Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1990, Síða 10
LÍFEYRISSJÓÐIR
Það þarf ekki
annad en líta á
ársreikninga
Lífeyrissjóðs
sjómanna til að
sjá hve tekjur
hans eru
gríðarlega miklar
miðað við
útgjöldin.
10 VÍKINGUR
aö kemur illa við marga
þegar þeim er sagt aö peningar
sem þeir eru aö borga í lífeyris-
sjóö í góðri trú komi aldrei til
meö aö nýtast þeim síðar. i dag
er ekki óalgengt að menn sem
eru hættir störfum eftir að hafa
greitt í lífeyrissjóð í 30 ár fái um
25 þúsund krónur á mánuöi í
lífeyri úr sjóðnum. En þaö eru
líka mörg dæmi um lægri upp-
hæöir og svo dæmi á hinn veg-
inn þar sem einstaklingar fá allt
upp í um 300 þúsund á mánuöi
úr lífeyrissjóðum, hafi þeir til
dæmis setið á Alþingi og verið
ráðherrar og síðan endað sem
bankastjórar.
Á síðasta þingi var lagt fram
til kynningar frumvarp um líf-
eyrissjóöi sem hefur árum
saman legið í skúffu ráðherra.
Það er með öllu óvíst hvort það
verður afgreitt á næsta þingi
í kjölfar umræðna um að
greiðsluþrot blasi við lífeyris-
sjóðum í náinni framtíð hafa
vaknað umræður um aðra
skipan mála. Fram hefur komið
á Alþingi þingsályktunartillaga
sem gerir ráð fyrir að hver vinn-
andi maður eigi sinn lífeyris-
sjóð sem varðveittur verði í
bönkum eða öðrum traustum
peningastofnunum. Þegar
menn hætti störfum á sjóðurinn
að tryggja eiganda sínum fjár-
hagslegt öryggi næstu 20 árin
eða svo. Menn sjá hins vegar
ýmsa agnúa á þessu fyrir-
komulagi.
Hér er ekki ætlunin að gera
neina heildarúttekt á stöðu líf-
eyrissjóðsmála í landinu. Þeir
sem eiga aðild að Lífeyrissjóði
sjómanna hafa áhyggjur af
stöðu og framtíð síns sjóðs
með tilliti til þeirrar umræðu
sem minnst var á hér að fram-
an. Bjarni Sveinsson, skipstjóri
á Akranesi og stjórnarmaður
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins, er einn þeirra sem
vilja fá upplýsingar um stöðu
sjóðsins og spyr ýmissa spurn-
inga þar að lútandi sem við leit-
um svara við hjá forráðamönn-
um lífeyrissjóðsins. Ennfremur
er rætt við Gísla Marteinsson,
framkvæmdastjóra Lífeyris-
sjóðs Austurlands, en sá sjóð-
ur hefur eflst mjög og dafnað á
„Það þarf ekki annað en líta á
ársreikninga Lífeyrissjóðs sjó-
manna til að sjá hve tekjur hans
eru gríðarlega miklar miðað við
útgjöldin.
Fyrir árið I988, en það er síð-
asta árið sem ég hef tölur yfir,
er hrein eign í árslok til greiðslu
lífeyris 5,5 milljarðar króna.
Það ár námu iðgjöld samtals
855,7 milljónum króna en
heildarlífeyrisgreiðslur ekki
nema I86 milljónum. Samt er
Bjarni Sveinsson skipstjóri
sjóðurinn sagður á hausnum
og ég skil ekki hvernig það get-
ur staðist," sagði Bjarni Sveins-
son skipstjóri á Akranesi í sam-
tali við blaðið.
síðustu árum undir stjórn Gísla.
Öruggur lífeyrir og önnur slík
réttindi er mikið hagsmunamál
fyrir sjómenn sem aðra og við
hvetjum lesendur til að láta í sér
heyra eftir að hafa lesiö það
sem hér fer á eftir.
„Þaö fer ekkert á milli mála
að iðgjöldin færa sjóðnum sí-
vaxandi tekjur, ekki síst eftir að
menn eru farnir að greiða í
hann af heildarlaunum, en hins
vegar eru greiðslur úr honum
litlar, alla vega enn sem komið
er. Ef staða sjóðsins er eins
slæm og af er látið. það er að
segja að hann eigi ekki í besta
falli nema fyrir 56% skuldbind-
inga sinna, er ekki forsvaran-
legt að við tökum þátt í þessu
lengur. Það eru til aðrar leiðir til
að tryggja sér lífeyri," sagði
Bjarni Sveinsson.
Hann sagði að það væri
grundvallarkrafa að menn sem
greiddu í lífeyrissjóðinn í 30-40
ár, oft af háum launum, vissu
hverju þeir mættu eiga von á
þegar þeir hættu störfum og
þyrftu á lífeyri að halda. Það
væri gjörsamlega óverjandi að
borga og borga í sjóðinn án
þess að vera þess fullvissir að
fá viðundandi lífeyri. Ekki síst
þegar tekið væri tillit til þess, að
menn þyrftu aö borga skatt af
þeim peningum sem þeir öfl-
uðu og greiddu í sjóðinn og svo
þyrfti aftur að borga skatt af
sömu peningum þegar greitt
væri úr sjóðnum.
Lífeyrissjóður sjómanna:
AF HVERJU ER STADA
S JÓDSINS SVONA SUEM?
— spyr Bjarni Sveinsson skipstjóri