Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1973, Blaðsíða 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1973, Blaðsíða 4
Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði - framhlið. sem strandaði á svonefndum Hvalnestanga utan við Fram- Skálavík í Fáskrúðsfirði. Af henni björguðust menn allir. Veð- ur var gott en gekk á með dimm- um éljum. Sást til skútunnar þar sem hún var að krúsa út á firð- inum til að komast inn á Búðir. Síðan kom él, langt og dimmt og það mun hafa glapið svo fyrir skipstjórnarmönnum. að þá bar upp að landinu með fyrrgreind- um afleiðingum. Skioið var selt á uppboði. Var það kevpt af Marteini kaunmanni Þorsteinssyni, sem bvggði pakk- hús úr timbrinu. Það ber ennþá nafnið Manonhús og er nú í eigu Jóhanns útgerðarmanns Anton- íussonar. Líknarfála)! alofnað, sj úkr.-ilnis rcist Sjóslysin miklu við snð-austur- land á útmánuðum 1873 hjuggu mikið skarð í lið frönsku fiski- mannanna á íslandsmiðum. En smám saman hefur verið í það fyllt með ungum mönnum, sem fetuðu í fótspor feðra sinna og sóttu — eins og þeir — lífsbiörg- ina á þessar fjarlægu fiskislóðir. En eflaust hefur hin langa sj úkdómslega skipbrotsmannanna tveggja á Horni lengi lifað í minni þeirra og aðstandenda þeirra. Máske hefur hún ásamt með öðru sýnt þörfina á almennri læknis- og aðhlynningarþjónustu fvrir fiskimennina. Það varð til þess, að Frakkar efndu til sjúkrahúss- reksturs hér á landi, bæði 1 Revkjavík og á Fáskrúðsfirði og í Vestmannaeyjum. Þetta var þó ekki ríkisfyrirtæki. Árið 1894 var í París stofnað líknarfélag: Soci- été des Oevres de Mer. Þetta félag lét bvggja lítinn spítala á Fá- skrúðsfirði vorið 1897. Hann tók bara sex sjúklinga. Við hann var reist smá-kapella. í sjúkrahúsinu störfuðu tvær St. Jósefssystur og 1—2 prestar. Alla læknisþjónustu varð að sækja til Eskifjarðar fyrstu 3 árin, en aldamótaárið var Georg Georgsson skipaður læknir í nýstofnuðu læknishéraði á Fáskrúðsfirði. Var hann læknir súkrahúsanna meðan þau voru við lýði. Spítalafélagið Um aldamótin var stofnað félag í Frakklandi til þess að reisa og reka sjúkrahús fyrir Frakka á íslandi. Tók það að sér að sinna verkefnum, sem áðurgreint félag hafði haft og bvggt hafði sex rúma siúkrahúsið á Fáski'úðs- firði 1897. Þetta félag: l’Société des Hopi- taux Francais d’Islande — bvggði Franska spítalann í Reykjavík, sem enn stendur við Lindargötu. Þegar því var lokið árið 1903, hófst félagið handa um að byggja annan spítala eftir sama upp- drætti í staðinn fyrir litla sjúkra- húsið á Búðum á Fáskrúðsfirði. I.ýsiii|< á spítalannm Árið 1907 gaf Spítalafélagið út smárit með myndum, um starf- semi þess hér á landi. Kaflinn um Fáskrúðsfjörð fer hér á eftir í þýðingu Ástu Stefánsdóttur bankafulltrúa. Annar franskur spítali var byggður árið 1903 og skipulagður 1904 af félaginu, alltaf undir eft- irliti M. Bald. Hann var stað- settur á Austurströndinni, á Fá- skrúðsfirði, 36 klukkustunda sigl- ingu frá Reykjavík meðfram suð- urströndinni. Einmitt í botn þessa fjarðar voru sjómennimir okkar vanir að koma bæði til að leggja aftur nið- ur þorskinn og til að umskipa fyrsta aflann yfir í hraðskreið skip, sem biðu þeirra þar allan maímánuð. Oft á tíðum er fjörð- urinn upplífgaður um þetta leyti ■af heilum flota franskra sjó- manna og það svo mjög, að maður gæti haldið sig vera í heimahöfn, það margir franskir fánar blakta þar. Þessi spítali, sem. er mjög nærri veiðisvæðunum veitir þeim þannig ómetanlega þjónustu. Spítalinn er reistur alveg aust- ast í litla þorpinu Fáskrúðsfirði. Yfir gnæfir fjall, sem skýlir fyrir köldum norðanvindum og hann liggur að stórum hluta lækjar, sem aldrei þornar upp og auðveld- ar vatnsleiðslu fyrir alla bvgging- una, sem stendur 50 metra frá árbakkanum, andsnænis stað, sem er hentugur til að koma sjúkling- um þar í land úr skipunum. 1 spítalanum eru 17 rúm, 3 fimm manna-stofur, 1 einangrun- arherbergi og skurðstofa með öllu tilheyrandi, língeymsla, baðher- bergi og loks íbúð fyrir starfs- fólk spítalans. Þar er einnig full- VlKINGUK 356
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.