Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Blaðsíða 18
Vonirnar
18 VÍKINGUR
kemur aö eftirlitiö veröur ná-
kvæmara og samræmdara.
Af öörum stórum verkefnum
sem hafa verið í gangi má
nefna uppsetningu á eldviðvör-
unarbúnaði um borð í fiskiskip-
um. Slíkur búnaður er nú kom-
inn í öll skip. Þar er um að ræða
hita- og reykskynjara í öllum
rýmum skipanna. Nú þegar veit
ég dæmi um að þessi búnaöur
hefur komið í veg fyrir elds-
voða, en því er ekki að leyna að
vandamál hafa komið upp. í
sumum tilfellum hafa uppsetn-
ingaraöilar búnaðarins ekki
staðið sig sem skyldi. Það hef-
ur svo aftur valdiö því að skip-
verjar hafa tekið búnaðinn úr
sambandi vegna þess að hann
var að fara í gang þegar ekkert
var að. Áhöfnin hefur svo ekk-
ert gert í því aö láta gera við
búnaðinn eða uppsetningu
hans. í öðrum tilfellum hefur
skipstjóri haft samband við
uppsetningaraðila, sem svo
aftur hafa ekki sinnt málinu
eins og þeim bar. Sem dæmi í
þessu sambandi má nefna að
titringur hefur á stundum valdið
því að tækin hafa farið í gang.
Þar sem uppsetningaraðilar
hafa lagt sig fram um að leysa
þetta hefur það tekist. Aðrir
hafa því miður brugðist en það
er hinsvegar engin lausn að
taka búnaðinn úr sambandi
eins og ég veit dæmi um að
gert hefur verið.
Mig langar einnig að minnast
á verkefni sem við erum með í
vinnslu, en það er hávaðamæl-
ing um borð í skipum. Eftirlits-
maður frá Siglingamálastofnun
hefur farið tvær ferðir í sumar
og farið um borð í 19 skip sem
eru með fiskvinnslu um borð.
Við höfum notið góðrar aðstoð-
ar Landhelgisgæslunnar við
þetta verkefni. Það hefur enn
ekki verið unnið úr þeim upp-
lýsingum sem aflað var, en þær
verða kynntar eigendum skip-
anna um leið og þær liggja fyrir.
Síðan munum við nota þær til
að ákveða hvað þarf að gera
almennt um borð til að minnka
hávaðann. Það er vitað að háv-
aði hefur valdið miklum heyrn-
arskemmdum og því hefur
verið haldið fram að sjómenn
hafi orðið fyrir þessu mjög mik-
ið. Því held ég að minnkun háv-
aða um borð í skipum sé eitt af
því sem leggja þarf aukna
áherslu á í framtíðinni. Þetta á
ekki síst við nú eftir að fisk-
vinnsluskipin komu til sögunn-
ar, þar sem vitað er að um borð
eru ýmis tæki og vélar sem
valda miklum hávaða. Við er-
um með ákveðnar reglur um
hávaða og miðum við 80 desi-
bel, en við vildum mæla hávað-
ann við raunverulegar aðstæð-
ur og því var maður sendur um
borð í skipin og dvaldist einn til
einn og hálfan sólarhring í
hverju skipi."
Undanþágurnar
— Áður en við Ijúkum
þessu spjalli langar mig að
spyrja um undanþágurnar,
sem svo mikið var rætt um
fyrir nokkrum árum hvernig;
standa þau mál?
„Það hefur orðið verulega
breyting þar á til þatnaðar, en
samt sem áður varð nokkur
fjölgun á undanþágumönnum
á síðasta ári. Við höfum ekki
handbæra skýringu þar á
nema ef þetta tengist hertum
aðgerðum varðandi lögskrán-
ingar á skipin. Varðandi lög-
skráningu hefur víða verið pott-
ur brotinn og auðvitað er þar
um vítavert athæfi að ræða ef
menn eru ekki með lögskrán-
ingu á skipum sínum.
ífyrravarfarin kynningarher-
ferð varðandi lögskráningu um
allt land á vegum samgöngur-
áðuneytisins og í því tóku þátt
starfsmenn Siglingamálastofn-
unarinnar og fulltrúar hags-
munasamtaka. Ég hef trú á því
að lögskráning hafi batnað
verulega við þetta. Og ég held
að sú aukning sem varð í fyrra
á undanþáguveitingum stafi af
þessari herferð. Ef til vill er
aukning engin, það var bara
ekki sótt um undanþágur áður.
Frá árinu 1984 til 1987 hafði
verið stöðug fækkun á undan-
þágum eða úr 1105 árið 1984
niður í 711 árið 1987. Það liggur
þó fyrir að réttindi þeirra sem
eru á undanþágu eru meiri nú
en áður var. Algengast er að
sótt sé um undanþágu fyrir
menn upp fyrir þau réttinda-
mörk sem þeir hafa. Ég gæti
trúað að hin mikla fjölgun smá-
báta eigi hér nokkra sök, vegna
þess að það er algengt að
menn með full réttindi fái sér
smábát og hætti vinnu á stóru
skipunum. Þess vegna hefur
fækkun undanþáguumsókna
ekki verið með sama hraða og
árin 1984 til 1986.“
— Heldurðu að námskeið-
in sem boðið hefur verið
uppá undanfarin ár valdi
því?
„Það er enginn vafi á því.
Námskeiðin hafa komið að
miklu gagni og það voru þau
fyrst og fremst sem urðu til
þess að undanþágubeiðnum
fækkaði fyrstu árin."
— Hvernig er staðan í ár?
„Mér sýnist í fljótu bragði að
það verði álíka margar um-
sóknir um undanþágur í ár og í
fyrra eða rösklega 700. Ég vil
þó taka fram, að réttindalaus-
um mönnum með undanþágu
hefur fækkað mjög hin síðari ár
og þar hefur engin breyting
orðið á það sem af er árinu.
Það stefnir því allt í rétta átt
með þessi mál, þótt þau mættu
ganga heldur hraðar fyrir sig“,
sagði Magnús Jóhannesson
siglingamálastjóri að lokum-.
S.dór