Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Qupperneq 31
Samningur
um framkvœmd vissra atriða ■ núgildandi samningum félags íslenzkra
botnvörpuskipaeigenda við stéttarfélög yfirmanna á botnvörpuskipum
I. Gildistökutími viöbótaraflaverölauna
af lýsi.
Með tilvísun til 10. og 11. gr. í Ægissamn-
ingi og 13. og 14. gr. í vélstjórasamningi, semja
undirritaðir aðilar svo um, að félagar F.Í.B.
skuli, frá og með 1. apríl 1951, greiða afla-
verðlaun í samræmi við breytt lýsisverð, ef verð
á lýsi fyrir ákveðið tímabil, samkvæmt útreikn-
ingi Hagstofunnar, er a. m. k. 10% hærra eða
lægra en grunnlýsisverð (3.100 kr.) samkvæmt
viðkomandi samningum. Vísast í þessu sam-
bandi til nefndarsamþykktar dags. 8. desember
1951, og til breytingar á henni, dags. í dag, þar
sem kveðið er á um aðferðina við útreikning
á lýsisverði og um tilhögun á greiðslu aflaverð-
launa.
Undirritaðir fulltrúar F.Í.B. lýsa hér með
yfir því, að botnvörpuskipaeigendum ber að
greiða, frá og með 1. apríl 1951, aflaverðlaun
af viðbót við samningsbundið grunn-lýsisverð
samkvæmt útreikningi Hagstofunnar, sem til-
kynntur var hlutaðeigandi aðilum með bréfi 14.
desember 1951. Greiðast viðbótar-aflaverðlaun
þessi af lýsi lönduðu á eftirtöldum tímabilum
og nemur hækkun lýsisverðs sem hér segir í
hundraðshluta af grunnverði lýsis samkvæmt
samningum, sem er 3.100 kr. fyrir smálest af
lýsi nr. I. og II. og 400 kr. fyrir smálest af
lýsi nr. III. og lakara:
Viðbót við
1951 grunn4ýsisverð
1. apríl-31. maí .................... 37,83%
1. júní-31. ágúst ................... 36,84%
1. september-30. nóvember ........... 14,87%
Samkvæmt viðbótarsamkomulagi, dags. í dag,
skulu viðbótara'flaverðlaun á tímabilinu des-
ember 1951 til febrúar 1952 miðast við sömu
hækkun lýsisverðs og gilti næstu 3 mánuði á
undan, þ. e. a. s. 14,87% hækkun frá grunn-
lýsisverði. Að öðru leyti vísast hér til nýnefnds
viðbótarsamkomulags við nefndarsamþykkt
dags. 8. desember 1951.
Undirritaðir fulltrúar F.Í.B. heita því hér
með fyrir hönd togaraeigenda innan félagsins,
að þegar verði hafizt handa um fullnaðar-
greiðslu samningsbundinna aflaverðlauna af
lýsi lönduðu á árinu 1951, í samræmi við við-
komandi kjarasamninga og þetta samkomulag.
II. Útreikningur aflaverölauna af saltfiski,
sam landaö er í erlendri höfn.
Undirritaðir aðilar eru sammála um, að á
meðan núverandi kjarasamningar eru í gildi,
beri að miða aflaverðlaun yfirmanna á togur-
um af saltfiski, sem togarar landa í erlendri
höfn, við heildarverð fisksins erlendis, að frá-
dregnum 20%, án tillits til þess, hvort tollur
er greiddur af fiskinum eða ekki eða hve hár
tollur er greiddur, og hvernig svo sem sölu
fisksins er háttað.
„Heildarverð“ saltfisks merkir í samkomu-
lagi þessu það verð, sem fiskurinn er kominn
í þegar honum hefur verið skipað á land erlend-
is, að meðtöldum löndunarkostnaði, sölukostn-
aði og tollum á hverjum stað, svo og að með-
töldum útflutningsgjöldum.
Samkomulag þetta gildir við útreikning á
aflaverðlaunum af öllum saltfiski, sem togarar
landa erlendis frá gildistöku kjarasamninga
þeirra, sem hér um ræðir, og þar til þeir falla
niður.
Undirritaðir fulltrúar F.Í.B. heita því hér
með fyrir hönd togaraeigenda innan félagsins,
að aflaverðlaun, sem yfirmenn á togurum eiga
nú inni vegna öðruvísi framkvæmdar á greiðslu
aflaverðlauna af saltfiski heldur en samkomu-
lag þetta mælir fyrir um, verði greidd að fullu
strax og upplýsingar eru fyrir hendi erlendis
frá um viðkomandi útgjöld, enda verði öflun
þeirra upplýsinga hraðað eins og kostur er á.
Undirritaðir fulltrúar Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands undirskrifa samkomu-
lag þetta í umboði eftirtalinna stéttarfélaga:
Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Ægir, Vél-
stjórafélags Islands, Skipstjóra- og stýrimanna-
félagsins Aldan og Félags íslenzkra loftskeyta-
manna.
Reykjavík, 22. janúar 1952.
F. h. Farmanna- og fiski- F. h. Félag-s ísl. botn-
mannasambands íslands: vörpuskipaeigenda:
Guðmundur Jensson. Hafsteinn Bergþórsson.
Sigurjón Einarsson. Tryggvi Ofeigsson.
’VIKINGUR
31