Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Blaðsíða 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Blaðsíða 47
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR Útgefandi: Farmanno og fiskimannasamband fslands. Ritstj. og ábyrgðarm.: Gila Guðmundsson. Ritnefnd: Júlíus Kr. Ólafsson, Henry Hálfdansson, Magnús Jensson, Halldór Jónsson, Sveinn Þorsteinsson, Birgir Thoroddsen, Theódór Gíslason. — Blaðið kemur út einu sinni í mánuði, og kostar árgang- urinn 50 krónur. Ritstjóm og afgreiðsla er í Fiskhöllinni, Reykjavík. Utanáskrift: „Víkingur", pósthólf 425, — Reykjavík. Sími 565S. Prentað í ísafoldarprentsmiðju h.f. hafi slysunum og leggi síðan fram tillögur til ríkis- stjórnarinnar um að draga úr slysahættu á skipum. Nefnd þessi sé þannig skipuð: Einn maður tilnefndur af F.F.S.Í., einn af A.S.Í. og einn af ríkisstjórninni, og sé hann formaður nefndarinnar. Nefndin kynni sér jafnframt þær reglur, sem gilda um þessi efni hjá öðrum þjóðum, t. d. Board og Trade. Slysa- og dánarbœtur. 15. þing F.F.S.Í. leyfir sér að skora á Alþingi það, er nú situr, að ákveða að greidd skuli full vísitala á slysa- og dánarbætur, en bæturnar ekki miðaðar við vísitöluna 300 stig, eins og nú á sér stað. Þá vill þingið leggja áherzlu á að bætt verði úr því ranglæti, að ó- kvæntur maður, sem ekki hefur foreldra eða aðra á framfæri sínu, falli alveg óbættur. Leggur þingið eindregið til að þessi liður verði sam- ræmdur við aðra liði með fullum bótum-. Hafnarmál. 15. þing F.F.S.Í. leyfir sér að skora mjög eindregið á Alþingi það, er nú situr, að veita á næstu fjárlögum fé til þess að ijúka við hið nauðsynlegasta, sem gera þarf til þess að hin merkilega tilraun með nýja höfn á Patreksfirði geti komið að fullum notum fyrir skip af öllum stærðum, sem eru í eigu íslendinga, og í öllu veðri. í öðru lagi, að undinn verði bráður bugur að því að dýpka Sundið á ísafirði og gera innsiglinguna beina. Skorar þingið á Alþingi og ríkisstjórn að veita sér- staka fjárhæð til þessa. Aðstoð við fiskibáta. 15. þing F.F.S.Í. skorar á Alþingi að breyta lögum Samábyrgðar íslands á þá lund, að réttlát greiðsla verði ákveðin fyrir veitta aðstoð, þegar bátar bila á hafi úti, og þeim ei^veitt aðstoð og dregnir að landi. V. % Frá F.F.S.Í. IJtför forseta íslands Sjómannastéttinni ekki boðið að eiga bar fulltrúa. Útför forseta íslands, herra Sveins Björnssonar, fór fram laugardaginn 2. febrúar. Útfararathöfnin var látlaus en mjög virðuleg. Var útförin vafalaust hin fjölmennasta, sem sézt hefur hér á Iandi. Þús- undir manna stóðu hljóðar og alvarlegar við götur þær, sem líkfylgdin fór um og á Austurvelli var afarmikill manngrúi. Aðrir landsmenn flestir munu hafa setið við útvarpstæki sín og hlýtt á athöfnina. Þjóðin öll kvaddi hinn ástsæla forseta sinn hinztu kveðju. Hún fann, að landið átti eigi aðeins á bak að sjá hinum fyrsta innlenda þjóðhöfðingja, heldur persónuleika, sem veirið hafði sameiningartákn þessarar sundurlyndu og deilugjörnu þjóðar. Hér var því margs að minnast og mikils að sakna. Ein var þó sú ráðstöfun ríkisstjórnarinnar, sem sá um útförina, er vakti furðu margra. Úr Alþingishúsinu og að kirkjudyrum báru kistu forseta forvígismenn nokkurra helztu stétta og starfsgreina þjóðfélagsins: forseti Alþýðusambands Islands, formaður Vinnuveitendasambands íslands, búnaðarmálastjóri, formaður Verzlunarráðs ís- lands, formaður Sambands íslenzkra samvinnufé- laga, forseti Landssambands iðnaðarmanna og for- maður Landssambands íslenzkra útvegsmanna. — Hins vegar hafði ríkisstjórnin ekki séð neina á- stæðu til, að þar væri neinn fulltrúi íslenzkrar sjómannastéttar. Má þó hiklaust fullyrða, að sú lítilsvirðing á íslenzkum sjómönnum og samtökum þeirra, sem í þessu fólst, hafi sízt af öllu verið í anda hins látna forseta. Herra Sveinn Björnsson sýndi það hvað eftir annað, bæði í ræðu og at- höfn, að hann kunni mjög vel að meta íslenzka sjómannastétt og störf hennar. Er liægt að vitna í mörg ummæli hans því til sönnunar. Það var því í alla staði furðuleg ráðstöfun, að sniðganga sjó- mannastéttina og gefa henni ekki kost á að votta minningu hins látna forseta virðingu á sama hátt og öðrum starfsstéttum. Stjórn F.F.S.l. hefur sent forsætisráðherra mót- mæli gegn þessari ráðstöfun. Myndin á forsíðu. Forsí&umynd, Víkingsins aJð þessu sinni er af skipum á Reykjavikurhöfn Ijósum prýddum si&astli&i& gamlárskvöld. — Myndina tók Viggó Maack, skipaverkfræöingur. 47

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.