Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1990, Blaðsíða 60
Feðgarnir Guðmundur
Lárusson og Óskar
Guðmundsson.
60 VÍKINGUR
BÁTASMIÐJA GUÐMUNDAR
Bátasmiöja Guð-
mundar var stofnuð
árið 1979 og vann
eigandinn Guð-
mundur Lárusson einn að
bátasmíðinni til að byrja með.
Fyrirtækið hefur síðan vaxið
jafnt og þétt. Núna er verk-
smiðjan í 1300 fm húsnæði að
Eyrartröð 13 í Hafnarfirði.
Hjá bátasmiðju Guðmundar
hafa verið framleiddar ýmsar
stærðir og gerðir af trefjaplast-
bátum. Þeirra lang vinsælastur
er 5,9 rúmlesta bátur, Sómi
800, sem hefur hentað jafnt
sem atvinnutæki og sportbátur.
Framleiðsla SÓMA 800 hófst
áriö 1984 og hefur þessi átta
metra langi bátur verið aðal
vara bátasmiðjunnar síðan. Til
marks um hvað Sóma bátar
eru liprir má nefna að á Höfn í
Hornafirði var engin smábáta-
útgerð þar til Sómi 800 kom
fram á sjónarsviðið. Horna-
fjarðarós var talinn of erfiður
fyrir smábáta.
Kostir Sóma bátanna eru
léttleikinn og ganghraðinn.
Venjulegur siglingarhraði
Sóma 800 er um 20 - 25 sjómíl-
ur en hámarkshraði er 30 sjó-
mílur. Árið 1987 fóru tveir bátar
frá bátasmiðju Guðmundar til
Færeyja, til að kynna Færey-
ingum Sóma 800. Á þessari
leið héldu bátarnir 20 sjómílna
meðalhraða, sömu sögu er að
segja af tveimur Sóma 800 bát-
um sem fóru 1300 sjómílna leið
frá Hafnarfirði til Nuuk á Græn-
landi þar sem tveir ánægðir
eigendur tóku við þeim.
Bátasmiðja Guðmundar hef-
ur nú smíðað um 260 báta og
þar af eru um 200 af gerðinni
Sómi 800.
Á sjávarútvegssýningunni í
Laugardalshöll 1990 verður
fullbúinn Sómi 800 til sýnis á
útisvæði. Þar getur fólk skoðað
þennan rúmgóða og lipra
sómabát.
BÁTASMIÐJA
GUÐMUNDAR
Boat builders
Guðmundur Lárusson es-
tablished Bátasmiðja Guð-
mundar in 1979. His boat
building company has grown
from a one man operation to
a large business now situat-
ed at Eyrartröð 13 in Hafnarf-
jörður.
They have built fibre-glass
boats of various types and
sizes. The most popular of
these boats is the 5,9 ton Só-
mi 800, which is suitable for
both professional fishing and
a sports boat. The first Sómi
800 was built in 1984 and this
8 m boat has been their main
product since. The advan-
tages of the Sómi 800 are, it
is light, fast and easy to ma-
nipulate. Sómi„s cruising
speed is 20 -25 knots with a
top speed of 30 knots. In
1987 two Sómi 800 were
sailed to the Faroe Islands to
introduce the boats to this
market. On the way the
boats averaged 20 knots as
did two other Sómi boats
which sailed 1300 nautical
miles to Nuuk in Greenland.
At the lcelandic Fisheries
Exhibition in Laugardal-
shöll 1990, a fully equipped
Sómi 800 will be on display in
the outside display area.
There you can examine this
spacious and agile boat.