Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Blaðsíða 16
Menn nota hvíldartíma
sinn á mismunandi hátt.
Sumir horfa á sjónvarp
og aðrir trimma. Tog-
araskipstjórinn og fé-
lagsmálamaðurinn
Guðjón A. Kristjánsson
smíðaði þennan bát og
vagninn undir hann í
hvíldartíma sínum síð-
ast liðinn vetur.
„Enn sem komið
er aö minnsta
kosti, er ég ekki
nógu pólitískt vin-
sæll, vegna þess
einfaldlega að mér
hefur ekki unnist
tími til að afla mér
vinsælda
16 VÍKINGUR
Þetta er...
alls ekki á þvi aö þeim sé
lagnara aö smiöa mann-
eskjulegri lög og reglugerðir
en til dæmis sjómönnum.“
Guöjón hefur sjálfur freist-
aö þess aö komast á þing,
fyrst i framboði meö Sigur-
laugu Bjarnadóttur frá Vigur
fyrir T-listann i Vestfjarða-
kjördæmi áriö 1983. Þar var á
ferðinni klofningur út úr hin-
um eiginlega D-lista á svæö-
inu. T-listinn náöi engum
manni inn. Guðjón var öllu
þægari í ár og sóttist eftir
góðu sæti í prófkjöri flokksins
sjálfs i heimakjördæmi sinu.
Hann lenti í sjötta sæti; „skit-
féll“ meö öörum orðum, eöa
hvaö?
„Þaö er kannski ekki alveg
réttlátt að nota þaö orö. Viö
skulum segja aö ég hafi ekki
fengið þann fjölda atkvæða
sem ég haföi vonast til.“
Og ástæöan?
„Ég haföi alltof litinn tíma til
aö kynna mig.“
Var mikiö um plott?
„Nei“.
Ertu vinsælli en þetta fyrir
vestan?
„Ég hugsa aö sjómenn á
svæöinu hafi stutt mig upp til
hópa, en veit hinsvegar sem
er aö mínar skoðanir eru ekki
nógu þekktar út fyrir þeirra
raöir. Enn sem komið er, að
minnsta kosti, er ég ekki
nógu pólitiskt vinsæll, vegna
þess einfaldlega að mér hef-
ur ekki unnist timi til aö afla
mér þeirra vinsældanna."
Skilnaður og mótlæti
Þú ert nýskilinn. Helduröu
aö þaö hafi haft áhrif á niöur-
stööuna.
„Ég býst viö þvi. Ég hef
sjálfsagt lent i umtali út af
þessum skilnaði og þaö hefur
efalitið komiö sér ilia fyrir mig
i þessu samþandi."
Var erfitt aö skilja?
„Já.“
Hann segir svo, eftir
nokkra umhugsun, aö þaö sé
fyrst og fremst öðruvisi aö
standa allt i einu uppi ein-
hleypur; ööruvisi aö þvi leyti
aö allar fyrri forsendur manns
fyrir daglegum háttum séu
breyttar. Nema þær sem lúti
aö börnunum fimm. Hann
sækist meira eftir samveru-
stundum meö þeim en áöur,
þau taki ósjálfrátt meiri þátt í
lífihans oghugsunum.
Hann segir þaö vera dæmi-
gert fyrir sig — og kannski
hans kynslóð — aö viö þess-
ar raunir, sem skilnaöinum
fylgdu, hafi hann keyrt sig
áfram i vinnu. Og mætt mót-
lætinu með enn meiri vinnu,
allt uppundir 24 tima á sólar-
hring. Hann segist reyndar
vera frekar tilfinningalega
lokaður maöur, segist líka
halda aö fólk eigi erfitt með
aö komast inn á sig. Og hvort
þaö hafi breyst eitthvað við
reynsluna sem skilnaöinum
fylgdi?
„Ég get ekki svaraö þvi,
enn sem komið er. Ég býst
samt ekki við þvi. Þaö er erfitt
aö kenna gömlum hundi aö
sitja. Ég er krabbi, viökvæmur
inni i mér, en meö haröa
skel.“
Áttu erfitt meö aö taka mót-
læti, gagnrýni?
„Ekki gagnrýni. Gagnrýni
er bara skoðanaskipti og
alltaf skiljanleg. Mótlæti get-
ur aftur á móti veriö óskiljan-
legt. Erfiöasta augnablik i lífi
minu var þegar ég þurfti aö
horfa upp á skipsfélaga minn
deyja fyrir framan mig. Á
þeirri stundu skildi ég ekki lif-
iö, skildi þaö engan veginn og
svo var lengi vel á eftir."
Trúin gerir menn
réttsýna
Trú?
„Já, trúin er mér mikilvæg.
Ég hef verið trúaöur allt frá
barnæsku. Mér finnst samt
erfitt og nánast óþarft aö
vera mikið aö skilgreina trúna
mina. Ég geri ekki mikinn
mun á trúarbrögðum. Ég hef
fyrst og fremst þá trú aö til
séu æöri máttarvöld, sem
komi jákvæöu til leiðar. Þau
styrki menn, gefi þeim innsýn
i þaö sem þarf aö takast á
viö, geri menn réttsýna og
umfram allt umburðarlynda.“
Fyrir hvaö vildiröu aö þér
væri helst þakkaö?
„Ef þaö verður einhvern-
tima eitthvað skrifaö um mina
ævi, vildi ég framar öllu aö ég
mætti njóta sannmælis og
þar færu hvorki ýkjur né
væmni.“
Þú ert raunveruleikamaöur?
„Já, mér lætur best að lita
raunhæft á hlutina. Samt eiga
allir sina drauma.“