Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Side 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Side 7
Júlíus Havsteen, sýslumaður: SAMNINGURINN 24. júní 1901 (Grein þessi er í aðalatriðum samdráttur úr framsöguræðu höfundar í landhelgismálunum á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins 4. nóvember s.l. og útvarpserindi hans um sama efni 11. nóv.). * I þessu erindi er tekinn til athugunar samn- ingurinn milli Danmerkur og Bretlands frá 24. júní 1901, um tilhögun á fiskiveiðum þegna hvors þeirra fyrir utan landhelgi á hafinu um- hverfis Færeyjar og Island, og leitast við að skýra í stórum dráttum tildrög hans, afleiðing- ar og uppsögn. Tildrögin. Konungsúrskurðurinn 22. febrúar 1812. Með konungsúrskurði 22. febrúar 1812 eru sett fyrirmæli um það í Danmörku og Noregi, aö landhelgi þessara landa skuli talin ein dönsk míla e'ða U sjómílur frá yztu eyjum eöa hólmum viö landiö. í bréfi rentukammersins 19. marz 1836, seg- ir, að „innan einnar danskrar mílu frá strönd- um landsins sé útlendum skipum bannað að stunda veiðar“, og sams konar fyrirmæli gefur flotamálaráðuneytið varðskipsforingjum sínum bæði 1850 og 1859. Hvernig fyrirmæli þessi beri að skilja og yfirleitt konungsúrskurðinn 22. febrúar 1812, kemur svo glöggt og ótvírætt fram í hinu merka bréfi dómsmálastjórnarinnar til utanríki&stjórn- arinnar um fiskveiðar útlendra manna við ís- land, dags. 18. apríl 1859, að ekki verður um deilt, en þar segir í niðurlagi bréfsins svo: „Á hinn bóginn virðist það vera ákjósanlegt, að fengist geti stööug og óraskanleg regla, er farið væri eftir í þessu efni (þ. e. um stærð landhelg- innar). Eftir bréfum þeim, er fyrrum fóru milli rentukammersins og stjórnardeildar hinna út- lendu mála um þetta (sbr. bréf stjórnardeild- arinnar 11. desember 1833), virðist sem það muni vera samkvæmt almennri skoöun um yfir- ráö yfir sjónum, að takmörkin séu ákveðin á þann hátt, sem um er rætt í konungsúrskuröi 22. febrúar 1812, en þar er til tekin einnar VÍKINGUR mílu fjarlægö frá yztu ey eöa hólma viö landiö, sem stendur upp úr sjó. Þess vegna mælist dómsmálastjórnin til þess, að utanríkisstjórnin hlutist til um það við stjórnir hinna útlendu ríkja, þær er hlut eiga að máli, aö útlendum fiskimönnum veröi boöiö að halda sig fyrir utan þetta sviö, og er þaö sjálfsagt, aö þeim ekki heldur er heimilt aö fara til fiskiveiöa inn í firöi og flóa viö landiö. Bæri þá um leið að gefa þeim til vitundar, að ef þeir fara inn á þetta svið, megi þeir búast við því, að farið verði með þá samkv. hinum konunglegu tilskip- unum, einkum tilsk. 13. júní 1787“. I þessari síðast nefndu tilskipun var lagt fullt bann við, að skip útlendra þjóða kæmu inn í firði, flóa og hafnir landsins, nema þau væru nauðstödd; skyldu skipin vera upptæk, ef á móti væri brotið. Þetta merka bréf dómsmálastjórnarinnar frá 18. apríl 1859, sýnir okkur og sannar: ]. Að með konungsúrskurðinum 22. febrúar 1812 er „sett stööug og óraskanleg regla“, er farið verði eftir“, um stærð hinnar dönsku, íslenzku og norsku landhelgi. 2. Að landhelgin er tiltekin einnar mílu fjar- lægð frá yztu ey eður hólma við landið, sem stendur upp úr sjó, þ. e. bein lína, sem er 4 mílufjórðungar í haf út, reilmuð frá línu landsodda eða yztu skerja í milli. 3. Að allir firðir og flóar eru innan land- helgi og lokaðir útlendingum til fiskiveiða. Nú skyldi maður halda, að þessi fyrirmæli, um stærð hinnar íslenzku landhelgi, hefðu feng- ið að vera óáreitt af útlendum þjóðum, ekki víð- tækari en þau eru, en það er öðru nær en að svo hafi verið. Andstaða Breta. Eins og Bretar voru fyrstir allra útlendra þjóða til þess að senda duggur sínar til fisk- veiða á hin íslenzku mið, í byrjun 15. aldar, eins voru þeir fyrstir allra til þess að mót- mæla og hafa að engu fyrirmælin um stærð hinnar íslenzku landhelgi samkvæmt konungs- 7

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.