Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Side 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Side 16
Vonirnar Magnús með bækling um stöðugleika fiski- skipa sem Siglinga- málastofnun hefur gefið út og verður dreift í öll skip á næstunni. 16 VÍKINGUR fengju alls konar öryggisút- búnað um borð en létu hann sig síðan litlu varða eftir það. Heldurðu að slíkt kæruleysi hafi minnkað? „Ég held það og byggi þá skoðun mína á viðræðum við skipstjórnarmenn. Samt sem áður hef ég of mörg dæmi um hið gagnstæða, því miður. í þessu sambandi er rétt að taka fram að það er meira en bara fræðsla um björgunarbúnað, sem nýliðar um borð í skipun- um þurfa að fá. Ég nefni sem dæmi að tíðni vinnuslysa um borð í fiskiskipum er allt of há. Þar skortir á að menn séu upp- fræddir eins og vera ber, því slysatíðnin virðist hafa aukist. Flest slysin virðast eiga sér stað við meðhöndlun veiðar- færa. Ég bendi á það að í sjó- mannalögunum eru skýr fyrir- mæli um skyldur skipstjóra að leiðbeina nýliðum. Og þá ekki bara um björgunar- og öryggis- búnað, heldur líka um vinnuna um borð. Ég hef ekki séð tölu- legar staðreyndir en hef heyrt að nýliðar lendi oftar í slysum um borð í skipunum en vanir sjómenn. Úrvinnsla slysaskráningar hér á landi hefur ekki verið nægjanlega góð. Við erum að gera okkur vonir um að á því geti orðið breyting. Nýlega hef- ur komið fram hugmynd um að taka upp eitt slysaskráningar- kerfi fyrir öll Norðurlöndin. Okk- ur stendur til boða að nota kerfi sem norska siglingamálastofn- unin hefur útfært og notað í 5 ár. Það er nú verið að vinna að því að gera á því þær breyting- ar að Norðurlöndin öll geti not- að það. Ég tel að það kæmi okkur að ómetanlegu gagni að geta veriö með, ekki aðeins til að skrá betur og rannsaka slys sem verða hér, heldur fengjum við þar með aðgang að hlið- stæðum upplýsingum frá hin- um löndunum, til að nýta í for- varnarstarfi." Hin tíðu óhöpp smá- báta — Þegar bátum undir 10 lestum tók að fjölga svo um munaði sagðir þú og raunar fleiri að þetta væri skref aftur á bak. Þróunin frá aldamót- um hefði verið sú að bátarnir stækkuðu og öryggið ykist. Ertu enn sömu skoðunar eft- ir fengna reynslu? „Ég fæ ekki betur séð en að þær áhyggjur sem ég lét í Ijós þegar þessi þróun hófst hafi ekki verið aö ástæðulausu. Tíð óhöpp við ágætar aðstæður hjá þessum trillum að undan- förnu staðfesta það einmitt. Ég get ekki sagt til um hvað veldur þessum slysum en við þurfum nauðsynlega að komast að því, þótt við höfum blessunarlega verið lausir við mannskaða í þeim. Við tökum að sjálfsögðu þátt í sjóprófum vegna þeirra og rannsóknum og leggjum okkur fram um að finna ástæð- urnar. Þegar þær eru fundnar notum við þær svo í tillögum okkur til ráðherra varðandi reglurgerðir til úrbóta." — Hefur eitthvað sérstakt komið fram í rannsóknum ykkar til þessa? „Nei, ekki ennþá. Það hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að hönnun bátanna sé ábótavant og að mínum dómi hafa engar viðhlýtandi skýring- ar komið fram á þessum óhöppum. Því má ekki gleyma í þessu sambandi að sumir af þessum minni bátum eru ekki skoðaðir. Ég er ekki að segja að það hefði skipt sköpum ef svo hefði verið, en þetta bendir okkur eigi að síður á að enn finnast menn sem ekki vilja hlýta þeim lagaskyldum sem þeim eru settar, það er að búa skipin samkvæmt reglum og láta skoða þau og ganga úr skugga um að bátarnir séu rétt út búnir.“ — En er ekki skylda að koma með þessa báta til skoðunar? „Jú, mikil ósköp. Eigendum skipa ber að koma með alla báta niður að 6 metrum til skoð- unar árlega. Þarna hefur samt orðið veruleg breyting á. Árið

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.