Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Blaðsíða 70
Ratsjá
VÍKINGUR
LÚÐA. Birgöir aukast og margir óttast að sala '
minnki vegna hins háa verös. Birgðir af frystri
lúöu voru aðeins yfir 4540 tonn i lok maimán-
aöar, sem var mikil aukning frá lok aprilmánaö-
ar þegar birgöirnar voru 450 tonn. Birgðir í lok
maí 1985 voru 2100 tonn. En jafnvel þótt
þirgðir hafi vaxið er veröiö áfram hátt. I byrjun
vertíöar var verð upp úr skipi 169 kr/kg sem
samsvarar heildsöluveröinu 175 — 185 kr/kg. í
smásölu hefur veröiö hækkað heldur meira og
hafa verksmiðjuframleiddir réttir veriö seldir á
460 kr/kg, en á siðasta ári fengust 275 kr. fyrir
kilógrammið af sömu vöru. Um miðjan júni
höföu veiöst 19.070 tonn af 30.146 tonna
kvóta. Þegar leið á vertiöina hækkaöi verö til
sjómanna og fór upp í 185 kr/kg á ferskum
fiski. Heildsöluverð var á sama tíma 199 — 203
kr/kg fyrir frysta lúðu. Þaö eru teikn á lofti um
minnkandi sölu hjá smásölum sem gæti stafað
af hinu háa veröi og viðbrögöum neytandans
gegn því.
LAX. Markaður fyrir stóran lax (chinook) er
slakur um þessar mundir og kemur þaö sér-
staklega viö sjómenn sem veiða lax á línu. Þeir
fá nú aöeins 164 kr. i Alaska en ekki nema 146
kr/kg i British Columbia (Kanada). Áriö 1985
var verö á þessari stærö af laxi i Alaska 229
kr/kg upp úr sjó, þaö hefur þvi lækkað veru-
lega. Sunnar viö vesturströnd Bandaríkjanna
eöa sunnan viö 48. breiddargráöu ætluðu fisk-
kaupendur aö lækka verðiö úr 217 kr/kg i 185
kr/kg Sjómenn mótmæltu þessu meö því aö
binda báta sina. Kaupendur töldu sig ekki geta
greitt hærra verö en 185 kr/kg þar sem þeir
heföu tapað markaðnum til Norðmanna sem
flyttu inn til Bandrikjanna eldislax. Meö verö-
lækkuninni gætu þeir hugsanlega náð við-
skiptavinum aftur. Viö vesturströnd Bandaríkj-
anna sunnan 48. breiddargráöu höföu veiðst
48.344 laxar 8. júni, en á sama tima i fyrra var
veiðin 44.484 laxar. Birgðir af frystum stórlaxi
voru i maí lok um 450 tonn, i april um 900 tonn
en voru 500 tonn í maí 1985. Af öörum tegund-
um (smærri laxi) voru birgðir i mai s.l. 5000
tonn, 7000 tonn i april, en 4500 í maí 1985. Frá
Evrópu berast þær fréttir aö birgöir af frystum
laxi hafi eitthvað minnkaö. Hvaö varöar niður-
soöinn lax voru fyrir hendi 1,4 milljónir kassa
1. mai s.l.. Áriö 1985 voru þessar birgðir i sama
mánuði 1,8 milljónir kassa og 1,2 milljónir áriö
1984. Kyrrahafslaxanefndin gerir ráö fyrir aö
alls 14 milljónir laxa muni á þessu ári ganga i
Fraser River, sem er aö hluta á landamærum
Bandaríkjanna og Kanada. Nefndin ætlar að
skilja 4,6 milljónir laxa eftir í ánni, en skifta 9,5
milljónum milli Kanada og Bandaríkjanna
þannig aö Kanada fái 7,2 milljónir laxa, en
Bandarikjamenn 2,3 milljónir.
SURIMI. Eins og er selst öll surimiframleiösl-
an svo til jafnóöum og veröið fer hækkandi. Um
miöjan júni var heildsöluverð á fyrsta flokks
surimi framleiddu um borö í verksmiðjutogara
132 — 138 kr/kg á Japansmarkaöi. í Bandaríkj-
unum voru birgöir af frystu surimi um miöjan
júni 640 tonn, en voru í april lok 680 tonn.
Birgöir af surimifiskafuröum, þar með talinn
gervikrabbi, jukust úr 1770 tonnum í aprillok
s.l. i 2810 tonn i maílok. I Japan voru birgöir af
frystu surimi í marslok s.l. 100.400 tonn, sem
var nokkru minna en i febrúar þar sem birgðir
voru 104.997 tonn og 121.023 tonn i mars
1985. Útflutningur Japana á gervikrabba til
Bandarikjanna á timabilinu janúar—april hefur
aukist úr 8600 tonnum sömu mánuöi 1985 í
9000 tonn á þessu ári. Áhrif Kóreumanna á
þessum markaði halda áfram aö aukast. I
vetrarbyrjun veröa þeir búnir aö taka i notkun
sex nýja verksmiöjutogara, sem allir vinna
aflann i surimi og samtals afkasta 250 tonnum
af þessari afurð á sólarhring.
ANSJÓSA. Hrygningarstofn ansjósu viö
vesturströnd Bandarikjanna hefur nýlega verið
metinn 770.000 tonn. Ákjósanleg árleg veiöi
er talin 144.900 tonn, en leyfð veiöi árin 1986
og '87 er 140.000 tonn. Þaö sem af er vertið-
inni hefur aðeins veriö landaö 1511 tonnum.
Betur gengur i makrílveiöunum þvi þar höfðu
veiðst 15. júni alls 19.047 tonn.
RÆKJA. I byrjun júli var verö upp úr skipi 46
kr/kg.. Þetta háa verö og aö veiði var góö varö
til þess aö margir héldu áfram rækjuveiðum,
sem annars hefðu hætt. I lok júni var afli sem
landaö var i Washingtonriki i Bandarikjunum
orðinn meiri en nokkru sinni fyrr eöa siöar eöa
4360 tonn. Þetta er um það bil þrefalt meiri
veiöi en áriö 1985. i Oregon, næsta ríki sunnan
við Washington, varð svipuö aukning, en þar
voru komin á land 15. júli 6810 tonn af 9530
tonna leyföri veiði. i Washington fóru
220—240 stykki í kílógrammið en 240—280 í
Oregon.
SÍLDARHROGN. Um 71.000 tonn af síld
veiddust á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna og
Kanada á sildarvertiðinni 1985—86. Úr þess-
ari sild fengust 9050 tonn af hrognum.