Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Blaðsíða 44
H
Framfarir í lögskráningu
Helgi Laxdal
formaður
Vélstjórafélags
íslands
Undirritaður heimsótti dagana
21. og 22. júlí s.l. nokkra lög-
skráningarstaði úti á land,
ræddi við lögskráningarfulltrúa
og fór yfir lögskráningargögn.
Einnig heimsótti hann orkuver
Landsvirkjunar við Laxá og
Kröflu.
Á síðasta ári var útbúið með-
fylgjandi form til þess að ein-
falda úttekt á framkvæmd lög-
skráningar.
Formið er þannig byggt upp
að á því koma fram öll atriðin
sem koma fram í skipshafnar-
skrá. Hlutverk þess sem fer yfir
lögskráningargögnin er að
merkja við í viðkomandi eyðu
hvort rétt sé skráð, rangt eða
óskráð. FyrstvarSauðárkrókur
heimsóttur og rætt við Harald
Guðmundur Þór Benediktsson fulltrúi í Ólafsfirði.
Óli M. Þorsteinsson deildarstjóri annast lögskráninguna á Hofsósi.
Halldórsson fulltrúa sýslu-
manns sem annast lögskrán-
ingu í afleysingum um þessar
mundir.
Skoðuð var áramótaskrán-
ing sex fiskiskipa. Niðurstaðan
var sú að 93% atriða reyndust
rétt skráð, ekkert atriði var
rangt skráð en 7% skráningar-
skyldra atriða reyndust óskráð.
Þar var fyrst og fremst um nafn
nánasta vandamans að ræða
og nr. atvinnuskírteinis.
Næst var Hofsós heimsóttur
og rætt við Óla M. Þorsteinsson
sem annast lögskráningu á
Hofsósi. Aðeins er eitt skip lög-
skráningarskylt á Hofsósi. Við
skoðun reyndust 94% atriða
rétt skráð en 6 % rangt skráð.
Þar var um að ræða að ein-
kenni atvinnuskírteina fyrir yfir-
mannastöðurnar um borð.
Ekkert skráningaskylt atriði
reyndist óskráð.
Að lokum var lögskráningar-
skrifstofan á Ólafsfirði heim-
sótt. Þar var rætt við Guðmund
Þór sem annast lögskráning-
una. Áramótalögskráning sex
fiskiskipa var yfirfarin. Niður-
staðan var sú að í 95,5 % atriða
var rétt skráð en í 4,5% atriða
rangt skráð, ekkert skráningar-
skylt atriði var óskráð. Þegar
búið var að fara yfir lögskrán-
inguna á Ólafsfirði var klukkan
langt gengin í fjögur en kl. fjög-
ur er skráningarskrifstofunni
lokað og því tókst ekki að heim-
sækja fleiri staði en hugmyndin
var að heimsækja a.m.k lög-
skráninguna á Dalvík líka.
Mín reynsla af þessum heim-
sóknum er sú að mikil breyting
hefur orðið á framkvæmd
þessara mála frá því að ég fór
fyrstu ferðina út á land til eftir-
lits, en skipshafnaskrárnar
sem þá voru notaðar voru
þannig úr garði gerðar að öll
framkvæmd og eftirlit voru
ýmsum annmörkum háð. í
framhaldi af nýjum skipshafn-
arskrám, breyttum lögum um
lögskráningu og fundarhaldi á
vegum Samgöngumálaráðu-
neytisins með lögskráningar-
aðilum um allt land virðist hafa
orðið mikil breyting til batnaðar.
Þetta sýnir að sjómenn og lög-
skráningarfulltrúarnir eru til-
búnir til þess að hafa þessi mál
í fullu samræmi við reglur séu
þeim sköpuð eðlileg skilyrði til
þess. Þarsannastenn hiðforn-
kveðna að eftir höfðinu dansa
limirnir. Að lokum bestu þakkir
til fólksins sem heimsótt var
fyrir góðar móttökur.