Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1982, Síða 12
VIKINGUR
sínum og fær að vera hér meðan
börnin fara í frí.
Ég er að láta mig dreyma um að
byggja hús fyrir dagvistun á lóð
Hrafnistu í Reykjavík, fyrir neðan
og austan Laugarásbíó. Það er
góður staður fyrir slíkt. Við eigum
í fyrsta lagi stórt og gott bílastæði,
þar sem ekki er notað á daginn,
þarna er samkomuæð sem liggur
bæði í austur og vestur og strætis-
vagn stoppar fyrir framan. í þessu
hverfi búa líka flest gamalmenni í
dag. Það gætu því sumir gengið á
staðinn. Stefna okkar er að fækka
enn meir á Hrafnistu í Reykjavík,
niður í 370 vistmenn. Þegar við
verðum orðnir sjálfum okkur
nógir hér í Hafnarfirði með
þvottahús ofl. gætu eldhús og
þvottahús í gömlu byggingunni
þjónað þessari dagvistun. Þetta tel
ég vera ódýrustu lausn málsins.
Herbergið hennar Friðriku Eyjólfsdóttur var svo yfirfullt af útsaum að aðeins hluti af því
sést á myndinni. Á borðinu er fáni Kvennadeildar Slysavarnafélagsins Hraunprýði í
Hafnarfirði en Friðrika saumaði samskonar fána 1.50 metra langan, með silkiþræði í
silkiefni og er hann í eigu félagsins.
urkenningu konu í fyrsta skipti
nýlega, 80 ára gamalli hjúkrunar-
konu sem starfað hefur við
Hrafnistu frá upphafi.
Á sumrin rekum við barna-
heimili í Grímsnesi fyrir böm sjó-
manna. Við hyggjumst starfrækja
það fyrir eldri börn í sumar, þau
sem eru að komast út á vinnu-
markaðinn. Það verður nokkurs
konar vinnuskóli. í Grímsnesinu
er í byggingu félagsheimili fyrir
sjóme n en 23 orlofshús eru þar í
þyrpingu. Við höfum líka leigt
þama út lóðir til sjómanna þar
sem þeir byggja húsin sjálfir. Or-
lofshúsin eiga sjómannafélög á
svæðinu frá Akranesi suður til
Grindavíkur.
Pétur Sigurðsson er upptekinn
maður og ekki vert að trufla hann
meir að sinni. Hann sýnir mér
hluta byggingarinnar sem hann
mun hafa verið hvað atkvæða-
mestur að koma á fót. Hans bíða
mörg verkefni, því þökkum við
fyrir spjallið.
E.Þ.
Barnaheimili,
orlofshús o.fl.
— Hvaða verkefnum öðrum
sinnir Sjómannadagsráð?
— Við stöndum fyrir hátíða-
höldum Sjómannadagsins. Því
fylgir gífurlega mikið verk, m.a.
útgáfa Sjómannadagsblaðsins.
Við heiðrum minningu látinna
sjómanna og heiðrum aldraða
sjómenn. Við veittum þessa við-
I setustofunni á þriðju hæð sátu gangastúlkumar og spjölluðu áður en þær tóku til við
verkin. Þær heita Steinunn Jóhannsdóttir, Henný Sigurjónsdóttir og Guðbjörg Rík-
harðsdóttir. Á hverri hæð er vistleg setustofa þar sem hægt er að horfa á sjónvarp, lesa
blöð og spila á spil.