Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1982, Blaðsíða 65

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1982, Blaðsíða 65
t HORFNIR FÉLAGAR t Guðmundur Jensson Fæddur 7. jillí 1905 — Dáinn 12. febrúar 1982 Kveðja frá stjóm F.F.S.Í. Guðmundur Jensson, fyrrver- andi ritstjóri Víkingsins lést í Reykjavík 12. febrúar sl. Hann var fæddur 7. júlí 1905 að Hóli í Ön- undarfirði. Foreldrar hans voru Jens Albert Guðmundsson kaup- maður á Þingeyri við Dýrafjörð og Margrét Magnúsdóttir ljósmóðir. Guðmundur sótti skóla bæði að Núpi í Dýrafirði og við heima- vistarskólann að Hrafnseyri við Amarfjörð en gagnfræðaprófi lauk hann við Menntaskólann í Reykjavík 1922. Ungur að árum hóf hann sjó- mennsku því föður sinn missti hann 12 ára gamall og systkinin voru ellefu. Stundaði hann störf sem 2. vélstjóri á línuveiðurum og fór m.a. í siglingar á erlendum skipum í tvö ár. Ekki hafði hann vélstjóraréttindi svo staðan varð ótrygg. Þá ákvað Guðmundur að afla sér starfsréttinda sem loft- skeytamaður. Þeirra réttinda afl- aði hann sér meðan hann starfaði á togaranum Belgaum, notaði til þess frívaktirnar sem flestum nýt- ast best til hvíldar. Árin 1931— 1945 sigldi hann senr loftskeyta- maður á togurum og flutninga- skipum en á þeim árum var mikið undir loftskeytamanninum kom- ið, hann náði upplýsingum frá öðrum á morse og þær upplýsing- ar gátu skipt sköpum um veiðina. Einnig var mikilvægt að fylgjast með viðskiptum enskra togara og það var Guðmundur vel fær um því hann var góður enskumaður. Guðmundur var einn þeirra VÍKINGUR manna sem allatíð vann af ósér- hlífni og samviskusemi að mál- efnum sjómanna sem og annarra landsmanna til velfarnaðar þjóð- lífinu. Árið 1945 réðist hann til Farmanna- og fiskimannasam- bandsins en það var stofnað 1937. Starfsemi sambandsins hafði að mestu leyti verið fólgin í því að gefa út Sjómannablaðið Víking og kom það því í hlut Guðmundar að marka stefnuna í málefnum þeim er sambandið kynni að hafa af- skipti af umfram blaðaútgáfuna. Og þar var af nógu að taka, mörg og vandasöm verkefni lágu fyrir. Niðumíddur skipastóll blasti við eftir að stríðinu lauk og gramdist Guðmundi sinnuleysi rnargra um nauðsyn þess að endurnýja skipa- stólinn. Barðist hann ótrauður fyrir því að endurnýjunin gengi fljótt og vel. Menn voru ekki sammála frekar en nú um það hvað gjöra skyldi og eins og mönnum er í fersku minni sem þá voru að slíta barnsskónum, hættu eldri útgerðarfélögin flest útgerð eða drógu mjög saman seglin svo það fé sem lagt hafði verið til hliðar til endurnýjunar flotans, fór til annarra kaupa svo sem á postulínshundum og fleiru. Guðmundur var ekki ómyrkur i máli um þessar ráðstafanir fjár- magnsins og taldi slíka meðferð óhæfa. Síðar komu fleiri stórmál sem vörðuðu íslenska sjómenn rniklu eins og landhelgismálið. Vann hann af heilum hug að framgangi þess og lagði marga góða tillögu fram til hagsbóta íslenskum fiski- mönnum. Kjarabaráttan var oft hörð á þessum árum og áttu far- menn e.t.v. erfiðast unr vik í sókninni að bættum kjörum. Ein harðasta barátta sem háð var í sögu þeirra eru átökin sem urðu 1957 þegar verkfall farmanna stóð á þriðja mánuð og hafði slíkt aldrei gerst áður í þeirra baráttu. Ekki er unnt hér að telja upp öll þau miklu og margvíslegu verk- efni sem Guðmundur leysti fyrir samtökin meðan hann stóð þar í fararbroddi en allir sem til þekkja minnast elju hans og dugnaðar í öllu því sem varðaði málefni sjó- mannastéttarinnar. Árið 1962 urðu ritstjóraskipti við Víkinginn og tók þá Guðmundur við ritstjórninni. Naut hann sín vel í því erfiða starfi, hann hafði góðan stíl og þekkti vel íslenskt mál. Þá fékk hann að njóta þess sem fyrri skólaganga hans færði honum. Hann fékk tækifæri til að beita því vopni sem hvað beittast getur orðið, stílvopninu, í hinum mörgu 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.