Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Side 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Side 12
stoðar bjorgunarskipsins; svo var þá dimmt af roki og byl, og foráttubrim. Enginn veit, nema sá er reynir, hversu marg- háttaður styrkur mönnum er að því undir slík- Guðmundur Jónsson, skipstjóri á „Sigrúnu". um kringumstæðum og hér voru, að hitta fyrir skip með öruggum, útréttum höndum til hjálp- ar, ef með þarf. Er vonandi, að íslenzka þjóð- in beri gæfu til að eignast fleiri skip sem „Þór“ og fleiri álíka skipshafnir. Hér lýkur frásögn skipstjóra. * Þessi frásögn þarf ekki skýringar við. Allir þeir, er hér voru að verki, hafa sýnt afburða þrek og dugnað, og þá sérstaklega skipstjórinn, sem ekki vék úr stýris- húsi í 22 klst., en um nóttina hvíldi stýrimaður hann við stýrið við og við. Munu hendur hans þá hafa verið farnar að stirðna af kulda, enda ekki að furða, þar sem hann var rennvotur frá hvirfli til ilja. Enginn sá skipstjóra brugðið, er að landi kom. Sama festan, hægð- in og rólegheitin, sem einkenna öll mikilmenni — þegar á þau reynir. Hallfreður Guðmundsson. * Mb. Sigrún, A K 71, er byggð í Strandby í Dan- mörku árið 1946, 65 tonn að stærð. Eigandi: Sigurður Hallbjarnarson h.f., Akranesi. Áhöfn í þessum róðri voru þessir menn: Guðmundur Jónsson, skipstjóri, Akranesi. Þórður Sigurðsson, stýrimaður, Akranesi. Gunnar Jörundsson, 1. vélstjóri. Akranesi. Kristján Fredrekssen, 2. vélstjóri, Akranesi. Ásgeir Ásgeirsson, matsveinn, Akranesi. Trausti Jónsson, háseti, Akranesi. M.S. REYKJAFOSS Hér fer á eftir stutt lýsing á hinu nýkeypta og myndarlega flutningaskipi Eimskipafélags íslands, er hlotið hefur nafnið „Reykjafoss“. Skipið er smíðað í Toranto á Ítalíu 1947, eftir hæstu kröfum Registro Italiana flokkunarfé- lagsins, og hét „Gemito“ áður en það kom í eigu H.f. Eimskipafélags Islands 13. september 1951. Skipið er byggt sem opið „shelterdekk“ skip, en hefur þó nægan styrkleika til þessað sigla sem lokað „shelterdekk“. Til samanburðar má geta þess, að skipið er 2.500 D. W. tonn sem opið, og 3.000 D. W. tonn sem lokað „shelterdekk" skip. Annars eru stærðir skipsins sem hér segir: Mesta lengd ... 297'11" eða 90,80 m. Lengd á milli lóðlína ... ... 270' 4" eða 82,40 — Breidd eða 12,62 — Djúprista sem opið . .. . .. . 17' 5" eða 5,31 — Brúttó tonn um .. . 1600 Nettó tonn um ... 795 Deadweight tonn ... 2500 Aðalvél skipsins er dieselvél frá Franco Tosi í Legnano á Ítalíu. Vélin er 6 strokka einvirk, tvígengis, þverhaus-vél, sem „indicerar" 1790 hestöfl á 125 snún./mín. Skipið hefur 4 stórar lúgur, 10 bómur og 10 gufudrifin spil. Skipið fór til flokkunarviðgerðar í Hamborg í október 1951, þar sem margs konar breyting- ar voru gerðar. Tvær MAN-dieselvélar með rafölum voru settar niður í skipið. Allar dælur voru endurnýjaðar og eru nú rafdrifnar, en voru áður gufudrifnar. Áður voru 3 fjögra manna herbergi, 3 tveggja manna og 8 eins manns her- bergi í skipinu, en nú eru allt eins og tveggja manna herbergi. Farþegaherbergi eru engin. Skipið er útbúið öllum nýjustu tækjum, svo sem: radar, gyrokompás, sjálfstýringu, miðun- arstöð og bergmálsdýptarmæli. Skipstjóri er Sigmundur Sigmundsson. £tnœiki Barnfóstran; kemur inn með írafári: — Drottinn minn, barnið er horfið. Móðirin: — Hvað er að heyra þetta! Bamfóstran: — Ég stóð svolitla stund héma niðri á horninu, og allt í einu var bamið horfið. Móðirin: — Því í ósköpunum leitaðir þú ekki til lög- regluþjóns? Barnfóstran: — Nú, ég var hjá einum allan tímann. J 12 VIKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.