Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Blaðsíða 65
fyrsta umræða
meö ávörpum ráðherranna
sem hlut áttu aö máli, þeirra
Sverris Hermannssonar og
Halldórs Ásgrimssonar, en
aö þeim loknum kynntu full-
trúar starfshópsins niöur-
stöður sinar. Aö þvi loknu
höföu nokkrir menn framsögu
um ýmis sjónarmið á þessu
máli og enn síðar voru pall-
borðsumræður, þar sem enn
fleiri tóku til máls og sögðu
sína skoðun.
Margir ræðumanna höfðu
orð á að hljóðlega hefði verið
að þessu verki staðið, þannig
að þeir hefðu ekki heyrt á það
minnst fyrr en þeir fengu
fundarboðið. Þeir hinir sömu
létu í Ijósi það álit að nefndin
hefði átt að leita álits enn
fleiri manna en hún geröi, og
fygldi þó allgóður nafnalisti
manna sem hafðir voru með i
ráöum, með framlögðum
gögnum starfshópsins. Vel
kann að vera aö skýrslan
hefði orðið fyllri ef fleiri hefðu
fjallað um efnið, en undirrit-
aður telur að ekki hafi þarna
verið lagðar fram fullmótaðar
tillögur til að leggja fyrir
Alþingi, heldur hafi fyrst og
fremst verið lagður fram um-
ræðugrundvöllur til undirbún-
ings þessu stóra máli.
Við íslendingar höfum
gjarnan stært okkur af góðum
sjávarafurðum á mörkuöum
heimsins og á góðum stund-
um höfum við jafnvel látið i
veðri vaka að við ættum að
gera okkur mat úr þekkingu
okkar á meðferð sjávarafla
og flytja hana út. Meiningin er
hinsvegar sú að við stöndum
engri fiskveiðiþjóð á sporði i
menntun manna i sjávarút-
vegsfræðum. Að visu eigum
við ágætlega menntaöa
tæknimenn til að stjórna
skipum og vélum, en hinn
almenni fiskimaður og fisk-
vinnslufólk hefur ekki átt
þess kost að heyja sér þekk-
ingar i sinni starfsgrein.
Þessvegna er ástæða til að
fagna þeirri umræðu sem hér
fer af staö og við verðum að
vona að hún leiöi til mikilla
framfara. Reyndar þarf að
gera meira en vona, allir sem
hlut eiga að málinu verða að
leggjast á eitt til aö gera
framvindu þess sem besta.
Margir þeirra sem stigu i
pontu á fundinum töluðu af
þekkingu og reynslu af
skólamálum og fóru þar auö-
vitað fremstir skólastjórar og
kennarar. Þeim bar nokkuð
saman um að hagkvæmt væri
að sameina skólana til þess
aö gera kennsluna hag-
kvæmari í þeim fögum sem
eru eins i öllum skólunum.
Aðrir bentu á að hugmyndir
starfshópsins væru ekki
nógu viðtækar, þar vantaði
ýmsa nauðsynlega þætti,
sem beint og óbeint snerta
þennan aðalatvinnuveg okk-
ar islendinga. Þar var nefnt
að ekkert væri minnst á
slysa- og öryggisfræðslu og
einnig kom það álit fram að
vélskólinn ætti enga samleið
með hinum skólunum, þar
sem stór hluti vélstjóra starfi
ekki á sjó né við vinnslu sjáv-
arafla. Þessvegna ætti skól-
inn miklu frekar samleið með
öðrum tækniskólum.
Undirrituðum fannst vanta i
umræðuna hugmyndir um
menntun veiðimanna, þeirra
sem afla fiskjar og flytja hann
að landi. Þeirra hlutur er stór,
þvi að enginn vinnur góða
vöru úr lélegu hráefni, hversu
menntaður sem hann er.
Einnig vantar þar athugun á
hagkvæmni þess að kenna
útvegsfræði á háskólastigi
hér, sbr. háskólann í Tromsö
o.fl.. Sölutækni og markaðs-
mál sjávarútvegsins þarf að
taka miklu fastari tökum en
gert hefur verið til þessa og
þarvantarsérhæfða menn.
Að siðustu vil ég nefna
atriði sem ekki var á minnst í
skýrslunni. Þar á ég við þá
umfjöllun siglingaþjóöa, sem
talsvert hefur heyrst af i
seinni tiö, þess efnis að nú-
verandi starfsskipting um
borð i flutningaskipum sé að
renna skeið sitt á enda og við
taki skipstæknar, sem gangi
saman að öllum störfum. Ef til
vill eru þær hugmyndir enn of
vanþróaðar til að vera mark-
tækar, en eigi að siður er
sjálfsagt aöskoða þær alvar-
lega, þegar fjallaö er um end-
urskipulagningu á mennta-
kerfi sjómanna.
Reyndar er þaö svo, að
þegar hugmyndir þær sem
starfshópurinn lagði fram, eru
skoðaðar, verður varla séð
að þær miöi verulega að auk-
inni fræðslu fyrir þá sem að
sjávarútvegi starfa, heldur
miklu frekar að gera þá
fræðslu sem fyrir er ódýrari í
rekstri. Það er útaf fyrir sig
gott markmiö, en það má ekki
vera nema fyrsta stigið i stór-
stigum endurbótum á sjávar-
utvegsfræðslu.
Hér er aðeins stiklað á
stóru i umræðunni, en Viking-
urinn hvetur alla sem áhuga
hafa á málinu að leggja sitt
álit fram, Vikingurinn er opinn
þeim sem vilja leggja þar til
málanna.
S.V.
Ráðherrarnir Sverrir
Hermannsson og Hall-
dór Ásgrímsson kynntu
tilganginn með stofnun
nefndarinnar, sem þeir
skipuðu til að fjalla um
sjávarútvegsskóla.
VÍKINGUR 65