f. h. Samkvæmt frásögn skipstjóranna á Maríu Júlíu og mb. Bangsa, hefði ekki mátt muna einni mínútu til þess að ekki hefði verið hægt að finna bátinn. VÍKINGURINN Um leiö og útgefendur Víkingsins óska kaup- endum farsæls nýs árs, vilja þeir minnast meö nokkrum orðum á framtíö blaösins. Eins og öllum er kunnugt, hefur verölag hækkaö mjög á síðastliðnu ári og útgáfukostn- aður blaðsins þar af leiðandi stóraukizt. Papp- írsverö hefur t. d. þrefaldast á rúmu ári. Nú um áramótin voru því aðeins tvær leiðir fyrir hendi, að minnka blaðið til muna og draga úr efnismagni þess eða hækka lítið eitt árgjaldið. Útgefendur hafa tekið síðan kostinn, að hælclca blaðið um 10 kr. árganginn, úr U0 kr. i 50 kr. Þessi hækkun var óhjákvæmileg, ef blaðið átti að halda i horfinu, og er þess að vænta, að kaupendur blaðsins taki henni með skilningi. Reynt verður að hafá Víkinginn svo fjöl- breyttan, að hinir mörgu lesendur hans megi allir finna þar fræðandi og skemmtilegt efni. 6 V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.