Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Blaðsíða 51

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Blaðsíða 51
Hcr oá nú smiínisjmm Myndbönd Nornirnar frá Eastwick Leikstjóri: Kennedy Mull- er. Aðalleikarar: Jack Nicholsson, Cher Susan Sarandou, Michelle Pfeiffer. 21/2 stjarna Full metal jacket Enn eitt meistarastykkiö frá leikstjóranum Stanley Kubrick sem meðal annars skapaöi The Shining, Clockwork or- ange, Spartacus og fleiri. Hér dregur hann upp hörku í heimi sem maður reynir aö forðast í lengstu lög, en kalli háttsettur maður, hlaupum við til og látum okkur hafa það að dreifa blóði ímyndaðs andstæðings um jarðir sem við höfum ekkert með að gera. Sex ár voru liðin frá síðustu mynd Kubricks þegar Full met- al jacketva.i frumsýnd í bíóhús- unum. Sá tími hefur greinilega verið vel nýttur því varla er hægt að finna slæmt mynd- skeið í allri myndinni. Hver taka úthugsuð, hver hreyfing nauð- synleg og engin ónauðsynleg, hver einasti þáttur myndarinn- ar nauðsynlegur til að skapa það andrúmsloft sem ríkir í myndinni og gefa áhorfandan- um vitneskju um hvernig „Mar- ine Corps“ tekur á móti venju- legum ungum mönnum og Nornirnar frá Eastwick Smábæjarlíf getur oft orðið mönnum erfitt, sérstaklega þó þeim sem skera sig úr að ein- hverju leyti. Þetta ættum við ís- lendingar kannski að vita allra manna best. Kjaftasögurog illa innrætt fólk getur gert lífið ansi erfitt þeim sem minna mega sín, í guðs nafni og amen. í Nornunum frá Eastwick sam- einast fjórar persónur sem vilja njóta lífsins á ósiðsamlegan hátt að mati smábæjarbúa. Mikilsmetin kona bæjarins er þó manna hörðust gegn þessu lífi þeirra enda veit hún að djöf- ullinn sjálfur er þar á ferð. Hún hefur þó sjálf ekkert á móti góð- um drátti, eins og hún segir sjálf, en tippatal og annað gróf- orðað athæfi þeirra fjögurra finnst henni of mikil spilling. Myndin er sprenghlægileg á : ACCLAIMED BY CRITICS AROUND THE WORLD AS THE 1EST WAR MOVIE EVER MADE Stanlcy Kubrick's FULL NETAL JACKET O Full metal jacket. leikstjóri: Stanley Kubríck Leikarar: Matthew Modine, Adam Baldwin, Vincent D"onofuic, Lee Ermey og Kevin Major Howard. breytir þeim í morðvélar. Það tók sinn tíma að koma Futlmet- al jacketírá sér, en meðal ann- ars þurfti aðalleikarinn Matt- hew Modine að ganga í gegn- um „Marine corps“ skólann áður en hafist var handa við köflum en grátbrosleg þess á milli. Leikur myndarinnar er með eindæmum góður enda engir nýliðar á ferðinni: Jack Nicholson sýnir enn eina hlið á sér og maður fer að velta því fyrir sér hvort hæfileikar hans séu óþrjótandi; Cher, Susan og Michelle eru allar góðar en sú síðastnefnda vakti þó sérstaka athygli mína fyrir túlkun sína á hinum nýskilda mannhrædda kennara í karlaveldi. Leikstjórn er einnig góð því hér er farið með vandfarið efni sem auö- veldlega gæti farið úr skorðum og yfir í tóma þvælu. En Kenn- edy Miller fer aldrei yfir mörkin og tekst að skila frá sér skemmtilegri afþreyingu og vel gerðri mynd sem allir sem hræðast ekki grófan munn- söfnuð ættu að sjá. upptökur myndarinnar. Þessi mynd er ekki afþreyingarefni heldur sköpunarverk sem fólk ætti að horfa á með krítískum augum og reyna að skilja þann heim sem myndin fjallar um því að þetta gæti eins verið raun- verulegur heimur hermannsins í Víetnam og víðar. Samkvæmt venju verða gefnar stjörnur og ef hægt er að gefa kvikmynd 4 stjörnur þá fær þessi mynd þær allar. Kringlunnl. Útbúum lyfjakistur fyrir skip og báta. Eigum ávallt tilbúin lyfjaskrín fyrir vinnustaði, bifreiðar og heimili. Almennur sími 689970. Beinar línur fyrir lækna 689935. Kristján Sigurjónsson VÍKINGUR 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.