Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Qupperneq 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Qupperneq 10
Hrakningssaga mb. Sigrúnar frá Akranesi Skrdð af Hallfreði Guðmundssyni, eftir frásögn skipstjórans Að kvöldi hins 4. janúar s.l. var veðurútlit fremur ískyggilegt, veðurspá hafði verið óhag- stæð allan daginn. Um kvöldið kl. 10 spáði þó veðurstofan, að ekki myndi hvessa fyrr en upp úr hádegi dag- inn eftir, og þá af suðaustri, en sú veðurátt er ekki talin hættuleg góðum bátum í norðanverð- um Faxaflóa. Það varð því úr, að fjórir bátar réru frá Akranesi þetta kvöld. Meðal þeirra var mb. Sig- rún, A K 71, og verður sagt hér frá sjóferð þessari, þar eð hún varð allviðburðarík. Sigrún lagði af stað í þennan róður kl. 12 á miðnætti. Var þá vindur suðaustan kaldi, 4-5 vindstig. Haldið var út í norðvestur. Þegar stím- að hafði verið í 24 sjómílur var línan lögð í sömu stefnu; var þá vindur orðinn allhvass af suðaustan, og var þá þegar sjáanlegt, að veður myndi versna fyrr en menn höfðu búizt við. Er ljósbaujan var látin út, sogaðist færið undir bátinn og lenti í skrúfunni; varð að skera á færið og halda að næstu ljósbauju, og var andæft við hana til kl. 8 um morguninn. Var þá komið suðaustan stórviðri. Gekk því afar og landgrunnið við fsland helgað landsins börn- um. En til þess að þetta verði, þurfa stjórnar- völdin nefndu að vita það og finna, að þau hafa að baki sér í þessu mikla velferðarmáli einhuga þjóð, sem veit í því sitt hlutverk. Eins og 17. júní 1944 var stór stund í sjálf- stæðisbaráttu íslenzku þjóðarinnar, eins verður sú stund stór í landhelgisbaráttunni, þegar settu marki er náð. Það verður sjálfsagt enginn hægðarleikur, og reyna mun sá róður á þolrifin, en þá skulum við muna, að æðri hugsjón fylgir meira átak og þeim mun stærri sigur. Göngum nú sem fyrr, þegar mikið liggur við, einhuga og vongóðir saman til sigurs. Pt. Reykjavík, 1. nóvember 1951. Júl. Havsteen. seint að ná inn línunni. Þegar dregin höfðu verið tvö bjóð, reið brotsjór framan yfir bát- inn. Tveir menn, er á dekki voru, Gunnar Jör- undsson 1. vélstjóri og. Trausti Jónsson háseti, lentu í sjónum og urðu fyrir innvortis meiðsl- um. Sá nú ekki orðið út fyrir borðstokkinn fyrir veðurofsa og sjóroki; var vindur nú genginn til suðausturs og sjór farinn að aukast. Var því ekki um annað að ræða en reyna að ná landi sem fyrst. Var skipinu slegið skáhallt undan veðri og haldið til Akraness. Er siglt hafði í 20 mínútur hóf stórsjór bát- inn á loft og kastaði honum niður á bakborðs- kinnung af því feiknaafli, að ekkert var upp úr nema stjórnborðssíða. Stýrishús og skipstjóra- herbergi fylltist af sjó, allir gluggar brotnuðu úr brúnni, bakbqrðslunning og ellefu styttur, ásamt skjólborði, sópaðist burtu. Anker, sem komið var fyrir fram á, kastaðist fyrir borð, ásamt vírrúllu, sem boltuð var í dekk- ið að framan. Bjóð, lífbátur, ásamt öllu lauslegu, sópaðist fyrir borð. Þykkt járngólf, sem er í vélarúmi, kastaðist upp og yfir vélina, út til bakborðs. Allt fór í einn hrærigraut í háseta- klefa, rúmbotnar, sængurföt, eldhúsáhöld og allt, sem losnað gat. Skipstjóri var einn í stýrishúsi og stóð hann í hlið stýrishússins, en fór á kaf í sjó. Skipið rétti sig hægt og hægt, þar til það kom svo að segja á réttan kjöl. — 2. vélamaður, Kristján Fredrekssen, var á leið aftur skipið, er sjórinn reið undir og hóf það á loft. Hann komst í stigann, sem liggur stjórnborðsmegin upp í brúna, og hélt sér þar, því þeim megin kom enginn sjór á skipið. Taldi skipstjóri ekki fært að halda lengur áfram í því ástandi, sem skipið var, enginn leki kom þó að skipinu, nema lítilsháttar með lunningastyttum þeim, er brotnuðú. Var skip- inu snúið upp í og haldið vest til suðvest. Var nú haldið upp í alla nóttina, og gekk allt eftir vonum. Ekki gátu skipverjar kveikt upp eld, þar eð reykrörið fór í fyrsta sjónum, og allt var brot- VÍKINGUR 10

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.