Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Blaðsíða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Blaðsíða 10
Þetta er Guöjón er veiöimaöur af lífi og sál. Hann er annálaður fiskimaöur en er talinn ekki siðri skytta. Myndin er tekin í Jökulfjörðum. Auövitaö erégoft ánægöur meö minn hlut og vafa- laust túlka ein- hverjirþá ánægju sem mont. 10 VÍKINGUR Hann er tveimur vikum yngri en islenska lýöveldiö, fæddur fimmta júlí 1944 á ísafiröi. Þaðan liggja ættirnar ofboölitiö í norðaustur, en Guöjón er kominn af bænda- fólki og útræðurum úr Þar- látursfirði og nyröri Reykja- firöi á Ströndum þar sem hann dvaldi reyndar stundum á sumrum á stráksaldri. For- eldrar hans eru Jóhanna Jakobsdóttir húsfreyja og Kristján S. Guöjónsson sem lengst af starfaöi sem skipa- smiöur. Ákvað sjómennsku 16 ára Þeir eru tveir bræöurnir, en systurnar sjö. Guöjón sjötti í rööinni á eftir eintómu kven- fólki og jújú, hann minnist baráttunnar: „Manni fannst betta náttúrlega oft vera ótta- legt stelpufargan i kringum mann og það þurfti stundum aö berjast af hörku til að ná sínum málum fram. En ég held aö þetta hafi nú ekki haft nein áhrif á mig siðar meir.“ Þau systkini bjuggu ásamt foreldrum sinum þar sem heitir í Stakkanesi, sem þá var sveit. Þaö voru útihús viö heimilið meö rollum og hænsnum: „Semsagt alvöru sveitaheimili, þangaö til kaupstaðurinn umkringdi þaö“, minnist Guðjón. Hann segir aö i uppeldi sinu hafi hann notiö frelsis. Hann hafi mótast af viðáttunni sem var til staöar, dregist aö hliöinni fyrir ofan og fjörunni neðan viö bæ. En alvaran byrjaði líka snemma. Hann var ekki nema níu ára gamall þegar hann hóf launaða vinnu, en þaö var aö sólþurrka saltfisk- flök meö rosknu fólki, ein- kanlega konum, sem hann segir margt hafa verið ákaf- lega magnaöa og merkilega persónuleika. „Þetta fólk skilaöi mér arfleifð, sem ég vildi ekki fyrir nokkurn mun hafa farið á mis við.“ Þegar hann er spurður að þvi afhverju hann hafi svo fljótt sem raun ber vitni, aöeins sextán ára, ákveðið hvaö hann vildi starfa viö um dagana, er hann snöggur til svars. „Einhverra hluta vegna varð ég mjög snemma á- hugasamur náttúruunnandi með alveg sérstakt dálæti á lifrikinu í kringum mig. Ég varö sérstaklega var viö þetta eitt sumariö á handfær- um, en þá lá við um nætur aö ég léti dáleiðast af lifinu í sjónum. Og þetta breytist ekkert. Ég er ennþá svona." „Lifandi fyrir léttri báru“ Guöjón útskrifaðist úr Stýrimannaskólanum i Reykjavik fyrir réttum tuttugu árum, en þangað fór hann eftir að hafa sótt undirbún- ingsnámskeið heima á Isa- firöi. Fyrst skipti hann frekar ört um báta, var til aö byrja meö á Guðbjörginni hans Ás- geirs Guöbjartssonar sem stýrimaöur, þá skipstjóri á Gunnhildi, sextiu tonna Is- firöingi úrhöndum Marselius- ar, en svo á Guörúnu Jóns- dóttur, 200 lesta Norsara. Loks réöst hann til Jóakims Pálssonar útgeröarmanns, sem hann hefur starfað hjá æ siöan, fyrst sem skipstjóri á Guörúnu Guðlaugsdóttur. Hún var seld 1972, en það sama ár sigldi Guöjón til Japans og hafði heim með sér nýjan skuttogara sem fékk nafnið Páll Pálsson. Guöjón gefur þvi skipi þá ein- kunn aö þaö sé afbragðs sjóskip sem njóti sín best í verstu vindum og það sé vita- skuld kostur viö islands- strendur. „Þaö er aftur á móti svolítið lifandi fyrir léttri báru, sem getur veriö þreytandi." Hvaöa veöurlag á hinsvegar best viö þig sjálfan, Guöjón? „Þaö er nú bara lognið. Og sléttur sjór.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.