Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1990, Blaðsíða 106
J. HINRIKSSON H.F
106 VÍKINGUR
Hinriksson hf.,
Reykjavík er fram-
■ leiöandi hinna vel
þekktu sporöskju-
laga POLY - ICE toghlera og
flotvörupuhlera, J. Hinriksson
togblakka, dekkrúlla og Gilson
blakka í mörgum stærðum.
Poly-lce toghlerar hafa verið
mjög vinsælir á NorðurAtlants-
hafsmarkaðnum í mörg ár og
eru vinsælustu toghlerarnir á
íslandi, Grænlandi, Færeyjum,
Noregi, Englandi, Skotlandi og
á Hjaltlandseyjum. Þeir eru
einnig notaðir í Danmörku,
VÞýskalandi, Frakklandi,
Spáni og írlandi. Auk þess eru
þeir mjög vinsælir í Bandaríkj-
unum, á New Bedford svæð-
inu, en þangað höfum við selt
yfir 400 pör. Þeir eru auk þess
seldir til Kanada, Nýfundna-
lands.
Vinsældir Poly-lce toghler-
anna eru vegna fiskni þeirra og
fjölhæfni til fiskveiða. Minna
viðhald og auðveldari viðgeröir
eru lykillinn að vinsældum
Poly-lce toghleranna.
Þeir eru vinsælustu toghler-
arnir fyrir botnfisk, allt frá
minnstu bátum upp í stærstu
frystitogarana á Atlantshafinu
og líka frá minnstu rækjubátum
til stærstu rækjutogaranna.
Nýlega komu á markaðinn
nýir Poly-lce toghleraskór.
Þessir nýju toghleraskór eru
þegar búnir að sanna ágæti sitt
á nokkrum stórum Poly-lce
toghlerum á íslenskum, kana-
dískum, grænlenskum, fær-
eyskum, dönskum og norskum
togurum. Sérstaklega hefur
meiri ending og einfaldleiki við
skipti á skóm um borð í skipum
komið vel í Ijós á færeysku
verksmiðjutogurunum og stóru
rækjuskipunum, sem eru sum
marga mánuði á sjó í einu. Við
höfum fengið mjög góð svör frá
þessum skipum og lof um góða
toghlera og nýju toghlera-