Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Side 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Side 46
Frá þingi F.F.S.Í. 15. þing F.F.S.Í. var háð í Reykjavík dagana 12.-16. nóvember 1951. Fara hér á eftir nokkrar af samþykkt- um þingsins, en framhald verður í næstu blöðum. Síldarverksmiðjur ríkisins. 15. þing F.F.S.Í. endurtekur fyrri kröfur sinar um að stjórn Síldarverksmiðja ríkisins verði skipuð þannig: Að F.F.S.Í. skipi einn mann í stjórnina. Lítur þingið svo á að ekki geti vanzlalaust talizt, að þessu stóra fyrirtæki sjávarútvegsins verði áframhaldandi eingöngu stjórnað af fulltrúum hinna pólitísku flokka þjóðar- innar, en þeir aðilar, sem raunverulega bera fyrirtækið uppi, fái þar engu um að ráða. Jafnframt verði hrásíldarverð framvegis ákveðið í fullu samráði við verðlagsráð sjávarútvegsins, eins og undanfarið hefur átt sér stað hjá Síldarútvegsnefnd. Þá skorar þingið á stjórn Síldarverksmiðja ríkisins og aðra stjórnendur síldarverksmiðja í landinu, að öll síld verði framvegis vegin upp úr skipi, en ekki mæld. Síldarflug og síldarleit. 15. þing F.F.S.Í. álítur nauðsynlegt að unnið verði að því, að skip sé sett til þess yfir síldveiðitímabilið, að annast athuganir í þágu síldveiðanna, er starfi í nánu sambandi við síldveiðiflotann og veiti honum allar þær upplýsingar á veiðitímabilinu, sem auðið er, á líka lund og fiskirannsóknarskipið G. 0. Sars gerir fyrir norska síldveiðiflotann. Veiðitilraunir. 15. þing F.F.S.Í. skorar á sjávarútvegsmálaráðherra, að hann láti nú þegar hefja áframhaldandi tilraunir með veiði síldar og annarra fiskitegunda í flotvörpu. Þingið telur fyllstu nauðsyn á að haldið sé áfram með nýjar veiðitilraunir. Stjórn þessara tilrauna sé á vegum þriggja manna nefndar, sem í eiga sæti fiskifræðingur og tveir valin- kunnir fiskimenn. Nefndin starfi í samráði við Fiski- málasjóð. Landhelgismál. Þar sem kunnugt er að ríkisstjórn íslands hefur tekið þá ákvörðun, að uppsögn brezka landhelgissamningsins frá 1901 skuli ekki taka gildi fyrr en dómur er fallinn fyrir alþjóðadómstólnum í Haag, í landhelgisdeilu Breta og Norðmanna, leyfir 15. þing F.F.S.Í. sér að mótmæla eindregið þessari ákvörðun, og krefst þess að útlendir fiskimenn séu ekki látnir njóta meiri réttar við strendur landsins en íslendingar sjálfir og alls ekki lengur en þar til dómurinn fellur í Haag, hvernig sem hann kann að hljóða. Allar þjóðir eiga að hafa leyfi til þess að lifa í friði fyrir ágengni annarra þjóða. Lífið er hverri þjóð helgur réttur. Sjávarútvegur í stórum stíl og með sem mestum árangri er þjóð vorri lífsnauðsyn. Fyrir því skorar 15. þing F.F.S.I. mjög eindregið á ríkisstjórn og Alþingi að afgreiða landhelgismálið með þessum forsendum og hvika hvergi frá fyrri yfirlýsingum og áskorunum um fjögurra mílna landhelgi frá yztu skerjum og annnesj- um, og að allir firðir og flóar séu innan takmarka land- helginnar, svo og að landgrunnið verði viðurkennd eign Islendinga. Fáist réttur vor eigi viðurkenndur með samkomulagi við þjóðir þær, er helzt má vænta andstöðu frá, þá treystir F.F.S.Í. því, að Alþingi og ríkisstjórn fari hverja þá leið, máli þessu til framdráttar, sem tiltæki- leg er og í samræmi við alþjóðarétt. 15. þing F.F.S.Í. lýsir því. yfir í framhaldi af áður samþykktri tillögu í landhelgismálinu, að það lítur svo á, að ísland eigi fornan og óskoraðan rétt til 16 sjómílna landhelgi, auk þess sem flóar allir og firðir teljist innan hennar. Skólamál vélstjóra. 15. þing F.F.S.Í leyfir sér að benda hæstvirtum kennslumálaráðherra og hinu háa Alþingi á, að það telur nauðsynlegt að öll vélfræðikennsla, sem nú fer fram hjá tveimur stofnunum, verði sameinuð í eina stofnun. Þingið telur fjármagn það, sem ríkið leggur þessum stofnunum, ekki koma að eins miklum notum eins og ef um eina stofnun væri að ræða, þar sem kennslu- kraftar og dýr tæki notast betur í einni stofnun, heldur en ef um tvær sérstæðar stofnanir er að ræða. Rannsókn á slysum. 15. þing F.F.S.Í. mælir eindregið með því, að Alþingi samþykki framkomna þingsályktunartillögu um rann- sókn á slysum, sem orðið hafa og henda kunna á ís- lenzkum skipum, eins og hún er orðuð á þingskjali 185, þó með þeirri breytingu, að í stað orðanna: „að íslenzk- um togurum og öðrum veiðiskipum", komi: „á íslenzk- um skipum“. Fyrirsögnin orðist í samræmi við það. Þingið telur rétt að ríkisstjórnin skipi þriggja manna nefnd í sambandi við fyrrgreinda rannsókn, sem hefði það markmið að yfirfara allar upplýsingar, sem fram koma við þau sjópróf, sem haldin kunna að verða, og geri nefndin sér sem ljósasta grein fyrir hvað valdið

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.