Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1982, Blaðsíða 14
í endurhæfingarsalnum var hún Elka
Guðrún Aradóttir að æfa sig að ganga með
aðstoð Ninnu Leifsdóttur sjúkraþjálfa.
Þessi aðstaða er ný og fékkst þegar pláss-
um varfækkað á Hrafnistu.
fólk býr í eigin herbergjum með
sína persónulegu muni og fær alla
þjónustu. Hér eru einnig fimm
hjúkrunardeildir sem flokkast
eftir heilsufarsástandi fólks.
Við leggjum mikið upp úr því
að fólkið hjálpi sér sjálft, fari í mat
og fari sinna ferða eins og það vill.
Við leggjum engar hömlur á fólk,
það getur gengið hér inn og út eins
og á eigin heimili, sömuleiðis ætt-
ingjar en vilji það vera að heiman
yfir nótt, þarf það að láta vita af
því.
Þessi kynslóð á gott með að
hlíta reglum og þær eru fáar hér
en skýrar. Fólk ræður sjálft
hvernig það skipuleggur herberg-
in sín, það má hafa eigin síma,
útvarp með kalltæki er í hverju
herbergi það getur haft eigin
sjónvarp, endurgjaldslaust og
blöð og tímarit liggja frammi á
lesstofum. Póstur er borinn á her-
bergin svo við reynum að gera líf-
ið sem líkast því sem það var
heima. Við leggjum áherslu á að
hafa sem best samband við ætt-
ingja vistmanna.
Öll þjónusta fyrir
hendi á staðnum
— Við höfum viljað vera sjálf-
um okkur nógir á sem flestum
sviðum, rekum eigið þvottahús og
saumastofu, við erum með raf-
virkja, trésmið, pípulagningar-
mann og húsverði til að annast
viðgerðir á þessu stóra heimili
okkar. Að sjálfsögðu rekum við
líka eigin eldhús og í tengslum við
það bakarí og kjötvinnslu. Við
höfum innréttað föndurstofu fyrir
konur þar sem tveir föndurkenn-
arar eru starfandi alla daga að
leiðbeina með handavinnuna. Á
hverju hausti höldum við svo bas-
ar þar sem fólkið selur muni sem
það hefur gert sjálft. Karlmenn-
irnir vinna að því að setja upp línu
í veiðarfæravinnustofunni og
bæði karlar og konur hnýta á
tauma fyrir þá, aðallega uppi á
herbergjum sínum. Þarna eru líka
hnýtt spyrðubönd, steinalykkjur,
felld grásleppuneto.fl. sem tengist
sjávarútvegnum. Bráðlega verður
tekin í notkun föndurstofa karla
þar sem verða hefilbekkir og
Það var fjör f fótsnyrtingunni þegar hún
Guðrún Snorradóttir (móðir Bessa
Bjamasonar leikara) var að láta Unni
Óladóttur eiga við tæmar á sér og gera sig
fína. í fótsnyrtingu fara bæði konur og
karlar og öllum líður að sjálfsögðu betur
eftir slíka meðferð.
smíðaáhöld fyrir þá sem vilja
dytta að ýmsu eða smíða.
Leikfimikennari er starfandi
hér og stjómar leikfimi í setustof-
um á morgnana. Það er vel sótt af
vistfólki og jafnvel starfsfólki líka.
Á rakarastofunni ræður Bjömdfs Bjamadóttir rakari rfkjum og sér um að karlmennirnir
séu vel snyrtir og rakaðir. Það er líka um að gera að vera fínn þcgar næsti dansleikur
verður haldinn á fimmtudaginn á vegum Kiwanis-klúbbsins Heklu.
14
VÍKINGUR