Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Síða 11
Framan við ria
fárlegur boði,
að baki er rjúkandi röstin.
Stjómandans rödd
yfir styrrinn gjallar,
örugg — óttalaus.
Heima & ströndu
standa fölvir
svannar og rýna l sortann.
Hrynja af augum
haglkom sá/r,
tár hins titrandi hja/rta.
„Koma þeir afturf
Komast þeir heimt
Drottinn, náð þín oss dugi".
Eitt er það svar,
er að eyrum berst:
Vábrestir vinda og sjóa.
Átján gangii
ekkjur frá ströndu,
bíða föðurlau8 böm.
Af bátnum þeirra
ei berst nein saga.
enginn kom aftur heim.
Um Akranes bárust
banafréttir,
Oft var skarð fyrir skildi.
En ótrauðir þeir,
sem eftir lifðu,
lögöu á djúpið dökkva.
III. Félagshylllng og fólagshvttt
/ kvöld skal svngja um sigra
og sjómanns þrek og fjör,
og rifja upp mæta minning
um marga sigurför,
er breiður Flóinn brosti,
og bjartur jökull hló,
og frækinn fiskimaður
sinn feng úr sævi dró.
Því til sin hefur hafið
oft heillaö góðan dreng,
í brjósti íslands bama
það bærir mjúkan streng.
Er gullin sundin sindra
við sól um kvöldin löng
slær sjómanns hjartað hraðar
og heillast af þeim söng.
VÍKINGUR
/ kvöld vér heiðrum Hafþðr
og hyllum jafnframt þá,
er stýrðu dýrum stöfnum
og stefndu djúpin á,
já, þá er fremstir fóru
í félagsandans sveit
og efldu einörð samtök
og efndu in djörfu heit.
Þeir heiður fslands uku
í annarra þjóða höfn,
þeir stýrðu fögrum fleytum
og frægðu islenzk nöfn.
Þeir drógu sild úr djúpi,
þeir drógu ólman fisk,
og björg i þjóðarbúið,
já, björg á hvers manns disk.
Ef þrengist þjóðar hagur
til þeirra er augum beint,
án vaskleiks þeirra og vinnu
vor vegferð gengi seint.
Við góða mennt og manndóm
þeir miði öll sín störf,
við framtíðina og frelsið
og föðurlandsins þörf.
Já, stýrið fögrum fleytum
sem fyrrum — á þau mið,
er færðu beztan fenginn,
og fomum haldið sið:
Að birgja þjóðarbúið
að björg og vistagnægð,
að efla auðlegð Skagans
og ykkar sjálfra frægð.
Ragnar Jóhannesson.
STJÓRN HAFÞÓRS:
F. v. Sigrurjón Kristjánsson, Hallfreður Guðmundsson, formaður, og-
Bjöm H. Bjömsson.
Skipstjóra- og stýrimannafé-
lagið Hafþór varð 25 ára skömmu
fyrir áramótin.
Einn af frumkvöðlum að stofn-
un félagsins og fyrsti formaður
þess var Kristófer Eggertsson,
skipstjóri. Sátu honn og undir-
ritaður ásamt fleiri gestum boð
félagsstjórnarinnar þegar afmæl-
isins var minnzt að Hótel Akra-
nesi hinn 27. desember s.l.
Núverandi formaður Hafþórs
Hallfreður Guðmundson, hafn-
sögumaður, futti við það tæki-
færi ræðu og rákti sögu félagsins.
Félagar í Hafþór eru allir skip-
stjómarmenn á Akranesi; hefur
félagið oft látið til sín taka með
ýms framfaramál bæjarins, þ. á.
m. hafnarbætur, öryggismál o.fl.
Sá skerfur, sem Hafþór hefur
lagt fram í félagstarfsemi FFSl
er mikilsverður. Af Skaganum
hafa komið ágætir fulltrúar sjó-
mannastéttarinnar, tillögugóðir
menn og drengir góðir. Sjómbl.
Víkingur vill við þetta tækifæri
færa Hafþór beztu kveðjur í til-
efni af afmælinu, með þeirri ósk
að félagið verði áfram einn sterk-
asti hlekkurinn í þeirri traustu
keðju, sem ber samtök okkar
uppi. G. J.
11