Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Side 6
Mb. Bangsi, Í.S. 80, ferst
Tveir menn drukkna
Mb. Bangsi, í S 80, fór á sjó þann 15. janúar
s.l. kl. 3 um morguninn. Línan var lögð um 16
sjómílur N til A frá Rit. Veður var gott fram-
an af degi, norðaustan átt og lítilsháttar snjóél.
Þegar leið á daginn tók veður að versna. Allt
gekk þó vel þar til kl. 17, en þá brotnaði skrúfu-
blað og eftir það lét báturinn ekki að stjórn.
Var þá búið að draga 80 lóðir. Vindur var þá
orðinn allhvass af norðaustri með mikilli snjó-
komu. Þegar eftir bilunina var kallað á Maríu
Júlíu, og með aðstoð togarans Austfirðings tókst
að ná sambandi við Maríu og koma til hennar
hjálparbeiðni. Þegar þetta skeði var staða skips-
ins 15 sjómílur N til A frá Rit og voru segl
dregin upp og reynt að kömast nær landi.
Þá er María Júlía fékk hjálparbeiðnina var
hún stödd á ísafjarðardjúpi og lagði þegar af
stað til aðstoðar við mb. Bangsa. Veður fór
hríðversnandi og um kl. 24,40, þegar María
Júlía kom að mb. Bangsa, voru komin um 11
vindstig, brotsjór, stórhríð og náttmyrkur. Þá
var staða mb. Bangsa 7 sjómílur í N af Rit.
Skömmu áður en María Júlía kom á staðinn,
fékk mb. Bangsi á sig brotsjó, sem skolaði öllu
lauslegu fyrir borð, braut rúður og hurðir í
stýrishúsi, einnig öll skjólborð annars vegar og
hálffyllti bátinn af sjó. Þá kastaðist báturinn
á hliðina, öll ljós slokknuðu, tvo menn tók út og
sást ekkert til þeirra eftir það. Mennirnir, sem
fórust, voru þessir:
Magnús A. Jónsson, 2. vélstjóri, 35 ára. Læt-
ur eftir sig tvö munaðarlaus börn og unnustu.
Ólafur P. Steinsson, háseti, 25 ára, ókvæntur.
Lætur eftir sig aldraða foreldra. ,
Meðan María Júlía var á leiðinni á slysstað-
inn, hafði hún stöðugt talsamband við Bangsa
og tók miðanir meðan talstöð hans var í lagi.
Vegna veðurs og brotsjóa var ekki hægt að
halda áfram með fullri ferð eftir að komið var
út fyrir Rit. Ljósin á Bangsa sáust ekki fyrr
en skömmu áður en komið var að honum, og
sáu skipverjar á Maríu Júlíu þegar brotsjórinn
reið yfir bátinn, og hurfu þá ljósin, eins og
fyrr segir. Var Bangsa þá leitað með ljóskast-
ara Maríu Júlíu; fannst hann aftur svo að segja
samstundis. Sást þá hvernig umhorfs var um
borð, og skipverjar á Bangsa tilkynntu að mikill
sjór væri kominn í bátinn. Nú var ekki um
annað að ræða en að reyna að ná mönnunum
úr bátnum. — Skipstjórinn á Maríu Júlíu,
Haraldur Björnsson, tók það ráð að leggja að
bátnum til hlés og dæla olíu í sjóinn meðan á
því stóð. Voru bjarghringir, línubyssa og annar
björgunarútbúnaður hafður til taks meðan á
þessu stóð, og áhöfn björgunarskipsins stóð á
þilfarinu reiðubúinn til að aðstoða mennina af
Bangsa. Tók björgunin örstutta stund. Rétt á
eftir hvarf Bangsi út í bylinn og náttmyrkrið.
Leitað var á slysstaðnum fram eftir kvöld-
inu, en ekki sást annað en brak úr bátnum. Á
leiðinni til lands var svo slæmt í sjóinn, að allt
þar til komið var inn fyrir Rit var dælt út olíu
til öryggis skipinu. Legið var undir Grænuhlíð
þar til í birtingu næsta morgun, síðan haldið
til ísafjarðar, og komið þangað kl. 10,30 f. h.
Samkvæmt frásögn skipstjóranna á Maríu
Júlíu og mb. Bangsa, hefði ekki mátt muna
einni mínútu til þess að ekki hefði verið hægt
að finna bátinn.
VÍKINGURINN
Um leiö og útgefendur Víkingsins óska kaup-
endum farsæls nýs árs, vilja þeir minnast meö
nokkrum orðum á framtíö blaösins.
Eins og öllum er kunnugt, hefur verölag
hækkaö mjög á síðastliðnu ári og útgáfukostn-
aður blaðsins þar af leiðandi stóraukizt. Papp-
írsverö hefur t. d. þrefaldast á rúmu ári. Nú
um áramótin voru því aðeins tvær leiðir fyrir
hendi, að minnka blaðið til muna og draga úr
efnismagni þess eða hækka lítið eitt árgjaldið.
Útgefendur hafa tekið síðan kostinn, að hælclca
blaðið um 10 kr. árganginn, úr U0 kr. i 50 kr.
Þessi hækkun var óhjákvæmileg, ef blaðið átti
að halda i horfinu, og er þess að vænta, að
kaupendur blaðsins taki henni með skilningi.
Reynt verður að hafá Víkinginn svo fjöl-
breyttan, að hinir mörgu lesendur hans megi
allir finna þar fræðandi og skemmtilegt efni.
6
V I K I N G U R