Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Page 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Page 24
..irrt-w** f"'-.------------------ ,ó -V'i: ' " '■ -■■ .A... '■'■;■• ^ . .<»S* ■'• SSSMÉM *> -■'< ®!W Frrí Grœnlandi. Henry A. Hdlfdansson: Réttindi íslendinga til Grœnlands Útvarpsráð hefur ekki viljað leyfa flutning á grein þessari, sem hér birtist, þó að stjórn Far- manna- og fiskimannasambands íslands hafi ósk- að þess, eftir að höfundurinn hafði flutt erindið á nýafstöðnu þingi sambandsins, þar sem gerður var að því mjög góður rómur og þess eindregið óskað af þingfulltrúunum, að það yrði flutt í út- varpinu. Fyrirspurn frá stjórn F.F.S.Í. um það, á hverju útvarpsráð byggi þessa synjun sína, hef- ur ennþá ekki fengizt svarað. Erindi þetta er upphaflega samið að ósk stjórn- ar F.F.S.Í., til stuðnings frumvarpi því, sem hr. alþingismaður Pétur Ottesen, hefur reynt að fá framgengt á Alþingi um það, að ríkisstjórnin hefjist nú strax handa um að fá viðurkenndan rétt íslendinga til Grænlands — til að tryggja fiskveiða- og atvinnuréttindi íslendinga í Græn- landi. Skeytingaleysi það, og jafnvel fyrirlitning, sem alltof margir íslendingar hafa sýnt þessum rétt- indakröfum og minningunni um landnám íslend- inga í Grænlandi og þær 16 kynslóðir afkomenda þeirra er þar börðust fyrir tilveru sinni og ís- lenzkri menningu, endurspeglast ekki hvað sízt í þessari furðulegu afstöðu útvarpsráðs. Hinir sömu virðast svo geta átt það til að blása sig út af vandlætingu yfir því, að Danir skuli ekki skila handritunum íslenzku. Þvennóðska Dana í handritamálinu sýnir ekk- ert annað en skilningsleysi þeirra og vanþakk- læti þeirra gagnvart fyrrverandi sambandsþjóð, er ávallt var meira veitandi en þiggjandi í sam- skiptum við þá og sem þeir eiga það að þákka, að saga þeirra og annarra norrænna þjóða var i'ituð á þeirra fornu tungu og varðveitt hér við vonda aðstöðu í slæmum híbýlum í margar aldir á meðan þeir sjálfir reyndu eftir megni að kúga úr þjóðinni allan mátt. Höfuðröksemd Dana gegn því að skila hand- ritunum, þá, að íslendingar hafi aldrei af neinni alvöru haldið því fram, að þeim bæri lagalegur réttur til handritanna, ætti að verða okkur nægi- leg viðvörun til að láta ekki Dani hafa ástæðu til sömu afsökunar gagnvart réttindum íslendinga til Grænlands og treysta ekki á réttlætiskennd þeirra í neinu. 24 V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.