Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Page 13
ÞEIR VILDU STOFNA
STERKT SAMBAND FÉLAGANNA
— spjallaö við Laufeyju Halldórsdóttur, ekkju Guömundar H. Odd-
sonar og fyrsta formann kvenfélags Öldunnar
Þegar talaö er um sögu Öldunnar, síöustu fjörutíu árin, ber oft á góma nafn eins
manns sem viröist hafa veriö aösópsmikill í félagsstörfum þar, svo og viö stofnun
þessa blaös, F.F.S.Í o.fl. Þessi maöur er Guömundur H. Oddsson, sem lést í
septembersl. 72áraaöaldri.
Kona Guömundar heitins, Laufey Halldórsdóttir, var fús til aö rifja upp meö okkur
þátt Guömundar í hinum ýmsu félagsmálum sjómannastéttarinnar, i tilefni af 90 ára
afmæli Öldunnar.
Laufeyer, þóttótrúlegtmegi viröast, 71 árs aö aldri. Þann aldurþerhún svo sannar-
lega vel. Hún er falleg og fíngerö kona, hressileg og hláturmild og viröist hafa, fylgst
velmeö félagsströfum mannssíns. Hún á fallegtheimili aö Laugarásvegi 5, ÍReykja-
vík. Þangaö heimsótti ég hana.
— Þaðvarnæstum umsátursástand kringum húsiðokkar, tilaðfámiða
á hóf ið á Sjómannadaginn.
— Eg er fædd á Kjalarnesi,
ein ellefu systkina, segir Lauf-
ey. Ég útskrifaðist úr Verslun-
arskólanum 1931 og var svo
heppin að fá strax vinnu.
1933—1938 vann ég i Verslun
Haraldar Árnasonar i Austur-
stræti en hætti þar eftir að ég
gifti mig og fór að eignast börn.
Siðan hef ég verið heimavinn-
andi og sé ekki eftir þvi.
Guðmundur er fæddur vest-
ur i Bolungarvik. Hann missti
móður sína þegar hann var 9
ára og byrjaði 13 ára til sjós.
Eftir það var hann litið heima,
var á vertíðum m.a. í Vest-
mannaeyjum.
Árið 1933 útskrifaðist hann
úr Stýrimannaskólanum og þá
má segja að af skipti hans af fé-
lagsmálum hafi byrjað. Félagar
hans úr skólanum voru ungir
og friskir menn sem vildu
ganga i stéttarfélag en þá var
Skipstjórafélagið Aldan í
nokkurri lægð, félagsmenn
rosknir menn sem ekki höfðu
þennan neista semungirmenn
hafa.
Ári eftir að þeir útskrifuðust
stofnuðu þeir Skipstjóra- og
stýrimannafélag Reykjavikur, i
nóvemberl 934. Konráð Gísla-
son var formaður félagsins en
Guðmundur ritari. Það var hug-
ur i þeim þó kreppa væri í heim-
inum.
Á þessum árum var Guð-
mundur skipstjóri á sild á
sumrin en vann við tryggingar
hjá Karli Tulinius i Austurstræti
14 á veturna. Á þessum árum
gafst honum meira tóm til fé-
lagsstarfa. Það var mikið líf í fé-
laginu á þessum árum.
Kannski höfðu menn meiri
tima, þeir voru á sild fram í
september og voru siðan oft
atvinnulausir fram að vertíð.
Það þótti sérstakt að komast á
haustvertið. Veiðiskapurinn
... Þessisameining
varmikilblóögjöf
fyrirölduna, ungu
mennirnir uröu bráttí
forustusveit félags-
ins...
Víkingur 13