Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Side 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Side 36
Erum að festast Áöur þóttu stóru hölin mikill fengur, á þeim árum sem magn var tekiö langt fram yfir gæöi. Nú hefur viðhorf- ið breyst þannig að gæðin eru meira metin, því að magniö er tak- markað. 36 VÍKINGUR sem er líklegra, að flestir mundu gera, selja hann. (Vís- ir að kvótasölu og markaðs- veröi kvóta er þegar að finna I núgildandi kvótakerfi. Út- gerðir hafa veriö reiðubúnar að greiöa umtalsverðar fjár- hæöir fyrir þorsk syndandi í sjó.) Augljóslega munu ein- staklingskvótarnir safnast til þeirra útgerða sem sýna nægjanlega hagkvæmni i rekstri og geta greitt fyrir kvótann. Þessi háttur á kvótaúthlut- un mun hinsvegar aldrei viö- hafður í reynd heldur verður aö leita viðeigandi útfærslu þessarar grundvallarhug- myndar sem hentað gæti is- lenskum aðstæðum og tryggt gæti hagkvæmustu sókn i fiskistofnana. Fleiri en útgerðir fái veiöiréttinn I Ijósi þess hvernig núver- andi kvótakerfi er komið til, þá er eðlilegt aö miöað hafi verið við kvóta á skip, sem þegar til lengri tima er litið er alls ekki sjálfsagður hlutur. Þannig skulum við gera ráð fyrir, að i því fiskveiðistjórn- unarkerfi framtiðarinnar, sem verður að stefna að, þá þurfi allir, lika vinnslustöðvarnar, að hafa möguleika á að kaupa veiðirétt tiltekinna fisktegunda og ráða svo til sin skip eftir eigin hentug- leikum til að ná þeim afla. I þvi skipulagi sjávarút- vegsins sem keppa ber að þurfa menn einnig að losna úr viðjum þess hugsunarhátt- ar að einhverja nauðsyn beri til að verðleggja þann afla sem að landi berst. Stöðugt verður algengara að útgerð sé í eigu fiskvinnslunnar og i þeim tilfellum er vitanlega út i hött að „menn úti i bæ“ í Verðlagsráði sjávarútvegsins séu að verðleggja afurð frá einni deild (veiðum) til ann- arrar (vinnslu) innan eins og samafyrirtækis. Einnig þó svo að sjálfstæö- ar útgerðir lifi, þá ber alls ekki nokkra nauðsyn til að verð- leggja afla, því viðskipti fisk- vinnslunnar við fiskiskip geta hæglega komist á, án þess að hráefnið sé verðlagt. Fyrir samskipti útgerðar við sjómenn þarf verðlagn- ingin ekki að hafa hina minnstu þýðingu, því sjó- menn, einir launþega, þurfa að búa við að fá laun eftir ákvörðunum stofnunar ,,úti i bæ“, i stað þess að taka laun i hlutfalli við vinnuframlag sitt, líkt og aðrar stéttir. Hægur vandi væri að byggja upp launahvetjandi vinnukerfi hjá sjómönnum likt og gerist hjá öðrum launþegahópum. Hér að framan hef ég að nokkru drepið á hugmyndir sem eru meðal þeirra, sem leggja þarf í púkkið, þegar umræðan um framtiðarskip- an islerv^ks sjávarútvegs hefst fyrir álvöru. Þvi miöur bólar ekki á, að menn leyfi sér að setjast niður og hugsa málin til lengri framtiðar en næsta árs eða næstu tveggja ára. Sú nauðsyn knýr þó stöðugt á og verður brýnni til að komast frá bráðabirgða- ráðstöfunum á borð við kvótakerfi þaö, sem við nú búum við.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.