Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1990, Blaðsíða 22
Fídus tilvalinn báta- og
skipahreinsir.
22 VÍKINGUR
EFNAVERKSMIDJAN SJÖFN
fnaverksmiðjan
Sjöfn var stofnuð á
Akureyriárið1932 og
hét þá Sápugeröin
Sjöfn. Eins og nafnið bendir til
var meginverkefni verksmið-
junnar að framleiða sápu en
ýmsar aðrar vörur voru þó
framleiddar samhliða þeim
vöruflokki eins og kerti, júgur-
feiti og skókrem svo dæmi séu
nefnd. Fyrirtækið dafnaði vel,
haslaði sér snemma völl á ís-
lenskum markaði, og í dag eru
sumar hreinlætisvörutegundir
þess eins og t.d. Vex, Þrif og
Milda orðnar heimilisvinir ís-
lenskra húsmæðra.
Á árunum frá 1932 hafa ýms-
ar breytingar átt sér stað og
margir atburðir, sem of langt
mál yrði að tíunda hér, hafa
verið festir á blað í sögu fyrir-
tækisins. Á sviði hreinlætis og
snyrtivara hefur stöðug vöru-
þróun átt sér stað á meðan nýj-
ar deildir hafa verið stofnaðar til
að nýta framleiðsluhæfni fyrir-
tækisins. Hæst ber málningar-
deild sem í dag stendur undir
u.þ.b. 2/3 hlutum af heildarvelt-
unni. Þar að auki má nefna
bleiu- og bindadeild þar sem
framleiddar eru bleiur, dömu-
bindi og sjúkrabindi og enn-
fremur svampdeild, sem nú er
reyndar leigð út til rekstrar.
Eins og fram hefur komið er
málningarframleiðsla mikil-
vægasti framleiðsluþáttur
Sjafnar í dag. Segja má að fyrir-
tækið hafi á boðstólum allt til
alls í þeim efnum, hvort sem
um er að ræða þarfir sjávar-
útvegs eða annarra. Polytex,
Útitex, Rex skipamálning, Met
vélalakk, E-21 lakk o.s.frv. Allt
eru þetta þekkt nöfn í fiskiðnaði
og víðar. Hver skyldi svo ekki
kannast við gólfefnið úretan-
kvars, sem á annað borð hefur
komið nálægt vinnslu sjávaraf-
urða á sjó eða í landi? íslend-
ingar eru ekki þeir einu sem
notið hafa góðs af málningar-
vörum Sjafnar, því að margir
lítrarnir hafa verið fluttir út og
prýða bæði skip og húsnæði
þjóða eins og t.d. Sovétmanna,
íra, Færeyinga og Grænlend-
inga.
Segja má að hjá Sjöfn hafi
sérstök rækt verið lögð við þró-
un og framleiðslu hreinlætis-
vara fyrir fiskiðnað, og þarf
engan að undra það þegar haft
er í huga mikilvægi hans fyrir
islensku þjóðina. í gengum tíð-
ina hefur fyrirtækið verið í farar-