Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Page 3
I
NAKVÆMNI
fónOi tálettúáíitt biáuwiútveý
EIMSKIP annast flutning á frystum fiski frá ís-
lenskum frystihúsum til kaupenda og framleiöslustaöa
erlendis. Slíkur flutningur er vandasamur. Hann bygg-
ist á sérhæföum tækjum, lipurri þjónustu og sveigjan-
legu flutningskerfi. Hann byggist á nákvæmni og hug-
viti sem hæfir nútímakröfum um meðferð á fyrsta flokks
hráefni.
Frystigámar EIMSKIPS, með fullkomnasta tækni-
búnaði sem völ er á, gegna lykilhlutverki í þessum flutn-
ingi. Strax í frystihúsunum, víðs vegar um landiö, er
fiskinum komiðfyrir í gámunum og þeirfluttirtil Reykja-
víkur á vegum EIMSKIPS. Hluti fisksins kemur einnig
með frystiskipi EIMSKIPS til borgarinnar og er settur
þar í frystigáma. jafnskjótt og gámunum hefur veriö
skipað um borö í millilandaskip EIMSKIPS tengjast
þeir rafkerfi skipsins og jafnframt öruggu eftirliti með
hita- og rakastigi.
Út frá hafnarborgum vestanhafs og -austan grein-
ist síöan fjölþætt flutninganet EIMSKIPS til smárra og
stórra kaupenda víðs vegar um heiminn. Frystur fiskur-
inn, sem EIMSKIP vartrúað fyrir í íslensku sjávarþorpi,
er á skömmum tíma kominn í hendur kaupandans
handan hafsins. EIMSKIP stendur ábyrgt fyrir gæðun-
um.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
*