Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Blaðsíða 24
Virkjanir
Garðar Kári Garðarsson
vélfræðingur er trúnað-
armaður félagsins við
Laxá og sést hér við
stjórntöflu virkjunarinn-
ar.
■I
þessu kerfi til vélfræðinganna í
sinni þjónustu. Að þessu skoð-
uðu er ennþá eðlilegra að
Landsvirjunarmenn séu
óánægðir með kjör sín og teng-
ingu þeirra við verksmiðjurnar,
en sagan segir okkur að upp-
taka á ákvæðisvinnu hefur það
í för með sér að fastur hluti
launanna hefur tilhneigingu til
þess að lækka hlutfallslega
með hækkandi launum, þ.e.a.s
að áhersla starfsmanna til þess
að hækka föstu launin minnkar
ef ákvæðisvinnuþátturinn skil-
ar ríflega þvi sem þar vantar,
enda mun einfaldara að fela
slíkar kjaraþreytingar í því sam-
anburðarþjóðfélagi sem við lif-
um í.
En hvað er til ráða til að bæta
hlut þessa hóps sem ekki hefur
verkfallsrétt til að ná fram eðli-
legum kjarabreytingum? í dag
virðast verkföll litlu skila, afturá
móti er komin fram ný tækni í
þessum málum. Hún virðist
vera eitthvað í þá átt að starfs-
menn mæta í vinnu en gera
helst ekki neitt, í það minnsta
mjög lítið. Hvort starfsmenn
Landsvirkjunar grípa til slíkra,,
moderne" vinnubragða til að
rétta sinn hlut skal ósagt látið
enda ekki í mínum verkahring
að hafa áhrif þar á.
„Svört skýrsla“ í Noregi
íslenskur sjávarútvegsfræðingur veldur deilum í norskum sjávarútvegi
Gunnar Ægisson sjáv-
arútvegsfræöingur.
24 VÍKINGUR
íslenskur sjávarútvegs-
fræðingur, Gunnar Ægisson,
hefur hrundið af stað miklum
umræðum um stöðu og framtíð
norsks sjávarútvegs. Fór um-
ræðan af stað í kjölfar skýrslu
sem Gunnar gaf út í lok ágúst
og nefnist „Norskur sjávarút-
vegur árið 2000“.
í skýrslu Gunnars er dregin
upp frekar dökk mynd af fram-
tíðinni. Þar er þvi spáð að
áframhald verði á þeirri fólks-
fækkun sem orðið hefur í
strandbyggðum Norður-Nor-
egs. Einnig spáir hann því að
áhrif hagsmunasamtaka í sjáv-
arútvegi á þróun landsmála
muni minnka. Þess ber að geta
aö skýrsla Gunnars byggist á
viðtölum við 33 áhrifamenn í
norskum sjávarútvegi og dreg-
ur hann ályktanir sínar af um-
mælum þeirra.
Viðbrögð við skýrslunni hafa
verið á ýmsa lund. Einar Hep-
sö, formaður Norges Fiskarlag,
er ekki sammála niðurstöðum
skýrslunnar en vill ekki úttala
sig fyrr en samtök hans hafa
fjallað um málið.
Varaformaður fylkisstjórnar-
innar í Finnmörku, þar sem
mesta samdrættinum er spáð,
dregur ályktanir Gunnars ekki í
efa heldur segir að stjórnmála-
menn verði að sporna gegn því
að spádómar hans rætist. Enn
aðrir óttast að niðurstöður
skýrslunnar gætu reynst
áhrinsorð og ýtt undir þá van-
máttarkennd sem þegar er far-
ið að gæta í sjávarplássum
Norður-Noregs.
Gunnar bendir hins vegar á
að útkoma skýrslunnar sé for-
sendan fyrir því að hægt sé að
bregðast við þróuninni með
skynsamlegum hætti. „Fyrst
núna, þegar búið er að sýna
hvert þróunin stefnir, er hægt
að hafa áhrif á hana“, segir
hann.
Gunnar Ægisson lærði fag
sitt i Tromsö en starfar nú sem
vísindamaður við Hafrann-
sóknastofnunina í Þrándheimi.