Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Blaðsíða 49
stæröfræöi, efnafræði, vélritun
o.fl.
Nám viö skólann fer einkum
fram bréfleiðis eins og nafniö
bendir til og veita þá kennarar
leiðsögn. En skólinn býður líka
til sölu námsefni ítungumálum,
bæði lesefni og snældur, og er
það sérstaklega sniðið fyrir
sjálfsnám.
Nám í Bréfaskólanum hentar
ekki síst sjómönnum og öðrum
þeim sem starfs síns vegna
eiga ekki auðvelt með að
stunda reglulegt skólanám.
Skólinn er til húsa að Suður-
landsbraut 32 í Reykjavík og
þar er síminn 91-689750.
Handbók um
leit og björgun
Landhelgisgæslan hefur gefið
út bækling sem nefnist „Leit og
björgun- handbók kaupskipa".
Er þar á ferðinni þýðing á bækl-
ingi sem Alþjóða siglingamála-
stofnunin hefur gefið út undan-
farin ár á ensku.
Tilgangurinn með útgáfunni
er að hún sé hjálpargagn þeim
skipstjórum sem kunna að vera
kallaðir til leitar og björgunar á
mönnum í sjávarháska. Land-
helgisgæslan á aðeins þrjú
varðskip og oft er næsta varð-
skip langt frá þeim stað þar
sem hefja þarf leit og björgun-
arstörf. Þess vegna verður oft
að leita til annarra skipa um að-
stoð.
Bókinni er skipt í átta kafla og
fjallar sá fyrsti um samhæfingu
þjónustustöðva í landi, loftfara,
skipa og annarra björgunar-
tækja. Næstu tveir kaflar fjalla
um viðbrögð skips í sjávar-
háska og þeirra skipa sem að-
stoð veita en sá fjórði um þá
aðstoð sem flugvélar og þyrlur
veita. Fimmti kafli fjallar um
skipulag og framkvæmd leitar,
rek gúmmíbáta og mismunandi
leitarmynstur eins eða fleiri
skipa og flugvéla en í þeim
sjötta er rætt um lok leitar, hvort
sem hún leiðirtil björgunar eða
reynist árangurslaus. í síðustu
tveimur köflunum er fjallað um
fjarskipti og flugslys á sjó.
Bók þessi verður kennd í
stýrimannaskólanum en þess
er einnig vænst að hún verði
fljótlega tiltæk í öllum íslensk-
um skipum. Sölu og dreifingu
LEIT OG
BJÖRGUN
LANDHELGISGÆSLAN
hennar annast sjókortasala
Sjómælinga íslands í Hafnar-
húsinu í Reykjavík.
ÍSMARK
ÍSVÉLAR OG
ÍSBLÁSARAR
(SMARK ísvélarnar hafa sýnt og sannað gildi sitt bæði
til sjós og lands þar sem kröfur eru geröar til afkasta
og endingar. Með þeim er auðvelt að ráða formstærð
og þykkt íssins enda helst fiskur sem hefur verið
ísaður með ÍSMARK ís ferskur og áferðarfallegur.
ÍSMARK ísvélarnar eru til í fjórum stöðluðum
stærðum: fyrir ferskt vatn eða sjó, á land eða í skip.
Meö iSMARK blásurum heyrir ísmoksturinn sögunni til.
Þeir blása isnum 10^50 metra og afköstin eru 20-40
tonn á klukkustund. ÍSMARK ísblásararfara betur með
ísinn og stuðla jafnframt að auknum afköstum.
Vinsamlegast hafid samband. Vid veitum allar
upplýsingar um verd og greidsluskilmála.
VÍKINGUR 49