Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Page 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Page 28
Prófessor nokkur vaknaði kl. 4 um nótt. — Ég get ekki sofið fyrir gelti og ýlfri í hundinum yðar, sagði æst rödd nágranna konu. — Þakka yður fyrir, umlaði pró- fessorinn hálfsofandi. Kl. 4 nóttina á eftir hringdi síminn hjá nágrannakon- unni: — Ég ætlaði bar að láta yður vita, kæra frú, að ég á engan hund, sagði prófessorinn. 'Jrtoaktin — í nótt dreymdi mig konuna yðar. — Og hvað sagði hún? — Ekkert. — Þá hefur það ekki verið konan mín. Sá er munur á jórtrandi kú og ungri stúlku með tyggigúmmí, að augnaráð beljunnar er skynsamlegt. — (Sænskt bændablað). — Þú heldur víst að ég geri eins og allar hinar, að ég flytji heim til mömmu, sagði eiginkonan eftir hörku- rifrildi við mann sinn. — En þar skjátlast þér, góði. Ég ætla að biðja mömmu að koma hingað. — Áður sagðir þú alltaf að ég væri allur heimurinn fyrir þig. — Já, en síðan hefur mér farið fram í landafræðinni. O, mér datt ekki í hug, að þér væruð svona áköf kæra ungfrú! Trúboði var að halda ræðu og sagði eftirfarandi sögu: — Eitt sinn var sankti Pétri færð sú sorgarfregn að 75% af öllum karl- mönnum í heiminum væru trúlausir. Þetta var Pétri mikið áhyggjuefni og eftir nokkur heilabrot ákvað hann að skrifa hinum 25% trúuðu: — Vitið þér, herrar mínir, hvað stóð í bréfi sankti Péturs? — Nei, hrópuðu allir karlmennirnir í hópnum. —• Já, þetta datt mér í hug, heið- ingjarnir ykkar, ykkur hefur auðvitað ekki verið sent bréf. Bernhard Shaw sagði eitt sinn, að það sem kæmi sér verst fyrir hinn ósannsögla, væri ekki það, að enginn tryði honum, heldur hitt, að hann þyrði engum að trúa sjálfur. Úr bréfi frá Gröndal. — Hér er aldrei neinn miðvikudag- ur, heldur hleypur tíminn yfir þann dag, svo þá er eklcert, klukkan er hér aldrei tólf, heldur alltaf eitt. Hér kyss- ir maður allt kvenfólk við hvern punkt í ræðunni, þegar maður talar við það, kiappar þeim á hægri kinnina við hvern semikolon, og faðmar þær við hverja kommu; þegar exclamations- teiknin koma fyrir, þá má maður gera við þær hvað sem maður vill. (Skrifað frá Þýzkalandi 1858). — Hugsaðu þér, hún Soffía erfði 200 þús. kr. eftir frænda sinn, sem hefur ekki einu sinni séð hana, hvað þá heldur meir. — Nú, það skýrir auðvitað málið. — Ef báturinn sekkur nú, sagði konan hrædd, — hverjum ætlarðu þá að bjarga fyrst, baminu eða mér? — Mér, svaraði maðurinn sam- stundis. Flýttu þér amma, það á að taka mynd af þér í tilefni af 90 ára afmælisdeginum þínum. Næturróður. Einn útgerðarmaður gerði sér daga- mun nú fyrir nokkru. Á leiðinni heim til sin um morguninn hitti hann kunn- ingja sinn, og var hálf kvíðinn yfir að taka land í heimahöfn, og vildi helzt snúa við til sömu miða aftur. — Frjálsræði er ekkert orðið til, sagði hann. — í uppeldi mínu hjá afa og ömmu gat ég farið hvert sem ég vildi og þurfti ekki að koma úr róðri fyrr en seint að morgni. En nú, þegar ég á tvö skip og konu og krakka, þarf ég að koma heim klukkan 22. I bæ nokkrum í Hellas er það siður, að þegar bæjarfulltrúi ber fram til- lögu, þá er snara sett um háls honum er hann stígur í ræðustólinn. Ef til- lagan verður samþykkt, þá er snaran samstundis losuð, en verði tillagan felld, þá er ræðustólnum sparkað und- an honum. Hvernig væri að taka þetta system upp hér á alþingi og í bæjar- stjórn? Joe Louis, fyrrverandi heimsmeist- ari í hnefaleik, var eitt sinn í bíl með vini sínum. Þeir lentu í árekstri við vörubíl. Enginn meiddist, og ekki var auðvelt að segja um, hverjum árekst- urinn hefði verið að kenna, en vöru- bílstjórinn rauk út úr bíl sínum og jós skömmum yfir Joe Louis og hótaði honum líkamlegum meiðingum. Er leiðir skildi, spurði vinurinn, hvernig í ósköpunum hefði staðið á því, að hann hefði látið bjóða sér ann- að eins. — Hví gafstu dónanum ekki einn á hann? spurði hann. —• Það er nú það, anzaði Joe Louis. — Heldurð, að Caruso hefði sungið aríu fyrir hvern þrjót, sem móðgaði hann? 28 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.