Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Blaðsíða 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Blaðsíða 36
2/11. ísland tekur þátt í skíða- keppninni á vetrar-olympíuleikjun- um Osló í vetur. — Akranesbátarn- ir hafa byssur til að verjast há- hyrningi. — Jökulfell á heimleið eftir misseris útivist. Kemur skipið frá Kúba og New York. • 6/11. Beinamjölsverksmiðja í Hornafirði senn fullbúin. — 3000 kr. var rænt af lasburða konu á götu í Reykjavík um hábjartan dag. 13/11. Drukkinn maður laminn í rot og rændur að nóttu til á götum Reykjavíkur. • 14/11. Aflamagn við Faxaflóa hef- ur minnkað um 20 af hundraði ár- lega í þrjú ár. — Bátarnir við Grandagarð í hættu vegna nætur- gesta, sem ganga þar um og ræna og rupla. — Hvergi betra að fiska en við Grænland, segir skipstjórinn á „Sólborg“. • 21/11. Akranesbátar byrja á línu. V.b. Svanur hefur fengið 8-10 lestir í róðri. — Últrastuttbylgjusamband við Vestmannaeyjar opnað í gær. — Saknað er Akureyrarflugvélar með tveimur mönnum. • 22/11. Austfirðingar fá ódýr kol frá Færeyjum. — Týndu flugmenn- iinir komnir til byggða. — Eim- skipafélag íslands hefur opnað nýja og smekklega farþegaafgreiðslu. • 23/11). Hafinn er undirbúningur að byggingu dvalarheimilis aldraðra sjómanna. — Veitingahúsið Báran á Akranesi brann til grunna í fyrri- nótt. — Vélbátur með djúpmælinga- tækjum og fisksjá keyptur til Eyja. Er liann keyptur frá Danmörku og fær nafnið Erlingur III. • 24/11. Togaraskipstjórar tala um þessar mundir um algjört fiskleysi. — Viðgerð er hafin á Hæringi. — Togarinn Neptúnus frá Reykja- vík fékk fullfermi við Grænland á 6 sólarhringum. — Lækkandi ísfisk- verð á brezkum markaði. • 28/11. Konungsbiskarinn, sem Is- lendingar fengu fyrir frammistöðu sína í samnorrænu sundkeppninni, er kominn og er hann geymdur fyrst um sinn á lögreglustöðinni. — Fiski- mjölsverksmiðja risin upp á Þingeyri. 29/11. 80 milljón úr mótvirðis- sjóði til virkjana og áburðarverk- smiðju. • 1/12. Vestmannaeyingar kaupa 3 fiskibáta frá Danmörku. — Fram- leiðsla rafgeyma hafin hér á landi. — Marshalláætlunar framlög til ís- lands nema tæpl. 360 millj. króna. Síðustu framlög nema alls 5,5 millj. króna. • 4/12. S. 1. S. hefur sagt sig úr Sambandi ísl. fiskframleiðenda. — Reykjafoss er lagður af stað heim. — Mannlaus vélbátur, Sleipnir, sekk- ur á höfninni í Neskaupstað. 5/12. Systurskipin Marz og Nep- túnus selja í tveim söluferðum fyrir rúm 27 þús. pund. Fóru á Græn- landsmið þegar aflatregðan byrjaði. • 11/12. Allmargir þýzkir sjómenn slasast og einn hefur farizt í stór- viðri er geisaði vestur á Halamið- um. — Forseti íslands er nýkominn heim og lætur mjög vel yfir heilsu sinni. — Leynifarþegi bjó um sig í jólatrjám á Gullfossi. — Háseti á Jörundi fellur fyrir borð. — Nýtt holdsveikitilfelli eftir 15 ár. — Fjór- ir Gullfossfarþegar í sótthreinsun vegna gin- og klaufaveikinnar. — Tveir bátar byrjaðir róðra í Kefla- vík. • 12/12. Bátaábyrgðarfélag Vest- mannaeyja endurgreiðir 25% ið- gjalda. • 13/12. Yfir 1000 iðnaðar- og verka- menn atvinnulausir í Reykjavík nú rétt fyrir jólin. — Póst- og síma- gjöld stórhækka um áramótin. — Knattspyrnuliðið á Gullfossi hlaut „Skipstjórabikarinn“. — Rekneta- veiðarnar eru hættar. 16/12. „Jólasveinninn á Islandi" hefur fengið á þriðja hundrað bréf. — Háseti á togaranum Fylki féll út- byrðis og drukknaði. • 20/10. Vinnuvettlingar með tvö- földu slitþoli framleiddir að vinnu- heimilinu að Reykjalundi. — Maður hverfur af vélbát í Reykjavíkurhöfn. — Hamborg gefur íslandi 10 smá- lestir af eplum. — Skipverji strýk- ur af Tröllafossi. • 22/12. Hvalveiðibátur slitnaði upp og rak upp við Kalastaði í Hvalfirði. — Útvegsmannafélag Reykjavikur vill fá fiskiðjuverið keypt eða leigt. — Bóluefni gegn gin- og klaufa- veiki komið til landsins. • 28/12. Endurskoðun fasteigna- matsins leiðir af sér mikla skatta- hækkun. — Askur og Bjarni riddari í stórviðri út af Hvarfi. — Háseti á Júlí drukknar. — Hvalur II dreg- inn út. — Vélbáturinn Sæfari frá Súðavík sekkur við Langeyrar- bryggju. — Bærinn í Málmey brenn- ur ofan af tveimur fjölskyldum með 10 börn. Fólkinu bjargað í land með vb. Skildi, þrátt fyrir stórviðri og slæma aðstöðu. • 29/12. Mann tók út af togaranum Pétri Halldórssyni. — Viðskipta- samningur undirritaður milli íslands og Frakklands. — ískyggilegt fisk- leysi á miðum togaranna. • 30/12. Togarar Akurnesinga látnir vera heima um jólin. — Fleiri bátar á vertíðinni suðvestanlands en und- anfarið. — 77 Islendingar létust af slysförum á árinu, sem nú er að Iíða, 88 var bjargað úr bráðum háska. 36 V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.