Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Blaðsíða 39
Fra forystunni
Viðbrögð við grein Sigurbjörns
Guðmundssonar í 7. tbl. Víkingsins
í síðasta tölublað Víkingsins
(7.tbl. ’88) skrifar Sigurbjörn
Guðmundsson stýrimaður
grein í greinaflokkinn „Hér og
nú“ sem nefnist „Grafartaka at-
vinnunnar". Þar kemur eftirfar-
andi fram:
„Greinar undirritaðs um
skattamál norskra og danskra
farmanna er hann birti í dag-
blöðum urðu að einhverri
mestu kjarabót sem íslenskir
sjómenn hafa náð fram á seinni
árum og voru greinarnar notað-
ar sem handbók við samning-
ana við ríkisvaldið".
Þar sem undirritaður annað-
ist þessa samninga að mestu
leyti sem voru fyrst og fremst
við þáverandi fjármálaráð-
herra, Albert Guðmundsson,
tel ég rétt að staðreyndir máls-
ins komi fram. Um alllangt
skeið hafa sjómenn notið
skattaívilnana, sem voru í upp-
hafi föst krónutala á dag og
miðaðist dagafjöldinn við þá
daga sem viðkomandi taldist
stunda sjómannastörf. Á árinu
1972 fengu fiskimenn þessu til
viðbótar að draga ákveðna
prósentu af launum frá tekjum
áður en skattur var lagður á. í
upphafi var um að ræða 8%. Á
árinu 1984 var samið við Albert
Guðmundsson þáverandi fjár-
málaráðherra um að farmenn
nytu einnig þessa frádráttar
sem þá var orðinn 10%. í samn-
ingum við fiskimenn á sama ári
hækkaði þessi frádráttur í 12%
en gengið hafði verið frá því við
Albert og fleiri ráðherra að far-
menn myndu fylgja fiskimönn-
um yrði breyting á þeirra frá-
drætti. Af þessu sést að sam-
komulag um skattamál
farmanna fólst eingöngu í því
að farmenn og fiskimenn sætu
við sama borð skattalaga. Full-
yrðing Sigurbjarnar Guð-
mundssonar um norræna fyrir-
mynd og afskipti hans af þessu
máli eru ekki í samræmi við
raunveruleikann.
Helgi Laxdal
varaforseti FFS
Athugasemdir
stjórnar Stýrimanna-
félags íslands
Sigurbjöm Guðmundsson
stýrimaður og fyrrverandi vara-
formaður Stýrimannafélags ís-
lands (SÍ) skrifar grein í 7. tbl.
Sjómannablaðsins Víkings
1988, undir yfirskriftinni „Graf-
artaka atvinnunnar".
Eftir heiti greinarinnar mætti
ætla að hún fjallaði um atvinnu-
mál þeirrar stéttar sem Sigur-
björn hefur kennt sig við. Þegar
lengra er lesið kemur hinsveg-
ar allt annað í Ijós.
Atvinnumálin eru aðeins not-
uð sem yfirskin til að koma
höggi á SÍ og stjórn þess. Fyrir
þá sem ekki vita er nauðsyn-
legt að geta þess að varafor-
maðurinn sem Sigurbjörn talar
um er hann sjálfur.
Þar sem Sigurbjörn kýs að
gera að umtalsefni ástæður
þess að hann sagði af sér vara-
formennsku í SÍ og á þann hátt
sem hann gerir verður ekki hjá
því komist að skýra þau mál
nokkuð hér.
Upphaf þessa máls má rekja
til ársins 1982 en í byrjun þess
árs ásakaði Sigurbjörn sam-
starfsmann sinn um að hafa
breytt farþegabókhaldi sem
Sigurbjörn hafði fært um borð í
m/s Akraborg þar sem hann
var þá stýrimaður. Starfsmaður
SÍ kannaði þessi gögn og gat
ekki séð að um misferli væri að
ræða, heldur smávægilegar
leiðréttingar á villum.
„Fölsunarmár þetta, eins og
Sigurbjörn nefndi það, kom að
tilhlutan Sigurbjörns til um-
ræðu á stjórarfundi félagsins
23. nóv. 1982. Stjórnin taldi sér
ekki fært að taka þetta mál
uppá sína arma. Enda virðist
augljóst að rétta leiðin væri að
kæra mál af þessu tagi til réttra
yfirvalda.
AKHAHOHG