Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Blaðsíða 40
Frá forystunni
Fór Sigurbjörn eftir þennan
fund til lögmanns félagsins,
sem var sama sinnis og stjórn-
in.
Einhverra hluta vegna vildi
Sigurbjörn ekki senda kæruna
fyrr en í byrjun ársins 1985.
Sú staðhæfing að stjórnin
hafi meinað Sigurbirni að fá að-
stoð hjá lögmanni félagsins er
alfarið röng, sem best sést á
því að Sigurbjörn sagði sjálfur í
grein í Helgarpóstinum 4. des.
1986 að Skúli Pálsson hrl., lög-
maður félagsins, hefði ráðlagt
sér að kæra til Rannsóknar-
lögreglu Ríkisins og var ekki
annað vitað á þeim tíma en Sig-
urbjörn væri fullkomlega sáttur
við þá málsmeðferð.
Málið var sent f rá Rannsókn-
arlögreglu Ríkisins 30. apríl
1985 til Ríkissaksóknara sem
afgreiddi málið 8. jan. 1986 á
þann veg að hann sæi ekki
ástæðu til aðgerða.
Hinn 1. apríl 1986 var haldinn
fundur í stjórn félagsins að
beiðni Sigurbjörns. Enn tók
hann upp „fölsunarmálið"
svonefnda og óskaði eftir að fé-
lagið „gengi í það“ eins og hann
orðaði það.
Hann lét hinsvegar undir
höfuð leggjast að segja frá
því sem öllu máli skipti, að
saksóknari hefði þegar af-
greitt málið á þann hátt sem
að framan greinir.
Ennfremur óskaði Sigur-
björn eftir því á fundinum að
félagið aðstoðaði sig við aö ná
rétti sínum hjá útgerðinni og
taldi að hann hefði verið látinn
gjalda þess að hann hefði tekið
þátt í félagsmálum stéttar sinn-
ar. Hann gat hinsvegar engin
dæmi nefnt um þetta en dró
fram atvik sem varð til misklíðar
milli hans og annars stýri-
manns á skipinu, en útgerðin
átti engan þátt í. Atvik þetta var
kannað af framkvæmdastjóra
félagsins á sínum tíma og sá
hann ekki ástæðu til að hafast
frekar að.
Málsatvik voru þau að Sigur-
björn stundaði nám í útgerðar-
deild Tækniskóla fslands
haustið og veturinn 1982. Um
miðjan desember hugðust
stýrimenn skipsins skipuleggja
vaktir og vinnu sína um jól og
áramót. Komu þeir að máli við
Sigurbjörn og spurðu hvort
hann hygðist koma til starfa í
jólafríi. Hann svaraði engu og
vissu þeir ekki hvort hann
kæmi til starfa á umræddu
tímabili. Geröu þó ráðfyrir hon-
um nokkurn tíma. Sigurbjörn
birtist þó einn góðan veðurdag
og sagðist mættur til vinnu.
Honum var þá sagt af sam-
starfsmönnum að hans tími
væri ekki nú og yrði hann að
ganga inn í það kerfi sem sett
hefði verið, hann hefði getað
haft á það áhrif en ekki viljað og
yrði nú að una því eins og það
væri. Þessu reiddist Sigurbjörn
og taldi sig vera ofsóttan af út-
gerðinni, sem var hrein fjar-
stæða, þar sem skipulag þess-
ara mála var alfarið í höndum
stýrimannanna sjálfra. Það er
rétt að stjórn félagsins taldi sér
ekki fært að hafa afskipti af
þessu margra ára gamla deilu-
máli.
Þetta voru þau mál sem fé-
lagiö vildi ekki sinna fyrir Sigur-
björn og hann gerði að ástæðu
til að segja af sér stjórnarstörf-
um og ásökunarefni á stjórn og
framkvæmdastjóra félagsins í
Helgarpóstinum 4. des. 1986
og nú í Sjómannablaðinu Vík-
ingi.
Það var svo nokkurnveginn
jafnsnemma að Helgarpósts-
greinin birtist að Sigurbjörn
sagði af sér varaformennsk-
unniog að honum var sagt upp
störfum hjá útgerðinni.
Enn þurfti hann á aðstoð lög-
fræðings að halda. Leitaði
hann þá að sjálfsögðu aftur til
lögmanns SÍ sem „stóð með
honum og náði 330% (!!!)
bótum og toppmeðmælum"
að sögn Sigurbjörns sjálfs.
Menn verða svo að meta það
hver fyrir sig hvort líklegt sé að
SÍ hafi lagst gegn því að Sigur-
björn næði þeim rétti sem hon-
um barog hafajafnframtíhuga
Skoðun og viðgerðir gúmmíbáta
allt árið
T eppi og dreglar til skipa
ávallt fyrirlyggjandi
GÚMMIBÁTAÞJÓNUSTAN
Eyjargötu 9 Örfirisey
Sími: 14010
40 VÍKINGUR