Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Qupperneq 62
FRÍVAKTIN
Séra Þóröur, sem eitt sinn var
prestur i Reykjadal, þótti
meira en litið skritinn i ýmsum
háttum.
Hér er einn ræðustúfur eftir
honum hafður. Ef allir menn
yrðu að einum manni, allir
steinar að einum steini, öll fjöll
að einu fjalli og öll vötn að einu
vatni. Þá skyldi sá mikli maður
taka þann stóra stein, laþþa
með hann upp á það háa fjall
og kasta honum niður i það
stóra vatn. Þá held ég yrði nú
heldur en ekki bomsara boms,
minir elskanlegu. Svo mun og
veröa á efsta degi, þegar
þessi veröld ferst og hrapar til
helvitis.
Þessi var ein af fyrirbænum
séra Þórðar:
Skundaðu nú upp að Hauk-
holtum, Drottinn minn og
hjálpaðu gömlu hjónunum,
sem þar eru i innsta rúminu að
norðanverðu, og hangir
skóbótarkippa á stagi uppi yfir
þeim. Komdu um leið að Skip-
holtskoti og miskunnaðu
barnunganum, sem þar er í
laup á miðju gólfi. En varaðu
þig á henni Kotlaugakeldu,
hún hefur mörgum körskum á
kollinn steypt.
Það hefur verið sagt um Aust-
firðinga, að þeir séu hljóðvilltir
i meira lagi, rugli t.d. saman e
og i.
Svo bar til, að maður að
nafni Guðmundur var kosinn i
hreppsnefnd. Nokkru seinna
sendi hann smápatta með
miða til nágranna sins, þess
efnis að fá lánaða kerru.
Þegar maðurinn hafði lesið
miðann verður honum að orði:
— Naumast að Gvendur er
oröinn finn með sig, siðan
hann komst i hreppsnefnd. Nú
er hann farinn að skrifa kerra
með upsilon.
SKJALAÞÝÐINGAR
ÞÓRARINN JÓNSSON
löggilturdómtúlkurog
skjalaþýðandi í ensku
Sími 12966 — heima 36688
KIRKJUHVOLI -101REYKJAVÍK
TROLL-
LÍKÖN l TILRAUNATANKl
MYNDSPÓLA FRÁ HIRTSHALS
Sökum mikillar eftirspurnar býður
Hampiðjan hf. nú til sölu myndspólu með
upptöku frá tilraunatankinum í Hirtshals
21. júní í sumar þar sem prófuð voru
7 trolllíkön.
Myndin er um 40 mín. löng.með íslensku tali
og fýlgir henni skýrsla með mæliniðurstöð-
um.
Peir sem vilja eignast myndina sendi
inn pöntun ásamt 3500 kr. ávísun eða
gíróseðli til Hampiðjunnar c/o Guðmundur
Gunnarsson, þar sem fram kemur hvaða
kerfi (VHS - BETA) óskað er eftir og
hvert senda á mynd.
HAMPIÐJAN
Stakkholti 4, Reykjavík, sími 28100
62 Víkingur