Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1982, Blaðsíða 45
Einar Jónsson, fískifiræðingur:
Hvalategundir
vid ísland
Hvalir og þá sérstaklega hval-
veiðar hafa verið allmikið í frétt-
um og fjölmiðlum nú hin allra síð-
ustu ár hér á landi. Mikil umræða
hefur farið fram um hvalveiðar og
hvalafriðun. Andóf og aðgerðir
Grænfriðunga eiga vafalaust stór-
an þátt í því að þessi mál hafa verið
svo í sviðsljósinu. Þá hefur og
aukinn áhugi á náttúruvcrnd og því
lífi er bærist í kringum okkur
vaknað meðal manna, en sá áhugi
beinist af eðlilegum ástæðum iðu-
lega fyrst að þeim líftegundum
sem taldar eru á einhvem hátt í
hættu, en svo er einmitt um margar
tegundir hvala.
í þessari grein ætla ég ekki að
Úr ríki hafsins
ræða um hvalveiðar eða annað
sem tengist þeim, nema óbeint,
heldur verður hér nánast talið upp
það hvalkyns sem við landið
finnst eða hefur fundist. Flestir,
og þá ekki síst margir sjómenn,
vildu gjarnan vita meira um hvali
en þeir gera. Það er hins vegar
sorgleg staðreynd að ekki er um
auðugan garð að gresja í þessum
efnum, ef menn vilja afla sér
upplýsinga. Aðeins ein íslensk
bók, Spendýrin, eftir Bjarna
Sæmundsson, fjallar um alla „ís-
lenska“ hvali. Þar sem þetta rit er
nú með öllu ófáanlegt, verður
þessi pistill einskonar greiningar-
lykill að hvalategundum hér við
land, ásamt örstuttri lýsingu á
heimkynnum þeirra (útbreiðslu-
kort) og lífsháttum, svo og nokkr-
um upplýsingum um áætlaðan
fjölda, þar sem reynt hefur verið
að ráða í slíkt. Mjög mikið ber
stundum í milli hjá hinum ýmsu
höfundum í stofnstærðaráætlun-
um. Þær tölur sem hér eru settar
fram feta oft millileiðina. Því fer
fjarri að mönnum beri að taka
þessar tölur sem einhverjar hei-
lagar kýr. en þær eru þó hafðar
með til þess að gefa lesendum
hugmynd um stofnstærðir hvala
fyrr og nú. Þá skulu sömu fyrir-
varar settir við útbreiðslukortin.
Steypireyður
Lan};reyður
Búrhvalur
Norðhvalur
Saudreyður
fslands-sléttbakur
Hnúfubakur
Sandlægja
Hrefna
Andanefja
Háhyrningur
Marsvín
Náhvalur
Mjaldur
Svínhvalur
Stökkull
Hnýðingur
Leiftur
Höfrungur
Hnísa
m
Hit)
Eðlileg stærðarhlutföll „íslenskra“ hvala
VÍKINGUR
45