Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1982, Side 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1982, Side 50
tarfanna og er allt að helmingur af lengd dýrsins. Þá er litur beggja kynja mjög ljós, sérstaklega hjá gömlum dýrum. Talið er að skög- ultönnin komi dýrinu að litlu haldi, en sé nánast skraut sem kambur á hana. Náhvelið er hér mjög fáséð og eru þau skipti telj- andi á fingrum annarrar handar er þess hefur orðið vart hér við land frá aldamótum, en þar af er ný- legasta heimsóknin frá 1977, er náhval rak á land í Geldinganesi við Reykjavík. - Stökkull Stökkull er stærstur hinna eiginlegu höfrunga er taldir eru vera hér við land, tíðast 3—4 m, sjaldan 5 m. Til eru þrír aðskildir stofnar stökkla sem lifa í sunnan- verðu Indlands- og Kyrrahafi, norðanverðu Kyrrahafi og N-At- lantshafi. Þessi tegund eralgengur strandhvalur sitt hvoru megin N-Atlantshafs, en ekki eru til óyggjandi sannanir fyrir því að hún komi hingað til lands. Líklegt er að hún komi hér fyrir, en sé ekki algeng. Hér um er við fátt að styðjast þar sem nær ómögulegt er að þekkja stökkul á rúmsjó frá hinni algengu höfrungategund, hnýðingnum. Kominn á þurrt land, þekkist hann þó vel af stærðinni og snjáldurlaga trýninu. Hnýðingar eru næststærstir höfrunga og algengastir þeirra hér 50 Hnýðingur við land. Þegar sjómenn sjá smá- hveli önnur en hnísur, marsvín og háhyrninga, sem eru auðþekkjan- leg, mun í flestum tilfellum um hnýðinga að ræða, en þeir synda oft og leika sér við skipshlið eins og sjómenn þekkja. Hnýðingur er annars algengur strandhvalur í N-Atlantshafi. Þeir eru ekki taldir eiginlegir farhvalir, en Bjarni Sæmundsson telur að þeir hverfi héðan frá ströndinni á vetrum og komi aftur að vori. Kominn á þurrt land, þekkist hnýðingurinn vel af hvítu snjáldrinu. Leiftur Leiftur er smáhvalur sem fyrir- finnst í N-Atlantshafi. Um hann er flest svipað að segja og stökkul. Þetta er talinn strandhvalur og er nokkuð algengur beggja vegna Atlantshafsins. Um hann eru þó engar öruggar heimildir hér við land, en líklegt að hann komi hér fyrir. Leifturinn er nokkuð vel aðgreindur frá öðrum höfrungum með ljósgulleitri langri rák á síð- unni. Höfrungur Höfrungur (hundfiskur) er litlu stærri en hnísa (1,8—2,3 m) og auðþekktur frá henni á horninu sem er beygt aftur í hvassan odd. Höfrungar koma fyrir við allar strendur Atlantshafsins, en þeir eru þó frekar hlýsjávar dýr. Sömu tegund er og að finna í Indlands- hafi við Ástralíu og vesturströnd S-Ameríku. Náskyldar tegundir eru í N-Kyrrahafi og í Svartahafi. Höfrungar munu óalgengir hér við land. Þeir rekast þó eflaust stundum að íslandsströndum og er a.m.k. ein staðfesting til á slíku. Hnísan tilheyrir ekki hinum eiginlegu höfrungum. Hún er minnst hvala hér við land (1,5— 1,8 m) og með smæstu hvölum yfirleitt. Hnísan er auðþekkt á smæðinni og eins er hornið til- tölulega stórt og aðeins lítið eitt bogið. Hnísan er eindregin strandhvalur og fer jafnvel upp í stórar ár. Hún er og algengasti hvalurinn við landið og sá hvalur sem flestir þekkja. Hún er sögð éta smáfisk svo sem loðnu, síld, sand- síli spærling og kolmunna. Talið er að hnísan hér við land sé fardýr VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.